Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.10.2003, Blaðsíða 78

Læknablaðið - 15.10.2003, Blaðsíða 78
FRÁ SÓTTVARNALÆKNI / DREIFIBRÉF Dreifibréf Landlæknisembættisins nr. 4/2003 Tilkynning frá sóttvarnalækni Bólusetning gegn influenzu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin ráðleggur að inflúensubóluefni á norðurhveli fyrir tímabilið 2003-2004 innihaldi eftirtalda stofna (WHO Weekly Epidemiological Record, 2003; 78: 60-2 og 2003; 78: 77): • A/Nýju Caledoniu/20/99 (H1N1) - lík veira • A/Moskvu/10/99 (H3N2) - lík veira* • B/Hong Kong/330/2001 - lík veira** * A/Panama/2007/99 stofn, sem oft er notaður, er A/Moskvu/10/99 - lík veira ** Sá bóluefnisstofn sem nú er notaður inniheldur: B/Shandong/7/97, B/Hong Kong/330/2001 og B/Hong Kong/1434/2002. Hverja á aö bólusetja ? • Alla eldri en 60 ára. • Öll börn og fullorðna sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdómum, sykursýki, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæm- isbælandi sjúkdómum. • Starfsfólk heilbrigðisþjónustu og aðra þá sem daglega annast fólk með aukna áhættu. Hvatt er til þess að bólusetningar gegn inflúensu hefjist sem fyrst og verði lokið að mestu fyrir byrjun nóvember. Sérstök athygli skal vakin á þvi að inflúensa getur líkst einkennum HABL (SARS) og getur mismunagreining verið erfið afþeim sökum fari svo að HABL taki sig upp að nýju. HABL reyndist sums staðar sérstakt vandamál á heilbrigðisstofnunum vorið 2003 og því er sérstaklega mælst til þess að sjúklingar og heilbrigðisstarfs- menn sem sinna veikburða fólki verði bólusettir við inflúensu. Frábendingar Sjá nánar leiðbeiningar um inflúensubólusetningu frá september 2003. Bólusetning gegn pneumókokkasýkingum Sóttvarnalæknir vill einnig minna á bólusetningar gegn pneumókokkasýkingum á 10 ára fresti til handa öllum þeim sem eru eldri en 60 ára og á fimm ára fresti fyrir einstaklinga sem eru í sérstökum áhættuhópum. Sóttvarnalæknir Reykjavík, 15. september 2003 Leiðbeiningar um inflúensubólusetningu Faraldsfræði Inflúensa er veirusýking í loftvegum sem kemur upp árlega hérlendis, einkum á veturna, og stendur í tvo til þrjá mánuði. Erlendar rannsóknir sýna að um 35% barna yngri en tveggja ára og um 20% einstaklinga eldri en 20 ára fá inflúensu á hverju ári (MMWR 2003; 52: 1-36). Afleiðingar inflúensu Alvarlegar afleiðingar inflúensusýkingar sjást einkum hjá einstaklingum eldri en 60 ára, ónæmisbældum einstaklingum, börnum í langvinnri aspirinmeðferð og börnum og fullorðnum með undirliggjandi hjarta- og lungnasjúkdóma (þar á meðal asma), langvinna efnaskiftasjúkdóma (þar á meðal sykursýki) og nýrnasjúkdóma. Inflúensubóluefni á markaði Á íslandi eru fjögur bóluefni gegn inflúensu á markaði í dag sem öll innihalda dauðan mótefnavaka: • Fluarix frá GlaxoSmithKlein • Fluvirin frá Evans Vaccine • Influvac frá Solvay Duphar • Vaxigrip frá Aventis Pasteur MSD Ofangreind bóluefni eru sambærileg hvað varðar virkni og samsetningu nema varðandi thiomersol innihald þar sem Fluarix og Vaxigrip inni- halda nánast ekkert af efninu. Þessi tvö bóluefni henta því vel til notkunar hjá ungum börnum. Virkni inflúensubóluefna Virkni inflúensubóluefna er 60-90% hjá einstaklingum <65 ára (einnig börnum eldri en sex mánaða) en heldur minni hjá eldri einstaklingum. Aukaverkanir Helstu aukaverkanir eru hiti og staðbundin eymsli á stungustað sem algengari eru hjá börnum en fullorðnum. Staðfest ofnæmi fyrir eggjum er frábending gegn bólusetningu. Bólusetning Ráðlagt er að bólusetning hefjist á hverju hausti, venjulega frá mánaðamótum september/október. Börn yngri en níu ára sem ekki hafa verið bólusett áður þurfa tvær sprautur með eins mánaðar millibili. Hverja á að bólusetja? • Alla eldri en 60 ára • Börn (eldri en sex mánaða) og fullorðna o með undirliggjandi hjarta- og lungnasjúkdóma (þar á meðal asma) o sem eru ónæmisbældir o með langvinna efnaskiftasjúkdóma (þar á meðal sykursýki) o börn og unglinga sem taka aspirín að staðaldri (vegna hættu á Reye heilkenni) • Einstaklinga sem sýkt geta aðra sem eru í hættu að fá alvarlega inflúensusýkingu: o starfsfólk á sjúkrahúsum sem annast sjúklinga o starfsfólk á elli- og hjúkrunarheimilum o heimilisfólk þar sem áhættuhópar dvelja Sóttvarnalæknir / september 2003 814 Læknablaðið 2003/89
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.