Læknablaðið - 15.12.2004, Síða 47
UMR/EÐA & FRÉTTIR / KOSTNAÐARGRElNI NG HEILBRIGÐISÞJÓNUSTU
eyri og 4300 í Salahverfi. Pað virðist því ekki vera eft-
ir miklu að slægjast með því að koma á tilvísanakerfi
ef ætlunin er að halda niðri kostnaði.
Pað er hins vegar talsverður munur á kostnaði við
komu til sérfræðings á stofu annars vegar og hins veg-
ar á göngudeild sjúkrahússins, í sumum tilvikum tvö-
faldur og jafnvel þrefaldur. Vissulega getur þjónustan
sem veitt er verið misjöfn, á því hefur ekki verið gerð
sérstök úttekt, en þeir sem vinna jöfnum höndum á
báðum stöðum sjá sjaldnast mikinn mun á þjónust-
unni. Skýringar á þessum kostnaðarmun er hins veg-
ar að leita í því að það er miklu fleira starfsfólk sem
tengist þjónustu göngudeildanna - hjúkrunarfræðing-
ar, sálfræðingar, félagsráðgjafar, fótasérfræðingar og
fleiri stéttir. Skýrsluhöfundar skoðuðu launahlutann
og aðra mikilvæga kostnaðarliði í þessari þjónustu og
mér sýnast niðurstöðurnar vera mjög ábyggilegar.
Af þessu má draga þá ályktun að ef stefnan á að
vera sú að beina sem mestu af ferliverkunum inn á
spítalann frá sérfræðiþjónustunni þá muni það leiða
til aukins kostnaðar. Petta er athyglisverðasta niður-
staða skýrslunnar fyrir okkur sem störfum við það að
veita læknisþjónustu utan sjúkrahúsanna.“
Eins og nefnt er hér að ofan gera skýrsluhöfundar
talsvert úr því hversu erfitt er um allan samanburð
enda kom í ljós þegar skýrslan var birt að menn fóru
strax að deila um forsendurnar fyrir útreikningum
þeirra. Spurningin er því hvort ekki sé um svo ólíka
hluti að ræða að seint verði þeir bornir saman svo öll-
um þyki sanngjarnt og réttlátt.
„Vissulega getur verið erfitt að bera saman heilsu-
gæsluna og sérfræðiþjónustuna en þó er viss skörun
verkefna og ákveðin vandamál sem koma inn á borð
beggja. Hagfræðistofnun reyndi einmitt að meta þann
þátt út frá taxta beggja rekstrarforma. Samanburður
sérfræðiþjónustunnar og spítalans er heldur ekki auð-
veldur en þó er hægt að nálgast hann með því að nota
svokallað DRG-kerfi sem nú er að ryðja sér til rúms
á spítalanum. Með því á að fást réttur samanburður."
Allt gegnsætt í sérfræðiþjónustunni
Steinn sagði að læknastöðvarnar hefðu ekki innleitt
DRG-kerfið í rekstri sínum, enda væri það kostnað-
arsamt. Hins vegar hefði komið í ljós þegar Hagfræði-
stofnun fór að afla sér upplýsinga um sérfræðiþjón-
ustuna að þær lágu allar fyrir hjá Tryggingastofnun.
„Það tók skýrsluhöfunda ekki nema tvær eða þrjár
vikur að ná utan um allan kostnað sérfræðiþjónust-
unnar en allar tölur um kostnað spítalans og heilsu-
gæslunnar voru erfiðari viðfangs, bæði að afla þeirra
og túlka þær. Petta er því allt miklu gegnsærra í sér-
fræðiþjónustunni, kostnaðurinn liggur fyrir og það er
búið að takast á um hann yfir samningaborðið.
í því sambandi er rétt að nefna að taxtarnir sem
eru í gildi hjá sérfræðiþjónustunni eru lágir og lægri
en gerist og gengur í nágrannalöndunum. Það helgast
af því að í gildi er samningur milli sérfræðilækna og
Tryggingastofnunar sem er báðum aðilum til hags-
bóta. Grundvallaratriði hans eru þau að almenning-
ur hefur greiðan aðgang að sérfræðiþjónustu sem er
ódýr en Tryggingastofnun borgar sinn hluta reikning-
anna að fullu. Sérfræðingar hafa sinnt stórum hluta
utanspítalaþjónustunnar á stofunum í hagkvæmu
rekstrarumhverfi. Þetta fyrirkomulag hefur þjónað
landsmönnum vel.“
- Nú liggur þessi skýrsla fyrir, hvernig hyggist þið
nota hana?
„Skýrslan staðfestir það sem læknasamtökin hafa
haldið fram um árabil, sem sé að sérfræðiþjónusta sem
rekin er af læknum sé hagkvæm. Hún styrkir okkur í
málflutningi okkar og hún er samin af óháðum aðil-
um. Sú fullyrðing Ríkisendurskoðunar að það mundi
sparast mikið fé við það að flytja sérfræðiþjónustuna
inn á sjúkrahúsin virðist ekki standast. Þjónustan yrði
þvert á móti dýrari og auk þess ópersónulegri því yfir-
leitt koma sjúklingar aftur og aftur til sama læknis á
stofu en það er engin trygging fyrir því að svo sé á
spítalanum. Þess vegna eru gæðin betri.
Þetta er engin endanleg niðurstaða en ég held að
þegar samninganefnd heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðuneytisins skoðar þessa skýrslu muni hún sjá að
samningarnir sem hún hefur gert við sérfræðilækna
eru mjög góðir. Hún mun því væntanlega greiða fyr-
ir því farsæla sambandi sem verið hefur og draga úr
þeim vandræðagangi sem hefur viljað einkenna samn-
ingagerðina. Stjórnmálamenn hljóta lfka að draga
sína lærdóma af þessari skýrslu. Þeir ættu að sjá núna
við hverja er hagkvæmt að skipta.
Ég vil taka það fram að ég ber hag spítalans einnig
fyrir brj ósti og vissulega þarf hann að byggj a upp öfluga
göngudeildarþjónustu, ekki síst svo hann geti gegnt
kennslu- og fræðahlutverki sínu með sóma. Hann
getur hins vegar ekki keppt við sérfræðiþjónustuna
hvað hagkvæmni snertir," sagði Steinn Jónsson.
Steinn Jónsson lungna-
lœknir og talsmaður Delfí
sem eru samtök einkarek-
inna lœknastöðva.
Ljósm. Þórdís Ágústsdóttir.
Læknablaðið 2004/90 867