Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.06.2005, Page 9

Læknablaðið - 15.06.2005, Page 9
RITSTJÖRNARGREiniAR Sérnám á íslandi Hlutverk og gildi sérmenntunar í læknisfræði hefur vaxið jafnt og þétt undanfarna áratugi. Flestir starfandi sérfræðingar á Islandi hafa numið er- lendis og borið allan kostnað og fyrirhöfn af sér- námi sínu sjálfir. Petta er athyglisvert í ljósi þess lykilhlutverks sem þeim er falið að námi loknu við greiningu og meðferð sjúklinga, kennslu heilbrigð- isstétta og stjórnun. A Islandi er þegar kominn vísir að sérnámi í nokkrum greinum en undanfarin misseri hefur verið talsverð umræða um eflingu þess. Undirrót umræðunnar er meðal annars sú að nokkru erf- iðara virðist fyrir unglækna að komast að í sérnám í Skandinavíu og Bandaríkjunum en áður var. Ráðningarbönn í Skandinavíu í sparnaðarskyni og fjölgun prófa ásaml banni við aukavinnu í Bandaríkjunum eru dæmi um þætti sem gera unglæknum erfiðara fyrir. Kostnaður erlendra háskóla og sjúkrastofnana við skipulag og eftirlit með sérnámi er mikill og ekki við öðru að búast en að þær taki síður við erlendum læknum til náms þegar kreppir að. Samhliða þessum þreng- ingum ytra hefur nýtt háskólasjúkrahús verið sett á laggirnar á Islandi og einnig hefur verið mikill kraftur í sérnámi í heimilislækningum. Sérnám eða framhaldsnám í heilbrigðisgreinum er einn af hornsteinum háskólasjúkrahúsa og því eðlilegt að efla mjög slíka starfsemi innan Landspílalans. En efling sérnáms mun kosta fé og fyrirhöfn og huga þarf vel að forsendum hennar, svo sem hæfni kennara, aðstöðu, samvinnu við sérgreinafélög og læknadeild, eftirliti, endurskoðun, tengslum við er- lendar stofnanir, og síðast en ekki síst áhuga ungra lækna á að stunda námið. í þessu tölublaði Læknablaðsins birtast niður- stöður nýlegrar könnunar á áhuga læknanema og unglækna á sérnámi á íslandi. Þó svo að svar- hlutfall hafi verið í lægra lagi bendir könnunin til áhuga meðal læknanema og unglækna á að stunda fyrri hluta sérnáms á Islandi og seinni hluta þess erlendis. Ástæður til þess að velja eingöngu nám erlendis voru að þar væri að finna fleiri rannsókna- tækifæri og fjölbreyttari sjúkratilfelli en á íslandi. Þessar ástæður verða ekki dregnar í efa en hins vegar skal bent á vaxandi grósku í lífvísindarann- sóknum hérlendis og skipulag rannsóknatengds náms við læknadeild sem samtvinna má við klín- ískt nám. Niðurstöður könnunarinnar vekja ýmsar spurningar um núverandi skipulag sérnáms á Islandi og framtíðaráform í þeim efnum. Vinnureglur framhaldsmenntunarráðs lækna- deildar gera ráð fyrir að skipulag náms í hverri sérgrein sé í umsjón nefndar þar sem sæti eiga fulltrúi sérgreinafélags, fulltrúi viðkomandi fræða- sviðs innan HI og fulltrúi Landspítala eða þeirrar stofnunar sem hýsir námið. Slík sérnámsnefnd ber ábyrgð á marklýsingum og framkvæmd náms í hverri grein fyrir sig. Eftirlit með störfum slíkra nefnda og ráðgjöf er hins vegar í höndum fram- haldsmenntunarráðs samkvæmt reglugerð. Ef til vill væri æskilegt að yfirvöld heilbrigðis- og/eða menntamála hefðu eftirlit með sérnámi hérlendis en vandað eftirlit er forsenda þróunar sérnáms. Því er meðal annars ætlað að tryggja að ekki sé ráðist í skipulagningu sérnáms í greinum sem hafa enga burði til þess, svo sem vegna fárra kennara eða aðstöðuleysis. Einnig er ljóst að svo mikil vinna er fólgin í sífelldri endurskoðun skipulags og eftirlits með sérnámi að hún verður aðeins ynnt af hendi með mikilli og stöðugri þátttöku opinberra aðila. Eðlilegt væri að hið opinbera tæki meiri þátt í vinnu og kostnaði við slíkt skipulag sérnáms en verið hefur hingað til og í raun með endemum að læknar hafi axlað þessar byrðar einir. Breyttar aðstæður hér heima og erlendis kalla á nýjar hugmyndir um skipulag sérnáms lækna. Til þess að tryggja aðgengi unglækna að sérnámi af bestu gerð og um leið veita landsmönnum bestu mögulega læknisþjónustu væri farsælt að fyrri hluti sérnáms í völdum greinum færi fram á Islandi en seinni hluti þess við erlendar stofnanir. Með því móti nýttist tími unglækna vel strax eftir útskrift úr læknadeild, Landspítali og aðrar stofnanir nytu krafta unglækna meira með margvíslegum jákvæð- um áhrifum á starfsemina og síðast en ekki síst fengist eftir sem áður verðmæt klínísk og vísinda- leg reynsla erlendis. Hlöðum á grundvöll afhérlendri menning því heilbrigða, lífvœna í erlendri kenning. Úr Ijóðinu Kveðja Skírnis eftir Einar Benediktsson Ólafur Baldursson Höfundur er lungnalæknir og framkvæmdastjóri framhaldsmenntunarráðs læknadeildar HÍ. Læknablaðið 2005/91 497

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.