Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.12.2004, Side 45

Læknablaðið - 15.12.2004, Side 45
UMRÆÐA & FRÉTTIR / FRAMHALDSNÁM LYFLÆKNA Framhaldsnám í lyflækningum við Landspítala: Fyrstu deildarlæknarnir útskrifaðir Um miðjan nóvember útskrifuðust fyrstu deildar- læknarnir eftir þriggja ára framhaldsnám á lyflækn- ingasviðum Landspítalans. Þau Hilmar Kjartansson, Guðni A. Guðnason og Sigríður Björnsdóttir hafa stundað nám í almennum lyflækningum og stefna nú á frekara framhaldsnám í útlöndum. Hafist var handa um að koma á fót framhaldsnámi við Landspítalann eftir sameiningu sjúkrahúsanna og eru nú um 20 deildarlæknar skráðir í sérnám í lyflækn- ingum á ýmsum stigum. I námi þeirra er lögð áhersla á að veita þjálfun í undirstöðuþáttum almennra lyf- lækninga og byggja upp klíníska færni, trausta dóm- greind og fagmennsku. Jafnframt eru námslæknar þjálfaðir í vísindastörfum og hvattir til að temja sér sjálfstæða þekkingaröflun. Deildarlæknunum er falin stigvaxandi ábyrgð með hliðsjón af færni þeirra og reynslu. Pegar blaðamaður Læknablaðsins ræddi við hina nýútskrifuðu deildar- lækna hrósuðu þeir ekki síst þeim þætti námsins. Þau hefðu verið farin að stjórna vöktum og starfa sjálfstætt á göngudeild en að sjálfsögðu með það í bakhöndinni að geta leitað stuðnings sérfræðilækna ef á þyrfti að halda. Petta fyrirkomulag bætti líka starfsandann á sjúkrahúsinu vegna þess að það brúaði bil sem oft vill myndast á milli unglækna og sérfræðinga. Pað væri líka gott fyrir sérfræðingana sem fengju meiri örvun við að kenna lengra komnum nemendum. Þegar blaðamaður innti þau eftir því hvað tæki nú við voru svörin á þá leið að Hilmar er á leiðinni til Nýja-Sjálands á næstu vikum þar sem hann ætlar að leggja stund á framhaldsnám í bráðalækningum á sjúkrahúsi í borginni Christchurch á Suðurey. Hann segist fá námið við Landspítalann metið til styttingar á náminu ytra. Þau Guðni og Sigríður eru að þreifa fyrir sér með framhaldsnám en bæði stefna þau í sér- fræðinám í efnaskipta- og innkirtlasjúkdómum, helst á Norðurlöndum eða Bretlandseyjum, hún næsta vor en hann að ári liðnu. Þangað til munu þau starfa hér innanlands. Deildarlœknar á lyflœkningadeildum Landspílala ásamt forstöðumönnum framhaldsmennt- unar. Standandi frá vinstri: Guðni A. Guðnason, Eva Sigvaldadóttir, Runólfur Pálsson, ína K. Ögmundsdóttir, Friðbjörn Sigurðsson, Þórður Harðarson, Steinn Jónsson, Kristján Erlendsson, Oddur Steinarsson, Berglind Libungan og Ragnheiður Halldórsdóttir. Sitjandi frá vinstri: Guðrún B. Reynisdóttir, Hilmar Kjartansson, Vilhelmína Haraldsdóttir, Hjalti M. Björnsson og Lovísa Leifsdóttir. Þau voru sammála um að það væri ótvíræður kostur fyrir unglækna að hafa val um það hvort þeir hefja framhaldsnám hér á landi eða fara strax utan. Ekki síst væri þetta góður kostur fyrir fjölskyldufólk því þetta stytti þann tíma sem það þyrfti að dvelja í útlöndum. Þeir sem fara til Norðurlanda til náms í undirsérgrein fá þetta nám metið að fullu og þá tekur nám þeirra ytra ekki nema þrjú eða fjögur ár. Þá nýtt- ist þessi kostur þeim læknum sem hyggja á framhalds- nám í öðrum greinum en lyflækningum því í mörgum sérgreinum væri gerð krafa um að læknar taki hluta af sínu framhaldsnámi á lyflækningadeild. Það var Steinn Jónsson framhaldsmenntunarstjóri lyflækningasviða sem útskrifaði þremenningana og óskaði þeim velfarnaðar í frekara námi og starfi. Deildarlœknarnir nýútskrifuðu, Hilmar Kjartansson nœstur, þá Sigríður Björns- dóttir og Guðni A. Guðnason fjœrstur. Ljósm. Þórdís Ágústsdóttir. Læknablaðið 2004/90 865

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.