Læknablaðið - 15.06.2005, Side 9
RITSTJÖRNARGREiniAR
Sérnám á íslandi
Hlutverk og gildi sérmenntunar í læknisfræði hefur
vaxið jafnt og þétt undanfarna áratugi. Flestir
starfandi sérfræðingar á Islandi hafa numið er-
lendis og borið allan kostnað og fyrirhöfn af sér-
námi sínu sjálfir. Petta er athyglisvert í ljósi þess
lykilhlutverks sem þeim er falið að námi loknu við
greiningu og meðferð sjúklinga, kennslu heilbrigð-
isstétta og stjórnun.
A Islandi er þegar kominn vísir að sérnámi í
nokkrum greinum en undanfarin misseri hefur
verið talsverð umræða um eflingu þess. Undirrót
umræðunnar er meðal annars sú að nokkru erf-
iðara virðist fyrir unglækna að komast að í sérnám
í Skandinavíu og Bandaríkjunum en áður var.
Ráðningarbönn í Skandinavíu í sparnaðarskyni
og fjölgun prófa ásaml banni við aukavinnu í
Bandaríkjunum eru dæmi um þætti sem gera
unglæknum erfiðara fyrir. Kostnaður erlendra
háskóla og sjúkrastofnana við skipulag og eftirlit
með sérnámi er mikill og ekki við öðru að búast
en að þær taki síður við erlendum læknum til
náms þegar kreppir að. Samhliða þessum þreng-
ingum ytra hefur nýtt háskólasjúkrahús verið sett
á laggirnar á Islandi og einnig hefur verið mikill
kraftur í sérnámi í heimilislækningum. Sérnám
eða framhaldsnám í heilbrigðisgreinum er einn
af hornsteinum háskólasjúkrahúsa og því eðlilegt
að efla mjög slíka starfsemi innan Landspílalans.
En efling sérnáms mun kosta fé og fyrirhöfn og
huga þarf vel að forsendum hennar, svo sem hæfni
kennara, aðstöðu, samvinnu við sérgreinafélög og
læknadeild, eftirliti, endurskoðun, tengslum við er-
lendar stofnanir, og síðast en ekki síst áhuga ungra
lækna á að stunda námið.
í þessu tölublaði Læknablaðsins birtast niður-
stöður nýlegrar könnunar á áhuga læknanema
og unglækna á sérnámi á íslandi. Þó svo að svar-
hlutfall hafi verið í lægra lagi bendir könnunin til
áhuga meðal læknanema og unglækna á að stunda
fyrri hluta sérnáms á Islandi og seinni hluta þess
erlendis. Ástæður til þess að velja eingöngu nám
erlendis voru að þar væri að finna fleiri rannsókna-
tækifæri og fjölbreyttari sjúkratilfelli en á íslandi.
Þessar ástæður verða ekki dregnar í efa en hins
vegar skal bent á vaxandi grósku í lífvísindarann-
sóknum hérlendis og skipulag rannsóknatengds
náms við læknadeild sem samtvinna má við klín-
ískt nám. Niðurstöður könnunarinnar vekja ýmsar
spurningar um núverandi skipulag sérnáms á
Islandi og framtíðaráform í þeim efnum.
Vinnureglur framhaldsmenntunarráðs lækna-
deildar gera ráð fyrir að skipulag náms í hverri
sérgrein sé í umsjón nefndar þar sem sæti eiga
fulltrúi sérgreinafélags, fulltrúi viðkomandi fræða-
sviðs innan HI og fulltrúi Landspítala eða þeirrar
stofnunar sem hýsir námið. Slík sérnámsnefnd
ber ábyrgð á marklýsingum og framkvæmd náms
í hverri grein fyrir sig. Eftirlit með störfum slíkra
nefnda og ráðgjöf er hins vegar í höndum fram-
haldsmenntunarráðs samkvæmt reglugerð. Ef til
vill væri æskilegt að yfirvöld heilbrigðis- og/eða
menntamála hefðu eftirlit með sérnámi hérlendis
en vandað eftirlit er forsenda þróunar sérnáms. Því
er meðal annars ætlað að tryggja að ekki sé ráðist
í skipulagningu sérnáms í greinum sem hafa enga
burði til þess, svo sem vegna fárra kennara eða
aðstöðuleysis. Einnig er ljóst að svo mikil vinna er
fólgin í sífelldri endurskoðun skipulags og eftirlits
með sérnámi að hún verður aðeins ynnt af hendi
með mikilli og stöðugri þátttöku opinberra aðila.
Eðlilegt væri að hið opinbera tæki meiri þátt í
vinnu og kostnaði við slíkt skipulag sérnáms en
verið hefur hingað til og í raun með endemum að
læknar hafi axlað þessar byrðar einir.
Breyttar aðstæður hér heima og erlendis kalla
á nýjar hugmyndir um skipulag sérnáms lækna. Til
þess að tryggja aðgengi unglækna að sérnámi af
bestu gerð og um leið veita landsmönnum bestu
mögulega læknisþjónustu væri farsælt að fyrri hluti
sérnáms í völdum greinum færi fram á Islandi en
seinni hluti þess við erlendar stofnanir. Með því
móti nýttist tími unglækna vel strax eftir útskrift
úr læknadeild, Landspítali og aðrar stofnanir nytu
krafta unglækna meira með margvíslegum jákvæð-
um áhrifum á starfsemina og síðast en ekki síst
fengist eftir sem áður verðmæt klínísk og vísinda-
leg reynsla erlendis.
Hlöðum á grundvöll afhérlendri menning
því heilbrigða, lífvœna í erlendri kenning.
Úr Ijóðinu Kveðja Skírnis eftir Einar Benediktsson
Ólafur Baldursson
Höfundur er lungnalæknir
og framkvæmdastjóri
framhaldsmenntunarráðs
læknadeildar HÍ.
Læknablaðið 2005/91 497