Læknablaðið - 15.12.2005, Blaðsíða 28
FRÆÐIGREINAR / BULIMIA PRÓF
með sama hætti og til dæmis þunglyndispróf eru
notuð. Á íslandi hefur verið skortur á vönduðum
mælitækjum fyrir einkenni átraskana, en þau
mælitæki sem hafa verið notuð hafa oft ekki verið
þýdd og staðfærð eftir viðurkenndum reglum. í
þessari grein er fjallað um rannsókn á áreiðanleika
og réttmæti íslenskrar gerðar mælitækisins Bulimia
Test-Revised (BULIT-R) sem er ætlað að skima
fyrir og mæla einkenni lotugræðgi.
Árið 1984 kynntu Smith og Thelen (1) sjálfs-
matskvarðann Bulimia Test (BULIT) til að meta
einkenni lotugræðgi eftir greiningarviðmiðum
DSM-III (Diagnostic and statistical manual of
mental disorders, 3. útgáfa). BULIT kvarðinn
byggðist á rannsóknum á ungum konum sem
uppfylltu greiningarviðmið fyrir lotugræðgi sam-
kvæmt DSM-III og heilbrigðum konum í háskóla.
Þáttagreining listans leiddi í ljós nokkuð stöðuga
þáttabyggingu sem samsvaraði DSM-III grein-
ingarviðmiðunum. Niðurstöður Smith og Thelen
(1) bentu til þess að BULIT listinn væri hentugt
skimunartæki fyrir lotugræðgi og byrjunarstigum
hennar hjá ungum konum áður en átröskunin og
hegðunarmynstrið hjá þeim yrði þrálátt.
BULIT spurningalistinn var endurbættur í
kjölfar endurskoðunar á greiningarviðmiðunum
fyrir lotugræðgi í DSM-III og árið 1991 kom út
Bulimia Test-Revised (BULIT-R) sem var í sam-
ræmi við greiningarviðmiðin í DSM-III-R (2).
Helstu breytingarnar á greiningarviðmiðunum í
DSM-III-R voru þær að tilgreina lágmarkstíðni
ofátskasta og viðvarandi ofuráhyggjur af líkams-
þyngd og lögun. DSM-III viðmiðin útilokuðu
greiningu á lotugræðgi ef viðkomandi uppfyllti
greiningarskilmerki fyrir lystarstol en þessi krafa
var felld niður í DSM-III-R (2, 3).
Brelsford og samstarfsmenn hennar (4) könn-
uðu áreiðanleika og hugsmíðaréttmæti BULIT-
R og athuguðu sérstaklega samsvörun á milli
BULIT-R skora og tíðni lotugræðgieinkenna,
það er ofáts og hreinsunarhegðunar, eins og hún
var metin með dagbókarskráningu þátttakenda.
Niðurstöður þeirra gáfu til kynna að innri sam-
kvæmni BULIT-R væri góð og að skor á listanum
sýndu stöðugleika yfir tíma. Stuðningur fékkst
einnig við hugsmíðaréttmæti listans, en það reynd-
ust vera jákvæð tengsl milli lotugræðgieinkenna
metinna með BULIT-R og tíðni einkennanna
þegar þau voru metin með dagbókarskráningu.
Réttmæti BULIT-R hefur verið rannsakað með
tilliti til fjórðu útgáfu DSM greiningarkerfisins
sem kom út árið 1994 (5). Spurningalistinn
var lagður fyrir 23 konur sem meðferðaraðilar
töldu uppfylla greiningarskilmerki lotugræðgi
samkvæmt DSM-IV. Til samanburðar fylltu 124
konur í sálfræði einnig út listann. Konur með
lotugræðgi skoruðu marktækt hærra (M=119,26)
en nemendurnir (M=53,31) og munur var á með-
altölum hópanna tveggja á öllum 28 atriðunum.
Af öllum þátttakendunum (147 talsins) greindust
26 konur með lotugræðgi samkvæmt BULIT-
R. Tvær konur í lotugræðgihópnum fengu
ekki lotugræðgigreiningu samkvæmt BULIT-R og
fimm konur í samanburðarhópnum fengu ranga
jákvæða (false positives) lotugræðgigreiningu
samkvæmt listanum. í þessari rannsókn (5)
var viðmiðunargildið (cut-off) 104 notað og
skilaði það næmi sem var 0,91 og sértækni sem
var 0,96. Samkvæmt mati matsmanna átti grein-
ingin „átröskun ekki nánar skilgreind“ (eating
disorder not otherwise specified; EDNOS) við
konurnar fimm í samanburðarhópnum, í stað
lotugræðgigreiningar. í kjölfarið var hægt að bera
saman frammistöðu þriggja hópa á BULIT-R, það
er lotugræðgi-, EDNOS- og samanburðarhóps.
I ljós kom munur á öllum atriðum listans sem
og á heildarskori hans hjá hópunum þremur
(5). Þessar niðurstöður gefa vísbendingu um að
BULIT-R geti greint á milli kvenna með einkenni
átröskunar ekki nánar skilgreind og þeirra sem
ekki eiga við átröskun að stríða en þó er þörf á
frekari rannsóknum áður en hægt er að staðfesta
þessar niðurstöður og nota BULIT-R á þennan
hátt (5). Almennt má segja að hægt virðist vera
að nota BULIT-R sem skimunartæki til að greina
konur sem uppfylla greiningarskilmerki lotugræðgi
samkvæmt DSM-IV. Þær breytingar sem gerðar
voru á greiningarviðmiðunum frá DSM-III-R til
DSM-IV virðast hafa verið það smávægilegar að
þær höfðu takmörkuð áhrif á réttmæti BULIT-R
og því er BULIT-R líka áreiðanlegt og réttmætt
skimunartæki til að greina konur með lotugræðgi
þegar miðað er við DSM-IV (5, 6).
I nýlegri rannsókn á próffræðilegum eigin-
leikum íslensku útgáfunnar af BULIT-R þar sem í
úrtakshópi voru ungar konur í háskóla kom í ljós
að innri áreiðanleiki og endurprófunaráreiðanleiki
BULIT-R var mjög góður og einnig að samleitni-
og aðgreiningarréttmæti listans væri gott (7).
í þessari rannsókn var reynt að renna frekari
stoðum undir réttmæti íslensku útgáfunnar af
BULIT-R kvarðanum. í því augnamiði var hann
ásamt tækjum sem annars vegar er ætlað að mæla
skylda hugsmíð (Eating Disorder Diagnostic
Scale; EDDS) og hins vegar ólíkar hugsmíðar, það
er þunglyndi (Beck Depression lnventory-II; BDI-
II) og áráttu og þráhyggju (Obsessive-Compulsive
Inventory-Revised; OCI-R) lagður fyrir konur
á geðsviði sem annars vegar voru greindar með
átraskanir og hins vegar voru í meðferð vegna ann-
arra geðraskana.
924 Læknablaðið 2005/91