Læknablaðið - 15.06.2005, Qupperneq 55
UMRÆÐA & FRETTIR / HEILSUVERND BARNA
sjúkdóma sem kallar á ný vinnubrögð í heilsuvernd
barna (7). Nú er í boði sérstök móttaka á MHB
fyrir börn innflytjenda, í kjölfar skimunar á göng-
udeild smitsjúkdóma á Barnaspítala Hringsins.
Auk þessa er þörf á viðeigandi fræðsluefni á er-
lendum tungumálum. Starfsfólk hefur tekið slíkt
efni saman og sent út á heilsugæslustöðvarnar, auk
þess að hafa forgöngu um að það sé þýtt og að-
gengilegt á netinu. MHB er einnig í samstarfi við
aðra aðila sem koma að þjónustu við þennan hóp
landsmanna, til dæmis Alþjóðahúsið í Reykjavík,
Reykjavfkurteymi um málefni erlendra ríkisborg-
ara og Fjölmenningarsetrið á Vestfjörðum.
Svið þroska- og hegðunar
Þroska- og hegðunarsvið MHB er að grunni til
byggt á starfi greiningarteymis. Tilvist þess og
árangur í starfi er ein birtingarmynd mikilvægis
þverfaglegrar og miðlægrar þjónustu í heilsuvernd
barna.
Þroska- og hegðunarsvið MHB
- Helstu markmið
• Aðgengileg og skilvirk frumgreining þroska-
frávika.
• Stuðla að þverfaglegri ung- og smábarnavernd
fyrir fyrirbura svo þeir nái sem mestum líkam-
legum, andlegum og félagslegum þroska,
óháð búsetu.
• Auka vellíðan og lífsgæði fjölskyldna með ætt-
leidd börn.
Greining og ráðgjöf
Allt vinnuferli heilsuverndar barna felur í sér
skimun á frávikum, þar með talið á vexti og
þroska. Með tilkomu greiningarteymis MHB
árið 1998 býðst foreldrum skipulegt ferli innan
heilsugæslunnar fyrir frekari greiningu þegar grun-
ur vaknar um þroskafrávik hjá börnum þeirra.
Vinnur þverfaglegt teymi starfsmanna á grunni til-
vísana frá heilsugæslulæknum og fleiri fagaðilum,
mest á þjónustusvæði Heilsugæslunnar en einnig
nágrannabyggðum og einstaka frá landsbyggðinni.
Teymið hefur gott og náið samband við aðila í
umhverfi barnsins, til dæmis leikskóla og félags-
þjónustuna auk þeirra sem koma að frekari grein-
ingu á vanda barnsins, svo sem Greiningar- og
ráðgjafarstöð ríkisins. Starfsfólk teymisins hefur
einnig ferðast út á land þegar slík teymi hafa verið
í þróun í héraði.
Fyrirburar
Á íslandi fæðast árlega um 30-40 fyrirburar með
fæðingarþyngd minni en 1500 g, af þeim um það
bil 10-15 með fæðingarþyngd minni en 1000 g. Má
segja að um sé að ræða nýjan hóp barna sem nýtur
þjónustu heilsuverndar barna, sérstaklega minnstu
fyrirburarnir, þar sem flestir þeirra létust fljótlega
eftir fæðingu fyrir um tveimur áratugum síðan.
Rannsóknir hér á landi (8) og erlendis (9) sýna að
þessi börn eiga við margvíslegan vanda að stríða,
sérstaklega hvað varðar þroska og gætir þess
langt fram á skólaaldur. Brýnt er að efla þjónustu
heilsugæslunnar við þessi börn og foreldra þeirra
og er undirbúningur hafinn að miðlægri þjónustu
á MHB.
Ættleidd börn
Um árabil hefur fjöldi erlendra ættleiddra barna
komið hingað til lands. Þau hafa mörg átt æsku
sem getur valdið vanda síðar á lífsleiðinni á sviði
þroska og hegðunar (10). Vinna er hafin að því að
skoða kosti þess að bjóða ættleiddum börnum og
foreldrum þeirra sérstaka jijónustu á MHB með
skipulegum skoðunum og þroskamati.
Geðheilbrigðisþjónusta
I nýútkominni skýrslu um geðheilbrigðisþjónustu
fyrir börn (11) var lagt til að MHB tæki í auknum
mæli að sér þjónustu við börn og unglinga með
geðraskanir. Með sérstökum stuðningi ráðuneytis
heilbrigðismála er til umræðu að auka geðheil-
brigðisþjónustu MHB, til dæmis við börn sem eru
í skoðun í greiningarteyminu en einnig að bjóða
þjónustu fyrir börn með hegðunarvanda við upp-
haf grunnskólans.
Rannsóknir
Starfsfólk MHB hefur tekið þátt í margs konar
rannsóknum á sviði heilsuverndar barna. Löng
hefð er fyrir samstarfi um rannsóknir á bóluefnum,
til dæmis gegn pneumókokkum (12) og áhrifum
MMR á þarmaslímhúð (13). Rannsóknum á
fræðslu (5,14,15) og þjónustu heilsuverndar barna
(2,16-18) hefur verið sinnt í vaxandi mæli og lækna-
nemar hafa unnið nokkur verkefni í samvinnu við
starfsfólk (19-22). MHB var um tíma gestastofnun
mannfræðilegrar rannsóknar um litla fyrirbura
með fæðingarþyngd minni en 1000 g (23, 24). í
samvinnu við umboðsmann barna gaf stofnunin út
bók um heimilisofbeldi gegn börnum á Islandi til
að efla fyrsta stigs forvarnir í málaflokknum (25).
Starfsfólk tekur einnig þátt í rannsóknum sem bíða
birtingar eða frekari úrvinnslu gagna, til dæmis
könnun á landsvísu á viðhorfi foreldra til þjónustu
ung- og smábarnaverndar, könnun á fræðslu um
vímuefni, bólgusvörun ungbarna við RSV-sýkingu
og rannsókn á algengi eksems hjá ungbörnum og
meðferð við því.
Skráning upplýsinga í heilsuvernd barna er nú í
Læknablaðið 2005/91 543