Læknablaðið - 15.12.2005, Síða 21
FRÆÐIGREINAR / LUNGNAÁSTUNGUR
Lungnaástungur með hjálp tölvusneið-
mynda á Landspítala. Ábendingar, fylgi-
kvillar og útkoma
Anna
Guðmundsdóttir1
NÁMSLÆKNIR
Kristbjörn
Reynisson2
SÉRFRÆÐINGUR í
MYNDGREININGU
Gunnar
Guðmundsson1,3
SÉRFRÆÐINGUR í LYFLÆKN-
INGUM, LUNGNA- OG
GJÖRGÆSLULÆKNINGUM
‘Lungnadeild, 2myndgrein-
ingardeild Landspítala,
3rannsóknastofu í lyfja- og
eiturefnafræði, læknadeild
Háskóla íslands.
Fyrirspurnir og bréfaskipti:
Gunnar Guðmundsson,
lungnadeild Landspítala E-7
Fossvogi, 108 Reykjavík.
Sími 543-6876, fax 543-6568.
ggudmund@landspitali.is
Lykilorö: lungu, tölvusneið-
myndir, ástungur um húð,
lungnakrabbamein.
Ágrip
Tilgangur: Astunga gegnum brjóstvegg með nál er
heppileg þegar um er að ræða hnúða í lungum sem
liggja að eða nálægt brjóstvegg. Tilgangur rann-
sóknarinnar var að kanna ábendingar, árangur og
fylgikvilla af ástungum í tölvusneiðmyndatæki á
Landspítala (LSH) og kanna lokagreiningu.
Efniviður og aðferðir: Aftursæ rannsókn þar sem
upplýsingar voru fengnar úr sjúkraskrám LSH.
Frá myndgreiningardeild LSH var fenginn listi yfir
ástungur gegnum brjóstvegg sem framkvæmdar
voru á 18 mánuðum árin 2003-2004. Kannaðar
voru ábendingar fyrir ástungu, niðurstaða vefja-
greiningar, fylgikvillar og meðferð þeirra. Frekari
rannsóknir sem gerðar voru og lokagreining voru
athugaðar.
Niðurstöður: Alls var um að ræða 93 sjúklinga.
Upplýsingar fengust um 82 sjúklinga (46 karlar
og 36 konur). Langflestir komu vegna gruns um
krabbamein. Algengast var að hnúðarnir væru 2-
3 cm að stærð. Oftast var um einn hnúð að ræða
sem lá nálægt brjóstvegg. 25/82 (30%) sjúklingar
fengu loftbrjóst eftir aðgerðina og þurftu fjórir
brjóstholskera. Algengasta greining var krabba-
mein hjá 36/82 (44%), ósértækar breytingar 15/82,
eðlilegur vefur hjá 12/82, bólga hjá 9/82 og aðrar
góðkynja orsakir hjá 10/82. Næmi rannsóknar-
innar gagnvart krabbameini er 61% og sértæki
100%. Lokagreining var krabbamein hjá 59/82
(72%) einstaklingum og góðkynja orsakir hjá
23/82 þeirra.
Ályktanir: Árangur af þessum ástungum er lakari
en í erlendum rannsóknum. Tíðni fylgikvilla er
svipuð. Nauðsynlegt er að fylgja eftir góðkynja
greiningum því stór hluti þeirra reynist vera
krabbamein við nánari skoðun.
Inngangur
Að staðaldri greinast 100-120 sjúklingar með
lungnakrabbamein árlega á íslandi (1). Krabba-
meinin eru greind á misjafnan hátt, með berkju-
speglun, miðmætisspeglun, sýnatökum í aðgerð og
með sýnatöku frá meinvörpum í öðrum líffærum.
Ástunga gegnum brjóstvegg með nál er heppileg
þegar um er að ræða hnúða í lungum sem liggja
að eða nálægt brjóstvegg (2). Áður voru ástungur
ENGLISH SUMMARY
Guðmundsdóttir A, Reynisson K, Guðmundsson G
Computerized Tomography guided
percutaneous needle biopsies at Landspitali
University Hospital. Indications, complications
and results
Læknablaðið 2005;91:917-21
Objective: Transthoracic needle aspiration biopsies
(TNAB) are ideal for diagnosis of peripheral lung
nodules. The purpose of the study is to investigate
computerized tomography (CT) guided TNAB at
Landspitali University Hospital (LUH) in regard to
indications, complications, results and evaluate the
diagnoses that were obtained with the biopsies.
Material and methods: Retrospective study where
information was obtained from clinical charts at LUH.
A list of TNAB done over an 18 month period in 2003
to 2004 was obtained from the Department of Medical
Imaging. Indications for biopsy, pathology diagnosis,
complications and treatment were studied. Further
studies and final diagnosis were also studied.
Results: There were total of 93 patients that had
TNAB. Records were available on 82 patients (46
males og 36 females). Most often the study was done
because of cancer suspicion. Nodules were commonly
2-3 cm large. Most commonly there was one nodule
that was peripheral. 25/82 (30%) patients developed
pneumothorax after the procedure and four patients
needed a chest tube. The most common diagnosis was
cancer in 36/82 (44%), unspecific changes in 15/82,
normal tissue in 12/82, inflammation in 9/82 and other
benign causes in 10/82. The sensitivity to diagnose
cancer was 61 % and specificity 100%. The final
diagnosis was cancer in 59/82 (72%) of the cases and
benign causes in 23/82.
Conclusions: The diagnostic yield of TNAB is lower in
our study than in many previous studies. The rate of
complications is similar. It it necessary to do followup
studies in benign diagnoses because many of them
have cancer when studied further.
Keywords: lungs, computerized tomography, percutaneous
biopsies, lung cancer.
Correspondence: Gunnar Guðmundsson,
ggudmund@landspitali. is
gerðar með hjálp röntgenskyggningar en undanfar-
in ár æ oftar með með hjálp tölvusneiðmynda.
Helsti fylgikvilli er loftbrjóst og getur stundum
Læknablaðið 2005/91 917