Læknablaðið - 15.06.2005, Page 51
UMRÆÐA & FRÉTTIR / STJÓRNUNARVANDI LANDSPÍTALA
læknaráðs að það telji að um sé að ræða samskipta-
vanda stjórnenda LSH og læknaráðs LSH" sem
ráðherra hvetur aðila máls til að setja niður hið
fyrsta.
Þessi túlkun er læknuni sjúkrahússins ekki alls-
endis að skapi. Þeir telja að um sé að ræða meiri
ágreining en svo að hægt sé að afgreiða hann sem
samskiptavanda. Benda þeir á að læknar hafi á
fimmta ár beðið eftir því að ná tali af stjórnendum
spítalans til að ræða um skipulagsmálin en ekki
fengið áheyrn. Bréfum hafi varla verið svarað, til-
lögur læknaráðs hundsaðar og málefnalegum álits-
gerðum lögfræðinga jafnvel stungið undir stól.
Sviðstjórar í brennidepli
Þetta er saga málsins í stórum dráttum en spurn-
ingunni um kjarnann hefur enn ekki verið svarað.
I bréfi sem Friðbjörn Sigurðsson formaður lækna-
ráðs sendi Jóhannesi M. Gunnarssyni settum
forstjóra 22. apríl síðastliðinn er ágreiningurinn
reifaður og tillögur ráðsins til lausnar útskýrðar
ítarlega. Þar segir formaðurinn að meginágrein-
ingsefnið „virðist felast í því að hve miklu leyti
fagleg sjónarmið eigi að ráða við stjórnun sjúkra-
hússins".
Staða sviðstjóranna hefur verið í brennidepli og
í henni kristallast ágreiningurinn. Astæðan er sú
að yfirlæknar eru ráðnir samkvæmt lögum og hafa
skýrt afmarkað hlutverk sem faglegir stjórnendur.
Verksvið sviðstjóra eins og það hefur verið skil-
greint af framkvæmdastjórn og forstjóra skarast
hins vegar að nokkru leyti við hlutverk yfirlækna.
Yfirlæknar þurfa að bera ýmsar ákvarðanir undir
sviðstjóra sem í mörgum tilvikum hafa endanlegt
ákvörðunarvald um hluti sem áður voru á valdi
yfirlækna.
Yfirlæknar efast lika um lagalega stöðu svið-
stjóra. Að þeirra dómi eru sviðstjórar undanþegnir
venjulegu ráðningarferli þar sem stöður eru aug-
lýstar og umsækjendur þurfa að fara í hæfnismat.
Hafa þeir fengið lögfræðiálit sem styður þetta
sjónarmið. Framkvæmdastjórnin kannaðist lengi
vel ekki við að hafa séð þetta álit sem þeim var þó
afhent á formlegum fundi. Yfirlæknarnir sneru sér
þá til ráðherra sem svaraði því til að hann hefði
staðfest skipulag spítalans og þar með væri staða
sviðstjóra lögleg.
kjarni starfseminnar. Þar af leiðandi sé eðlilegast
að gera sérgreinarnar að grunneiningum í rekstri
spítalans. Lögin geri enda ráð fyrir þeirri skipan.
Þörfin fyrir ýmiss konar stoðþjónustu, þar með
talin stjórnun og fjárhagsumsýsla, sé leidd af lækn-
ingaþættinum og ef stjórnendur sjúkrahússins vilji
lála starfsemina blómstra verði þeir að taka miklu
meira tillit til sérgreinanna.
Þeir telja að núverandi skipan spítalans ein-
kennist af alltof mikilli miðstýringu. Efst tróni
forstjórinn sem hafi raðað í kringum sig handvöldu
fólki sem myndi skjaldborg um hann og einangri
hann þar með frá daglegri starfsemi spítalans. Veik
staða sviðstjóra geri þá óeðlilega handgengna for-
stjóranum og því þurfi fagleg sjónarmið lækna að
víkja fyrir rekstrarlegum sjónarmiðum stjórnenda-
lagsins.
Þeir sem þannig tala hafna því þó alls ekki að
nauðsynlegt sé að hafa sviðstjóra. Á mörgum svið-
um sé nauðsynlegt að hafa samráð um sameiginleg
verkefni sem ná til margra sérgreina. Sú hugmynd
virðist hins vegar hafa töluvert fylgi meðal lækna
að sviðstjórar skuli vera faglegir leiðtogar sem vald-
ir eru úr hópi yfirlækna og gegni stöðunni tíma-
bundið, til dæmis eitt ár í senn. Með því móti haldi
þeir faglegu sjálfstæði sínu, auk þess sem árekstrar
við yfirlækna ættu þá að minnka.
Eiríksstaðir eru aðsetur
stjómar Landspítala. Er
rót stjórnunarvandans þar
að leita eða úti á deildum
sjúkrahússins?
Snúum þessu á hvolf!
Eflaust er nokkur munur á afstöðu lækna við spít-
alann til stjórnskipulagsins en þeir eru til sem vilja
einfaldlega taka skipuritið og snúa því á hvolf. Þeir
segja að fólk komi á spítalann til að leita sér lækn-
inga í víðum skilningi og þess vegna séu lækningar
Fagmennska og rekstur
Það sem gerir þennan ágreining harðari og erfiðari
úrlausnar en vera þyrfti er sú staðreynd að gela
heilbrigðiskerfisins er orðin miklu meiri en stjórn-
völd eru reiðubúin að greiða fyrir. Afleiðingin er
aukin krafa um niðurskurð, forgangsröðun, sparn-
að og aðhald í rekstri. Útgjöld spítalans ráðast fyrst
Læknablaðið 2005/91 539