Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.10.2003, Síða 65

Læknablaðið - 15.10.2003, Síða 65
UMRÆÐA & FRÉTTIR / ÍÐORÐAPISTILL 159 Utskriftarfær Jón Eyjólfur Jónsson, öldrunarlæknir, sendi lítið verk- efni sem snýst um lýsandi heiti til að nota við flokkun sjúklinga í vistunarkerfi stofnunar. Forsendur verkefn- isins voru ekki fyllilega tilgreindar, en grunnhugmynd- in er væntanlega sú að vistunarkerfíð geti innihaldið upplýsingar um áfanga á meðferðarferlinum. Helsti á- fanginn er auðvitað sá að sjúklingur hafi fengið nauð- synlega meðferð og sé tilbúinn til brottfarar. Því á- standi sagði Jón Eyjólfur að sænsk kerfi lýstu með orð- inu „klinikfárdig” og spurði hvort ekki væri hægt að kalla slíka sjúklinga ferðbúna. Þá taldi hann þörf fyrir kerfisheiti sem aðgreindu þá sjúklinga, sem ættu að fara á aðrar deildir sömu stofnunar, frá þeim sem ekki væri meira fyrir að gera og væru því útskriftarfærir. Undirritaður tók sér nokkra daga eftir sumarfríið til að verða íðorðafær og sá fljótt að lausnin fólst í því að búa til samsett heiti með lýsingarorðinu fær sem viðskeyti. Sá sem er tilbúinn til útskriftar er þannig útskriftarfær, sá sem er tilbúinn til flutnings er flutn- ingsfær og sá sem er tilbúinn í eftirlit á göngudeild er göngudeildarfær. Margar fleiri samsetningar má hugsa sér, svo sem aðgerðarfær, endurhæfingarfær og dagdeildarfær. Þessi kerfisheiti útiloka ekki að ferðbúinn sjúklingur sé einnig nefndur ferðafær. Bæklunaraögerö Bjarki Karlsson, bæklunarlæknir á Akureyri, lagði fram verkefni sem í fyrstu virtist erfitt. Hann var að fást við heiti á nýrri bæklunaraðgerð. Hún felst í því að sprautað er sérstöku gerviefni inn í liðbol hryggjar til að líma beinbrot eða til að lagfæra liðbolssamfall eða skekkju eftir brot. Aðgerðin hefur fengið tvö heiti eft- ir því hvort einungis stefnt er að því að festa eða líma beinbrotið, vertebroplasty, eða hvort einnig á að laga ogþenja útskakkan ogsamfallinn liðbol, kyphoplasty. Cementum Efnið hefur fengið enska samheitið cement. Það er talið dregið af latneska orðinu caedimentum, sem upphaflega var notað um hrjúfa steina og beinbrot í steinnámum fornaldar. Síðar breytist stafsetningin og merkingin tók tilfærslu þannig að cementum var notað um ýmislegt það sem bindur eða límir hluti saman og þá sérstaklega um steinlím. í orðabókum kemur fram að samheitið cement er notað um ýmis náttúruleg efni sem verða steinhörð við að þorna og um ýmis gerviefni sem harðna eftir tiltekna efna- fræðilega blöndun. íðorðasafn lækna gefur þýðingar á enska orðinu cenient: 1. lím. 2. tannfylling. 3. tann- lím. í því samhengi má minna á heiti úr líffærafræð- inni: enamelum, glerungur, dentinum, tannbein og cementum, beinungur. Æskilegt væri nú að bæta við fjórðu þýðingunni á cement: 4. beinlím. Plasty Orðhlutinn -plasty kemur fyrir í mörgum aðgerða- heitum, einkum þeim sem falla undir lýtalögun, plast- ic surgery. Uppruninn er úr grísku, sögnin plassein merkir að forma eða móta og lýsingarorðið plastos merkir formaður eða mótaður. Af þeim sökum hefur orðhlutinn plasty verið notaður um skurðaðgerðir til að lagfœra sköpulagsgalla eða byggja upp form eða starfsemi líkamshluta (læknisfræðiorðabók Sted- mans). Þessum orðhluta er þannig sérstaklegaO ætlað að vísa í lögun eða mótun líkamshluta. Undirritaður lagðist í grúsk og skoðaði þau að- gerðaheiti í íðorðasafni lækna, sem enda á -plasty, býsna vandlega. Langoftast er notað íslenska heitið lögun, en einnig sköpun eða gerð. Þá eru nokkrum sinnum notuð almennu heitin aðgerð eða viðgerð, og einstöku sinnurn sértæku heitin ágræðsla, bæting, götun, ígræðsla og skipti. Hryggjarlögun Orðhlutinn vertebro- vísar í hryggjarlið: Eitt þeirra þrjátíuogþriggja beina sem mynda hrygginn. Orðhlut- inn kypho- vísar hins vegar í herðakistil eða kryppu. Með þessu verður ekki erfitt að þýða fyrrgreind heiti á íslensku. Vertebroplasty verður þannig hryggjar- liðslögun og kyphoplasty verður herðakistilslögun eða kryppulögun. Heitin segja þó ekkert um aðferð- ina sem beitt er, innsprautun beinlímsins. Þó búa megi til nákvæm heiti sem lýsa aðferðinni, leggur undirrit- aður til að menn forðist löng og margsamsett heiti og að aðferðin verði táknuð með annarri hvorri viðbót- inni: með beinlími eða með beinlímingu. Viöbrögö óskast í nokkrum síðustu pistlum hefur verið kallað eftir viðbrögðum lækna við tillögum að íslenskum heitum. Viðbrögð hafa stundum lítil orðið. Nú skulu nokkrar beiðnir ítrekaðar: erythema nodosum (158. pistill), vegetative state (155. pistill), exposure (153. og 141. pistill), sentinel node (152. pistill), breast conserving surgery (152. pistill), skimun, kembileit (149. pistill), prækonditionering (147. pistill), eintala, fleirtala (145. og 142. pistill), cruroplastic, fundoplication (143. pistill), retinitis pigmentosa (142. pistill), komu- skrá, sjúrnall (141. pistill) og thyrotropin (140. pistill). Jóhann Heiðar Jóhannsson johannhj@landspitali.is Læknablaðið 2003/89 801
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.