Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.10.2003, Page 43

Læknablaðið - 15.10.2003, Page 43
FRÆÐIGREIN / NOTKUN NÁTTÚRUEFNA Notkun náttúruefna, fæðubótarefna og lausa- sölulyfja - hönnun og prófun spurningalista Anna Birna Almarsdóttir1 Dósent við Lyejafræðideild HÍ Magnús Sigurðsson2 Lyfjafræðingur Vilmundur Guðnason2 Læknir Rannsóknin var unnin í ís- lenskri erfðagreiningu sem greiddi kostnað við hönnun og prófun spurningalistans. 'Lyfjafræðideild Háskóla íslands, 2Omega Farma, •Hjartavemd. Fyrirspurnir og bréfaskipti: Anna Birna Almarsdóttir Lyfjafræðideild Háskóla íslands, Haga, Hofsvallagötu 53,107 Reykjavík. annaba@hi.is Lykilorð: fœðubótarefni, lausa- sölulyf náttúruefni, spurningalistar. Ágrip Tilgangur: Faraldsfræðilegar rannsóknir sýna að opn- ar spurningar í spurningalistum eru varasamar við mælingu á notkun lyfja og skyldra efna. Mikilvægt er einnig að varast að spyrja langt aftur í tímann. Þessi atriði voru höfð í huga við hönnun spurningalista um notkun náttúruefna, fæðubótarefna og lausasölulyfja. Markmið rannsóknarinnar var að prófa spurninga- listann ásamt því að mæla algengi notkunar síðustu tvær vikur. Efniviður og aðferðir: Nýr spurningalisti var hannað- ur og nær allir svarmöguleikar hafðir lokaðir. For- prófun á spurningalistanum fór fram í tveim fösum. Þátttakendur voru úr hópi fólks sem kom í skoðun hjá Hjartavernd. í þriðja fasa var tekið úrtak af 18.079 þátttakendum úr Reykjavíkurrannsókn MONICA og Afkomendarannsókn Hjartaverndar. Tekið var lagskipt slembiúrtak með tilliti til aldurs og kyns (N=350). Við samanburð á tíðnitölum var notað kí-kvaðrat próf. Niðurstöður: Spurningalistanum var lítillega breytt eftir forprófun. Aðallega var um orðalagsbreytingar að ræða í spurningunum. I notkunarrannsókninni svöruðu 220 einstaklingar listanum (62,9% svarhlut- fall). Algengi notkunar náttúruefna var 46,8%; ENGLISH SUMMARY Almarsdóttir AB, Sigurðsson M, Guðnason V The use of herbal medicines, food supplements, and OTCs - design and testing of a questionnaire Læknablaðið 2003; 89: 779-85 Background: Epidemiologic studies show that open- ended questionnaire items are unreliable measures of the use of drugs and related substances. It is also important to avoid questions regarding the distant past. These issues were kept in mind when designing a questionnaire on the use of herbal medicines, food supplements, and over-the- counter drugs (OTCs). The objectives of this study were to pre-test the questionnaire and measure the prevalence of use in the last two weeks. Methods: A questionnaire was constructed almost entirely with closed-ended responses. A pre-test was carried out in two phases. Respondents were patrons of the lcelandic Heart Association’s clinic. In the utilization study a sample was taken from all 18 079 participants of the MONICA Reykjavík research study and the Descendant Study of the lcelandic Heart Association. The random sample was 75,9% fyrir vítamín, stein- og snefilefni, og 69,5% fyr- ir lausasölulyf. Hvítlaukur var algengasta náttúru- og fæðubótarefnið (14,5%). Lýsi hafði yfirburði í flokki vítamína, stein- og snefilefna (59,1%). C-vítamín var mest notað af stökum vítamínum (20,9%). Kalk var langmest notaða steinefnið (11,4%). Verkjalyf voru algengustu lausasölulyfin (38,6%). Ályktanir: Form spurningalistans þótti þægilegt í for- prófun. Algengi notkunar allra flokkanna er mikið miðað við erlendar rannsóknir. Svarbjagi gæti verið til staðar þannig að notkun virðist algengari hjá ís- lendingum en raunin er. Þar sem úrtak var rnjög lítið skal litið á þessa rannsókn sem prófun ákveðinnar aðferðar við mælingu notkunar þessara efna og lyfja. Inngangur Spurningalistar eru ódýr og fljótleg rannsóknartæki við öflun upplýsinga varðandi heilsu og sjúkdóma (1). Þessi aðferð er orðin algeng í rannsóknum á sviði faraldsfræði þótt hún njóti ekki þeirrar virðingar sem vera ber vegna þess algenga misskilnings að góðan spurningalista sé auðveldlega hægt að hrista fram úr erminni (2-4). stratified according to age and sex (N=350). A chi-squared test was used to compare rates. Results: The questionnaire was changed little after pre- testing. The main changes related to wording of questions. In the utilization study, 220 individuals responded (62.9%). The prevalence of herbal use was 46.8%, 75.9% for vitam- ins, minerals, and micronutrients, and 69.5% for OTCs. Garlic was the most commonly used herbal and food- supplement (14.5%). Codliver oil held a superior position in the group of vitamins, minerals, and micronutrients (59.1 %). Vitamin C was the most used single vitamin (20,9%). Calcium was by far the most used mineral (11,4%). Pain relievers were the most common OTCs (38.6%). Conclusions: The format of the questionnaire was satis- factory. The prevalence of use of all groups of substances was high compared to foreign studies. Response bias may make the use seem higher than is true. As the sample was very small, this study should be viewed as a test of a specific method for measuring the use of these substances. Key words: food supptements, over-the-counter drugs, herbal medicines, questionnaires. Correspondence: Anna Birna Almarsdóttir, annaba@hi.is Læknablaðið 2003/89 779

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.