Læknablaðið - 15.10.2003, Qupperneq 74
UMRÆÐA & FRÉTTIR / BÓKADÓMUR
Líflæknirínn eftir Per Olov Enquist
Doktor Struensee situr niðursokkinn við skriftir
innan um pappírshaugana meðan Kristján konung-
ur sjöundi leikur sér hljóður á gólfinu með leik-
föngin sín; hundi og blökkudreng. Allt
leikur í lyndi í miðri bókinni Líflæknirinn
eftir sænska rithöfundinn Per Olov
Enquisl. Læknirinn hefur fengið fullt
umboð frá sjúklingi sínum til konung-
legra embættisgerða og situr við skriftir
tilskipana og lagaboða af mikilli elju, en
þær urðu alls 632 á fjórum árum. Hug-
sjónamaðurinn Struensee vinnur í hljóði
að byltingu með blekinu sem rennur úr
penna hans; dönsku byltingunni, tuttugu
árum áður en sú franska braust út. Krist-
ján konungur var sautján ára og bæklað-
ur á líkama og sál þegar hann erfði krún-
una. Ari seinna hefur kónginum verið
fundin drottning á Englandi, hin fimmt-
án ára gamla Karólína Matthildur. Krist-
ján sjöunda dreymir í órum sínum að hann sé um-
skiptingur, í raun bóndasonur en ekki konungs og
þegar hann festir ást á frægri vændiskonu, Stígvéla
Katrínu, þykir stefna í slíkt óefni að þeir sem ráða
láta Katrínu hverfa en kóngurinn ákveður að leita
hennar og leggur land undir fót í mikilli
Evrópureisu. Nú þótti hyggilegt að finna
kónginum líflækni til fararinnar og fyrir
valinu varð þýski læknirinn Struensee,
sem fljótt ávinnur sér traust hans hátignar.
En með lækninum berast viðsjárverðir
straumar því hann er sannfærður upplýs-
ingarmaður og hirðin veit ekki sitt rjúk-
andi ráð. í þokkabót hefur Kristján kon-
ungur í misþroska sínum fengið dálæti á
frönsku orðabókarhöfundunum og það
gutlar á honum velvild í garð upplýsingar-
innar svo vegurinn er ruddur fyrir líflækn-
inn að gerast ráðgjafi konungs og stór-
kostlegt tækifæri skapast til að umbylta
ranglátu og mannskemmandi samfélagi.
Og þarna er efinn hjá Struensee; á hann
að hoppa af vagninum á heimleiðinni og
helga líf sitt starfi meðal hins snauða al-
múga eða smjúga inn um gættina og efna til póli-
tískrar byltingar í Danmörku? Hann skröltir með
konungsvagninum til Kaupmannahafnar og taka
leikar þá brátt að æsast, enda fleira þar en spillt
hirð, kúgaður almúgi og bilaður kóngur. Þar er líka
ung og ástríðufull drottning.
Líflæknirinn er margslungin bók og afburða
vel skrifuð. Hún kom út á íslensku fyrir síðustu jól
Kápa bókarinnar
Líflœknirinn sem út kom á
íslensku áriö 2002.
Höfundur er læknir
á Reykjalundi.
Hans Jakob Beck
Sœnski rithöfundurinn
Per Olov Enquist.
í bráðgóðri þýðingu Höllu Kjartansdóttur, en
Enquist var svo hér uppi á dögunum, gestur á bók-
menntahátíð. Sagan um líflækninn er sviðsett í
sögulegum veruleika, en ýmsir þekkja eflaust eitt-
hvað til örlaga- og ástarsögu Struensee og Kar-
ólínu Matthildar, hafa kannski séð ballettinn. En
bókin segir líka margbrotna sögu um leið og þessir
makalausu atburðir eru rifjaðir upp. Þetta er saga
um hugmyndabaráttu í ýmsum skilningi, samfé-
lagshugmyndir takast á en persónurnar eru knúð-
ar áfram af myndum sem þær draga upp í hugan-
um. Lýsandi kyndill upplýsingarinnar er fyrir öðr-
um kyndill myrkursins og allir beijast í huga sínum
fyrir hreinleikanum, gegn spillingu og sora. Lengst
gengur Kristján konungur, hann lifir algerlega í
heimi hugmyndanna og telur sig þátttakanda í
sviðsettu verki. Telur sjálfan sig vera Truman, svo
vitnað sé í ágæta bíómynd, sem kannski er ekki svo
fjarri lagi eftir allt, eða voru ekki settar ímyndaðar
persónur í opinbera ævisögu Ronalds Reagans? En
utan við höllina er hins vegar óræður veruleiki
handan við átök upplýsingar og erfðakonunga-
veldis og lesandinn getur aðeins giskað á hvað þar
fari fram og hvaða myndir lifi í höfði almúgans.
Eitt fannst mér athyglisvert við persónurnar í
bókinni - þær eru hræddar. Vissulega eru gamal-
þekktir kraftar líka á ferli, kynhvöt og samkeppni,
sem allir fjölmiðlarnir nú á dögum eru uppfullir af,
en óttinn leikur samt aðalhlutverkið. Hann skýtur
alls staðar upp kryppunni og hefur sumar persón-
ur algerlega á valdi sínu. Nútíminn er feiminn við
þetta ógnarafl og við látum yfirleitt eins og óttinn
hafi horfið, sé eins og farsóttirnar bara að finna í
fortíðinni og þriðja heiminum, en ég held að það
sé misskilningur. Því miður.
Struensee vinnur einbeittur að takmarki sínu
og grefur sér þó gröf allan tímann. Aukið tjáning-
arfrelsi borgaranna bitnar mest á honum sjálfum
og ást hans á almúgafólkinu er endurgoldin með
hatri. Byltingin elur jafnóðum af sér gagnbylting-
una. En meðan við lesum sögu af rugluðum kóngi,
sannri drottningu og villuráfandi lækni á rangli
milli konunglegra herbergja þekkjum við mann-
kynssöguna, gamla heimsmyndin hrynur að lok-
um, hver sem örlög sögupersónanna verða. Þetta
er öðrum þræði fósturfræði okkar eigin heims-
myndar og manni verður óneitanlega hugsað til
þess hve lengi hún muni standa og hvað taki við.
Sagt er að meginviðhorf breytist ekki smám sam-
an, þau standi þar til þeim er kollvarpað eins og
Thomas Kuhn kenndi um þróun vísindanna.
810 Læknablaðið 2003/89