Læknablaðið - 15.06.2005, Side 57
UMRÆÐA & FRÉTTIR / KVIÐVERKJAMÓTTAKA
Bráðamóttaka Landspítala Hringbraut
Fyrir tveimur árum eða svo greindum við frá því
hér á síðum Læknablaðsins að búið væri að koma á
formlegri móttöku fyrir sjúklinga með brjóstverki
á bráðamóttöku Landspítala Hringbraut. Nú er
komin nokkur reynsla á það fyrirkomulag og hún
er það jákvæð að verið er að þróa samsvarandi
móttöku fyrir sjúklinga með kviðverki.
Að sögn Davíðs O. Arnar yfirlæknis fólst breyt-
ingin á brjóstverkjamóttökunni aðallega í því að
settir voru upp ákveðnir verkferlar sem mæla fyrir
um viðbrögð við tilteknum einkennum. „Þetta
hefur gert alla vinnu við móttöku og rannsóknir á
sjúklingum með brjóstverki markvissari en áður.
Brjóstverkir eru vandamál sem að mörgu leyti laga
sig vel að svona vinnuferlum en okkur langaði að
reyna samsvarandi kerfi fyrir kviðverki. Eftir sam-
einingu sjúkrahúsanna hefur megnið af sjúklingum
með kviðverki komið hingað en nú langar okkur
að gera þetta formlegra og stuðla enn frekar að
því að allir sjúklingar eldri en 18 ára sem eru með
kviðverki komi hingað. Við erum að prufukeyra
vinnuferla sem við höfum þróað en þeir eru fyrsta
skrefið í átt að formlegri kviðverkjamóttöku,“
segir Davíð.
Sigurður Blöndal skurðlæknir segir að hingað
til hafi um 80 af hundraði sjúklinga með kvið-
verki komið á Hringbrautina. „Við erum vel sett
hvað varðar alla stoðþjónustu því hér eru flestar
deildir sem við þurfum að eiga samskipti við. Eini
alvarlegi hængurinn á þessu fyrirkomulagi er að
æðaskurðlækningarnar eru í Fossvogi. Þess vegna
þurfum við að flytja þangað sjúklinga sem þurfa
á slíkum aðgerðum að halda, til dæmis þeir sem
koma með sprunginn æðagúl í kviði. Auðvitað
væri æskilegast að við værum í einu húsi en um það
þýðir ekki að tala fyrr en búið er að byggja nýjan
spítala," segir Sigurður og hugsar gott til þess að
samkvæmt áætlunum um byggingu nýs sjúkrahús
verður fyrst ráðist í að byggja bráðamóttöku.
„Við reynum að staðla meðferð sjúklinga, hvaða
blóð- og myndgreiningarrannsóknir eru gerðar og
þess háttar. Markmið númer eitt er að geta veitl
sneggri og markvissari þjónustu og númer tvö er
að draga úr óþarfa rannsóknum sem eru ekki endi-
lega í þágu sjúklingsins en auka álagið á hann og
kosta peninga," bætir Davíð við.
Davíð O. Arnar yfirlœknir og Sigurður Blöndal skurðlœknir á bráðadeild Landspítala
Hringbraut.
Greiningunni flýtt og tíminn nýttur betur
Brjóstverkir eru tiltölulega afmarkaðir við tvö líf-
færi, hjarta og lungu, en það hlýtur að koma margt
fleira til greina þegar kviðverkir eiga í hlut.
„Já, það er ekki jafnauðvelt að ná utan um þá.
Þeir geta stafað frá meltingarvegi, þvagvegum og
nýrum, stoðkerfi og æðakerfi. Það er því erfiðara
að gera viðbrögð við kviðverkjum straumlínulög- Þröstur
uð. En með því að koma á skipulögðum viðbrögð- Haraldsson
Læknablaðið 2005/91 545