Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.10.2003, Blaðsíða 74

Læknablaðið - 15.10.2003, Blaðsíða 74
UMRÆÐA & FRÉTTIR / BÓKADÓMUR Líflæknirínn eftir Per Olov Enquist Doktor Struensee situr niðursokkinn við skriftir innan um pappírshaugana meðan Kristján konung- ur sjöundi leikur sér hljóður á gólfinu með leik- föngin sín; hundi og blökkudreng. Allt leikur í lyndi í miðri bókinni Líflæknirinn eftir sænska rithöfundinn Per Olov Enquisl. Læknirinn hefur fengið fullt umboð frá sjúklingi sínum til konung- legra embættisgerða og situr við skriftir tilskipana og lagaboða af mikilli elju, en þær urðu alls 632 á fjórum árum. Hug- sjónamaðurinn Struensee vinnur í hljóði að byltingu með blekinu sem rennur úr penna hans; dönsku byltingunni, tuttugu árum áður en sú franska braust út. Krist- ján konungur var sautján ára og bæklað- ur á líkama og sál þegar hann erfði krún- una. Ari seinna hefur kónginum verið fundin drottning á Englandi, hin fimmt- án ára gamla Karólína Matthildur. Krist- ján sjöunda dreymir í órum sínum að hann sé um- skiptingur, í raun bóndasonur en ekki konungs og þegar hann festir ást á frægri vændiskonu, Stígvéla Katrínu, þykir stefna í slíkt óefni að þeir sem ráða láta Katrínu hverfa en kóngurinn ákveður að leita hennar og leggur land undir fót í mikilli Evrópureisu. Nú þótti hyggilegt að finna kónginum líflækni til fararinnar og fyrir valinu varð þýski læknirinn Struensee, sem fljótt ávinnur sér traust hans hátignar. En með lækninum berast viðsjárverðir straumar því hann er sannfærður upplýs- ingarmaður og hirðin veit ekki sitt rjúk- andi ráð. í þokkabót hefur Kristján kon- ungur í misþroska sínum fengið dálæti á frönsku orðabókarhöfundunum og það gutlar á honum velvild í garð upplýsingar- innar svo vegurinn er ruddur fyrir líflækn- inn að gerast ráðgjafi konungs og stór- kostlegt tækifæri skapast til að umbylta ranglátu og mannskemmandi samfélagi. Og þarna er efinn hjá Struensee; á hann að hoppa af vagninum á heimleiðinni og helga líf sitt starfi meðal hins snauða al- múga eða smjúga inn um gættina og efna til póli- tískrar byltingar í Danmörku? Hann skröltir með konungsvagninum til Kaupmannahafnar og taka leikar þá brátt að æsast, enda fleira þar en spillt hirð, kúgaður almúgi og bilaður kóngur. Þar er líka ung og ástríðufull drottning. Líflæknirinn er margslungin bók og afburða vel skrifuð. Hún kom út á íslensku fyrir síðustu jól Kápa bókarinnar Líflœknirinn sem út kom á íslensku áriö 2002. Höfundur er læknir á Reykjalundi. Hans Jakob Beck Sœnski rithöfundurinn Per Olov Enquist. í bráðgóðri þýðingu Höllu Kjartansdóttur, en Enquist var svo hér uppi á dögunum, gestur á bók- menntahátíð. Sagan um líflækninn er sviðsett í sögulegum veruleika, en ýmsir þekkja eflaust eitt- hvað til örlaga- og ástarsögu Struensee og Kar- ólínu Matthildar, hafa kannski séð ballettinn. En bókin segir líka margbrotna sögu um leið og þessir makalausu atburðir eru rifjaðir upp. Þetta er saga um hugmyndabaráttu í ýmsum skilningi, samfé- lagshugmyndir takast á en persónurnar eru knúð- ar áfram af myndum sem þær draga upp í hugan- um. Lýsandi kyndill upplýsingarinnar er fyrir öðr- um kyndill myrkursins og allir beijast í huga sínum fyrir hreinleikanum, gegn spillingu og sora. Lengst gengur Kristján konungur, hann lifir algerlega í heimi hugmyndanna og telur sig þátttakanda í sviðsettu verki. Telur sjálfan sig vera Truman, svo vitnað sé í ágæta bíómynd, sem kannski er ekki svo fjarri lagi eftir allt, eða voru ekki settar ímyndaðar persónur í opinbera ævisögu Ronalds Reagans? En utan við höllina er hins vegar óræður veruleiki handan við átök upplýsingar og erfðakonunga- veldis og lesandinn getur aðeins giskað á hvað þar fari fram og hvaða myndir lifi í höfði almúgans. Eitt fannst mér athyglisvert við persónurnar í bókinni - þær eru hræddar. Vissulega eru gamal- þekktir kraftar líka á ferli, kynhvöt og samkeppni, sem allir fjölmiðlarnir nú á dögum eru uppfullir af, en óttinn leikur samt aðalhlutverkið. Hann skýtur alls staðar upp kryppunni og hefur sumar persón- ur algerlega á valdi sínu. Nútíminn er feiminn við þetta ógnarafl og við látum yfirleitt eins og óttinn hafi horfið, sé eins og farsóttirnar bara að finna í fortíðinni og þriðja heiminum, en ég held að það sé misskilningur. Því miður. Struensee vinnur einbeittur að takmarki sínu og grefur sér þó gröf allan tímann. Aukið tjáning- arfrelsi borgaranna bitnar mest á honum sjálfum og ást hans á almúgafólkinu er endurgoldin með hatri. Byltingin elur jafnóðum af sér gagnbylting- una. En meðan við lesum sögu af rugluðum kóngi, sannri drottningu og villuráfandi lækni á rangli milli konunglegra herbergja þekkjum við mann- kynssöguna, gamla heimsmyndin hrynur að lok- um, hver sem örlög sögupersónanna verða. Þetta er öðrum þræði fósturfræði okkar eigin heims- myndar og manni verður óneitanlega hugsað til þess hve lengi hún muni standa og hvað taki við. Sagt er að meginviðhorf breytist ekki smám sam- an, þau standi þar til þeim er kollvarpað eins og Thomas Kuhn kenndi um þróun vísindanna. 810 Læknablaðið 2003/89
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.