Læknablaðið - 15.12.2004, Side 87
MINNISBLAÐIÐ
Ráðstefnur og fundir
4.-5. janúar 2005
í Öskju, Reykjavík.
Ráðstefna [ HÍ um rann-
sóknir í líf- og heilbrigð-
isvísindum á vegum
læknadeildar, tannlækna-
deildar, lyfjafræðideildar og
hjúkrunarfræðideildar HÍ.
Heimasíða: www.hi.is/naml
visindanefnd - skráning:
www.birna.is
- nánar hjá framkvæmda-
stjóra: birna@birna.is
21-22.febrúar
Uppsölum, Sviþjóð.
Workshop on Peritoneal
Surface Malignancy. Allar
frekari upplýsingar á www.
akademikonferens. uu.se/pe-
ritoneaicarcinosworkshop
4.-5. mars
Amelia-eyju, Flórída.
Physical Medicine & Rehab-
ilitation for Clinicians, nám-
skeið á vegum Mayo Clinic,
College of Medicine. Nánari
upplýsingar á
www.mayo.edu
14.-15. mars
Parfs, Frakklandi.
Ráðstefna á vegum Unesco:
Out of hospital emergency
medical services, málefnið
er: Move towards integr-
ation across Europe. Allar
frekari upplýsingar á heima-
síðunni: www.hesculaep.org
20. mars-2. apríl
Flórens, Ítalíu.
Alþjóðlegur fundur um
öryggi sjúklinga: Healthcare
systems ergonomics and
patient safety. Human
factors, a bridge between
care and cure. Nánari upp-
lýsingar á slóðinni: www.
heps2005.org
6.-9. apríl
Aþenu, Grikklandi.
Árlegur fundur ESCI, Eu-
ropean Society for Clinical
Investigation, - allar nánari
upplýsingar á slóðinni www.
esci.eu.com
15.-18. júní
Stokkhólmi, Svíþjóð.
Norrænt þing heimilislækna,
hið 14. í röðinni. Nánar á
heimasíðunni:
www. allmanmedicin. nu/
congress
Hin margumrædda vinnutímatilskipun
Á stjórnarfundi hjá evrópsku læknasam-
tökunum í nóvember sl. var fjallað um endur-
skoðun á vinnutímatilskipun í Evrópu en eins
og læknar vita snertir hún okkur verulega.
Læknar hafa reynt að hafa áhrif á gang mála
og unglæknar látið sérstaklega í sér heyra. Evr-
ópusamtök lækna mörkuðu ákveðna stefnu í
marz 2004 en málinu er greinilega ekki lokið.
Brezkir læknar eru til dæmis ekki alls kostar
sáttir, a.m.k. hafa sérfræðingar á sjúkrahúsum
lýst sig andvíga undanþáguklausu þeirri sem
kölluð er „opt out“. Sama sinnis virðast þýzkir
spítalalæknar og munu almennir sérfræðing-
ar á sjúkrahúsum í Pýzkalandi vera um 60%
læknahópsins þar.
Undanþáguákvæðið „opt out“ á við um
hvíldartíma meðan á vakt stendur, það er að
segja hve langur tími vaktar teljist vera raun-
veruleg vakt og hve langur hvfld. Eldri lækn-
ar/yfirlæknar munu vera undanþegnir hvort
sem er þar sem þeir ráða sínum tíma meira
eða taka ekki vaktir. Sett var fram sú spurning
hvort þeir sem skrifuðu tilskipunina viti yfir-
leitt nokkuð hvað þeir voru að gera? Hvort 5
mín. hvfld milli sjúklinga meðan læknir er á
vakt eigi að draga frá vinnutímanum? Eða þá
ef hann skyldi hafa hlé í hálftíma?
Þá komu fram þau sjónarmið á fundinum að
8 tíma svefn á spítala væri alls ekki það sama og
að sofa heima. Þegar vitnað er til annarra stétta
sem taka vaktir, svo sem slökkviliðsmanna og
hjúkrunarstétta, þá gildir annað um það fólk
því læknar eru oftast með dagvinnutíma plús
vaktir en hinir með vinnutíma á vöktum. Sjá
CPME Info 2004/179: 5. Reynt hefur verið að
setja inn í tilskipunina að 72 tímar megi líða
þar til læknir fær hvfld eftir vakt. Spítalinn eigi
að geta seinkað vaktafríi um þrjá sólarhringa
ef þannig stendur á. Þessu er harðlega mót-
mælt og menn telja eðlilegt og nauðsynlegt að
fá hvfldartíma strax eftir að vakt lýkur. Menn
voru nokkuð tvístígandi í því hver niðurstaðan
ætti að vera. Stefna CPME er skýr, en í henni
kemur samt ekki allt fram, m.a. ekki þetta
með 72 tímana. I sumum löndum eða á sum-
um stöðum hefur verið samið milli lækna og
yfirvalda um undanþáguklausuna „opt out“.
Sé svo þá eru þessir þrír dagar ekkert vanda-
mál og ekki þörf á tilskipun frá Evrópu um þá.
Á móti kemur að sameiginleg Evrópustefna
gæti þýtt betri stöðu til að semja um hlutina
heima fyrir. Niðurstaða á stjórnarfundi CPME
var eftirfarandi: CPME stefnan skal standa
en við þarf að bæta klausu um 72 tímana. Til-
lagan sem samþykkt var hljóðar svo: Hvað
læknastéttina varðar þarf að vera hægt að taka
vaktafrí strax að vakt lokinni, nema aðilar hafi
sameiginlega komizt að öðru samkomulagi (e.
As far as the medical profession is concerned,
compensatory rest needs to be taken immed-
iately after the work period unless otherwise
decided by collective agreement).
Katrín Fjeldsted
Frágangur
fræðilegra greina
Hiifundar sendi tvær gerð-
ir handritu til ritstjórnar
Læknablaðsins, Hlíðasmára
8, 201 Kópavogi. Annað án
nafna höfunda, stofnana og
án þakka sé um þær að ræða.
Greininni fylgi yfirlýsing þess
efnis að allir höfundar séu
samþykkir lokaformi greinar
og þeir afsali sér birtingarrétti
til blaðsins.
Handriti skal skilað með tvö-
földu línubili á A-4 blöðum.
Hver hluti skal byrja á nýrri
blaðsíðu í eftirtalinni röð:
• Titilsíða: höfundar, stofnanir,
lykilorð á ensku og íslensku
• Ágrip og heiti greinar á ensku
• Ágrip á íslensku
• Meginmál
• Þakkir
• Heimildir
Tcillur og myndir skulu vera á
ensku eða íslenskum, að vali
höl'unda.
Tölvuunnar inyndir og gröf
komi á rafrænu formi ásamt
útprenti. Tölvugögn (data) að
baki gröfum fylgi með, ekki
er hægt að nýta myndir úr
PowerPoint eða af netinu.
Eftir lokafrágang berist allar
greinar á tölvutæku formi með
útprenti.
Sjá upplýsingar um frágang
fræðilegra greina:
u'h'h'. laekrwbladid. is
Umræðuhluti
Skilafrestur efnis í næsta blað
er 20. undanfarandi mánaðar
nema annað sé tekið fram.
Læknabladid 2004/90 907