Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.12.2004, Qupperneq 9

Læknablaðið - 15.12.2004, Qupperneq 9
RITSTJÓRniARQREINAR Ferliverk á FSA í ljósi skýrslu ríkisendurskoðunar í ljósi skýrslu ríkisendurskoðunar þykir rétt að drepa niður penna og útskýra viðhorf undirritaðs sem lækn- ingaforstjóra Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri (FSA) til ferliverkastarfsemi. Ferliverk skilgreini ég sem læknisþjónustu við sjúkling sem sjúklingur þarf á að halda og sú þjónusta er veitt án innlagnar á sjúkra- hús. Liggur þá í augum uppi að um aðgerð getur ver- ið að ræða eða annað inngrip, svo sem magaspeglun eða viðtal við sérfræðing. Augljóslega þarf læknirinn aðstoð annarra heilbrigðistarfsmanna við þessa þjón- ustu en mismikla og stundum enga. Hér á Islandi hef- ur sú hefð komist á að læknar hafa sinnt sjúklingum sem ekki hafa þurft innlagnar við á stofum sínum, sem á seinni árum hafa ekki verið staðsettar á sjúkra- húsunum, og þegið greiðslur frá Tryggingastofnun ríkisins (TR) fyrir unnin verk. Flestir eru sammála um að þjónusta þessi sé þörf, gæði hennar séu mikil og hún virðist ekki dýr. Hins vegar er ljóst að þegar sjúklingur þarf að fara á marga staði á milli sérfræðinga eða í rannsóknir eins og er oft raunin, til dæmis á höfuðborgarsvæðinu, þá getur af því hlotist talsvert óhagræði fyrir sjúklinga og aðstandendur þeirra. Fyrir lækna er þetta líka meiri vinna því þeir þurfa að fara af vinnustað sínum og á stofu og síðast en ekki síst er ljóst að þegar læknirinn er ekki á sjúkrahúsinu er hann ekki aðgengilegur fyrir starfsemi þess. Ríkisendurskoðun hefur fært fyrir því rök að þessi tvískipting sé óhagkvæm í þjóðhagslegu tilliti. Er ekki ólíklegt að það sé rétt þegar tekið er tillit til þess að víða geta tæki og búnaður staðið hálfnýtt. Hér á FSA hefur verið löng hefð fyrir því að lækn- ar hafi samning um rekstur ferliverka inni á sjúkra- húsinu. FSA hefur þá lagt til aðstöðu og þá aðstoð sem þurfa þykir og fyrir það hafa sérfræðingar greitt aðstöðugjald til spítalans auk endurgjalds vegna þess tíma er fer í ferliverkin. Sérfræðingar FSA geta mest verið í 80% starfshlutfalli kjósi þeir að vinna ferli- verk samkvæmt ferliverkasamningi. Samningar við sérfræðingana og reksturinn hefur verið tekin út af Ríkisendurskoðun og ekki gerðar athugasemdir. Við teljum að fyrirkomulag þetta sé gott, sjúklingnum sé veitt öll þjónusta á sama stað, aðstaða nýtist betur og læknirinn hefur aðgengi að sjúkraskrám og því starfs- fólki sem til þarf. Ljóst er að samlegð er með rekstri sjúkrahússins og móttöku sérfræðinga. Ekki vilja allir læknar vinna innan þessa kerfis og hafa kosið fast- launasamning eins og kjarasamningar lækna bjóða. Enginn munur er þó á vinnutilhögun lækna hvoru kerfinu sem þeir tilheyra. Ekki eru þó allir jafnhrifnir af þessu kerfi og er nærtækast að benda á gagnrýni samstarfsmanna lækna, svo sem hjúkrunarfræðinga. Gagnrýnisraddir hafa þó lækkað þegar fólki er ljóst að læknar hafa engin laun ef engin eru verkin. Velta má því fyrir sér hver framtíð slíks kerfis sé. Ég er þeirrar skoðunar að mikilvægt sé að læknar geti valið hvort þeir þiggi fastlaunasamning eða kjósi að vinna verk sín gegn greiðslu fyrir einstök verk. í samkeppnisumhverfi okkar í dag finnst mér eðlilegt og rétt að skilið verði á milli reksturs sjúkrahússins og ferliverkanna þó svo að reksturinn sé allur undir sama þaki. Við það ætti að vera hægt að bjóða verk og þjónustuþætti út í ríkari mæli en gert er. Taka má dæmi eins og sjúkraþjálfun og læknaritaraþjónustu. En engin rós er án þyrna. FSA er gert að greiða fyrir ferliverkin eftir taxta TR en af föstum fjárlögum. Það verður ekki unað við það til langframa að lítill sem enginn sveigjanleiki sé í greiðslufyrirkomulagi og að það geti tekið tvö til þrjú ár að sækja fé til ferliverka á fjárlögum. Skiljanlegt er að greiðandinn vilji stemma stigu við hækkun á kostnaði við heilbrigðisþjónustu en þetta fyrirkomulag gengur ekki. Minni stofnanir á landsbyggðinni hafa ekki bolmagn til þess að veita þessa þjónustu án þess að fé fylgi ferliverkunum. Breytist það ekki í sama fyrirkomulag og er hjá sér- fræðingum er vinna fyrir TR er sjálfhætt með þessa þjónustu inni á sjúkrahúsunum, en við það er sérfræði- þjónusta við sjúklinga á landsbyggðinni í uppnámi. Þorvaldur Ingvarsson Höfundur er bæklunarskurð- læknir og lækningaforstjóri Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri. Læknablaðið 2004/90 829
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.