Læknablaðið - 15.12.2004, Page 44
UMRÆÐA & FRÉTTIR / AF SJÓNARHÓLI STJÓRNAR LÍ
Birna Jónsdóttir
Höfundur er gjaldkeri í stjórn
LÍ.
I pistlunum Af sjónarhóli
stjórnar birta stjórnarmenn
LÍ sínar eigin skoðanir
en ekki félagsins.
Það hringdi til mín sölumaður frá KB banka og bauð
mér óskilyrta ráðgjöf í tryggingamálum. Af því að ég
er svo forvitin stóðst ég ekki mátið og fór í viðtal.
Hann var ansi nærgöngull um viðkvæmustu mál
fjölskyldunnar fannst mér en lofaði fullum trúnaði.
Mér datt í hug að ef til vill liði sjúklingum oft svipað
þegar við erum að yfirheyra þá. Viðtalið var í sama
tilgangi og fyrirbyggjandi læknisfræði, byrgja brunn-
inn et cetera.
Að mörgu leyti var ég dæmigerður viðskiptavin-
ur sagði maðurinn, val mitt á bankastofnun bygg-
ir ekki síst á tilfinningalegum ástæðum. Ég hef haft
minn launareikning í SPRON því þar fékk ég í gamla
daga víxil til að redda mér fram að námsláni eftir að
bankastjóri ríkisbanka hafði neitað mér. Það sem
var skemmtilegt og sjaldgæft við mig var hins vegar
að ég er alveg óvanalega vel tryggð. Hvernig skyldi
nú standa á því? Jú ég gaf mér það í fertugsafmælis-
gjöf að hætta að vinna sextug. Hugmyndina fékk ég
nú ekki hjálparlaust heldur vaknaði þessi vissa innra
með mér við læknaborðið í matsalnum á þáverandi
BSP í Fossvogi þegar mér miklu eldri og reyndari
kollegar komu stynjandi í mat og létu sig dreyma um
starfslok um sextugt. Þegar ég í fávisku minni spurði
af hverju þeir hættu ekki bara að vinna var litið á mig
með fyrirlitningarsvip og sagt: „Það er ekki hægt að fá
útúr lífeyrissjóðnum fyrr en maður er 67.“
Undanfarna áratugi hefur mikið breyst hjá pen-
ingastofnunum, þær eru farnar að ganga á eftir fólki
bjóðandi peninga hægri vinstri með lágmarksvöxtum
og við getum keypt okkur aukalífeyri! En Eva var
ekki lengi í Paradís. Blikur á lofti með lífeyrissjóð-
inn eða hvað? Viðræður eru í gangi milli Lífeyrissjóðs
lækna (LL) og Almenna lífeyrissjóðsins hjá Islands-
banka um sameiningu þessara tveggja sjóða. Þessar
viðræður eru að undirlagi stjórnar LL og ugglaust
bráðnauðsynlegt að fylgjast grannt með þróun mála
á lífeyrismarkaðnum. Þessar breytingar á LL snerta
menn misjafnlega. Og fyrst og fremst maka lækna.
Reyndar skilst mér að samkvæmt ævilíkareglunni
sem segir að konur lifi lengur en karlar sé betra fyrir
kvenkynslækna að af sameiningu verði. Allir félags-
menn ættu að fara yfir sín persónulegu mál og stöðu
hjá LL og reikna út sig og sína fjölskyldu. Fyrir þá
sem eru nettengdir er þetta einfalt til dæmis gegnum
heimasíðu Læknafélagsins. Einnig er hægt að lesa yf-
irlitin sem eru send á vordögum. Ákvörðun um sam-
einingu verður ekki tekin nema á aðalfundi LL og ég
hef njósnað hjá stjórn LL að fyrirhugað sé að setja
reiknivél á netið þar sem menn geta skoðað stöðu
sína í sameinaða sjóðnum ef af verður áður en til
framkvæmda kemur. Hugmyndir hafa verið uppi um
yfirgangslausn varðandi makalífeyri sem er sennilega
viðkvæmasti hluti væntanlegra breytinga. Lokaniður-
staða er engu að síður að hver er sjálfum sér næstur.
The HOUPE study
Minnum lækna á að taka þátt í rann-
sókn á umgjörð og heilsu í starfi lækna
Allir læknar með lækningaleyfi á íslandi þann 30. júní síðastliðinn hafa fengið sent boð um þátttöku í
rannsókn á umgjörð og heilsu í starfi lækna. Bréfinu fylgdi einkennisnúmer til að skrá sig inn á vefsetrið
www.houpe.no og svara spurningalista. Rannsóknin er unnin í samstarfi fjögurra landa en tekur samt mið af
fyrri rannsóknum á læknum hér á landi og þá sérstaklega rannsókn Félags íslenskra heimilislækna á heim-
ilislæknum og Vinnueftirlitsins á læknum Landspítala (sjá fyrri kynningar í september- og októberheftum
Læknablaðsins).
Við hvetjum alla lækna til að svara. Ef vefsvörun hentar ekki má fá spurningalistann sendan á pappír.
Ollum fyrirspurnum um framkvæmd rannsóknarinnar verður svarað af Lilju Sigrúnu Jónsdóttur verkefnis-
stjóra hjá Landlæknisembættinu og starfsmönnum skrifstofu Læknafélags íslands.
Rannsóknarhópurinn
864 Læknablaðið 2004/90