Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.06.2005, Side 58

Læknablaðið - 15.06.2005, Side 58
UMRÆÐA & FRÉTTIR / KVIÐVERKJAMÓTTAKA / HJARTAVERND um getum við reynt að koma í veg fyrir að verið sé að senda fólk í rannsóknir sem það á kannski lítið erindi í,“ segir Sigurður. Davíð segir að sjúklingar muni ekki finna mik- inn mun að öðru leyti en því að nýja fyrirkomu- lagið eigi að geta gert starfsfólki kleift að finna ástæður verkjanna fyrr og koma sjúklingum í við- eigandi meðferð. „Sjúklingar hitta fyrst fyrir hjúkrunarfræðing sem hefur við hlið sér prentuð fyrirmæli um það hvaða rannsóknir eigi að gera strax í upphafi. Það þarl' því ekki að bíða eftir lækni. Sé sjúklingur með óstöðug lífsmörk er ætlast til þess að kallað sé taf- arlaust í lækni. Aðalatriðið er að geta svarað þeirri spurningu fljótt og vel hvaða sjúklingar þurfa að fara í skurðaðgerð," segir Sigurður. Hann nefnir sem dæmi um rannsóknir sem geta verið ónauðsynlegar að í Bandaríkjunum sé mjög algengt að allir sjúklingar sem koma á bráðadeildir með verk hægra megin í kvið séu settir í tölvusneið- myndatöku. Petta er gert vegna þess að ein algeng- asta ástæðan fyrir málsókn á hendur bandarískum læknum er að þeim hafi yfirsést að greina botn- langabólgu. „Tölvusneiðmyndatöku fylgir mikil geislun, allt að 400-föld miðað við venjulega rönt- genmynd af lungum. Hún getur átt rétt á sér en alls ekki í öllum tilvikum. Við höfum náð mjög góðum árangri í að greina botnlangabólgu án þess að nota tölvusneiðmyndir," segir Sigurður. 10 komur á dag vegna kviðverkja Algengi kviðverkja er töluvert sem sjá má af því að af tæplega 11.000 komum á bráðadeildina við Hringbraut í fyrra voru á milli 3500 og 4000 með kviðverki. Pað samsvarar því að um 10 manns leiti til deildarinnar á degi hverjum vegna kviðverkja. „Við viljum koma þeim skilaboðum til lækna að þeir sendi sjúklinga með kviðverki hingað,“ segja þeir Sigurður og Davíð. Byrjað var að prófa nýju verkferlana um síðustu áramót og síðan hefur verið safnað athugasemdum um þá. Sumarið verður notað til að fara yfir þær og sníða vankanta af kerfinu sem raunar á að verða í sífelldri endurskoðun. Hjartavernd Ahættumat hjarta- og æðasjúkdóma gert markvissara Þröstur Haraldsson Eins og fram kemur í ritstjórnargrein Karls Andersen hér í blaðinu var ákveðið um síðustu áramót að taka áhættumat og greiningu hjarta- og æðasjúkdóma út úr rekstri Hjartaverndar og fela það nýju félagi í eigu Hjartaverndar og hjarta- og innkirtlasérfræðinga sem starfa við rannsóknirnar. Vilmundur Guðnason forstöðu- læknir Hjartaverndar segir að hér sé ekki um veigamikla breytingu á rekstri að ræða heldur sé verið að byggja á því sem fyrir er í því skyni að gera áhættumatið markvissara en verið hefur. „Það sem við gerum er að nota áhættureikninn sem við höfum þróað með markvissum hætti, enda hefur hann gefið góða raun og laðað fram upp- lýsingar um ástand sjúklinga,“ segir Vilmundur í spjalli við Læknablaðið. „Auk þess að beita áhættu- reikninum fara sjúklingar í ítarlegri læknisskoðun en verið hefur og mikil áhersla er lögð á klínískt mat á heilsufari þeirra.“ Pað sem hér um ræðir er áhættumat sem fólk pantar að eigin frumkvæði eða fyrir milli- göngu heimilislækna. Þetta er kerfisbundið mat sem fylgir alþjóðlega viðurkenndum stöðlum og byggist á niðurstöðum áratugalangra rannsókna Hjartaverndar. Tilgangurinn er að greina krans- æðasjúkdóma á frumstigi og þá áhættuþætti sem þeim geta valdið. Fram til 1997 greiddi Tryggingastofnun ríkisins fyrir svona áhættumat en þá var því hætt. Fólk hefur síðan þurft að standa sjálft straum af rann- sókninni og dróst þjónustan töluvert saman við þá breytingu. Vilmundur bendir á að töluvert sé um að vinnustaðir og sjúkrasjóðir stéttarfélaga taki þátt í kostnaðinum. Þriðjungur áhættuþátta óþekktur Vilmundur segir að eitt af því sem hvatti samtökin til að taka þennan þátt fastari tökum hafi verið lítil könnun sem gerð var á þeim sem leituðu til Hjartaverndar að eigin frumkvæði. „Við könnuð- um þá sem komu til okkar og komumst að því að þeir voru í 20% meiri áhættu á að fá hjartasjúk- dóma en jafnaldrar þeirra,“ segir hann. 546 Læknablaðið 2005/91

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.