Læknablaðið - 15.12.2005, Page 29
FRÆÐIGREINAR / BULIMIA PRÓF
Efniviður og aðferðir
Þátttakendur
Mtttakendur voru 66 konur sem skiptust sam-
kvæmt klínískum greiningum í tvo hópa, það er
átröskunarhóp og ekki-átröskunarhóp (saman-
burðarhóp), en allar höfðu konurnar leitað til
göngudeildar geðsviðs Landspítala (LSH).
í átröskunarhópnum voru alls 32 konur sem
voru undir eftirliti eða í meðferð vegna átröskunar
hjá meðferðaraðila átröskunarteymis. Meðalaldur
þeirra var 25,8 ár (sf=5,5) og meðal þyngdarstuð-
ull (BMI) þeirra var 20,0 (sf=3,2). Af konunum
í átröskunarhópnum höfðu sex greininguna lyst-
arstol, 14 höfðu greininguna lotugræðgi og 12 voru
með greininguna átröskun ekki nánar skilgreind.
Klínískt mat meðferðaraðila réði greiningunum. í
samanburðarhópnum voru alls 34 konur með aðra
greiningu en átröskunargreiningu. Meðalaldur
kvennanna var 32,2 ár (sf=ll,4) og meðal þyngd-
arstuðull þeirra var 25,6 (sf=4,7). Flestar þeirra,
eða 25 talsins, voru í ósérhæfðri hugrænni atferlis-
meðferð (HAM) í hópi fyrir sjúklinga með þung-
lyndi og kvíðaraskanir.
Mœlitœki
Bulimia Test-Revised (BULIT-R) (2). Listinn var
íslenskaður af Sigurlaugu Maríu Jónsdóttur sumar-
ið 2004 með leyfi frá Mark H. Thelen, höfundi list-
ans. Guðlaug Þorsteinsdóttir og Jakob Smári lásu
yfir og samþykktu þýðinguna. Löggiltur ensku- og
íslenskumælandi skjalaþýðandi bakþýddi listann
aftur yfir á ensku. Ensku útgáfurnar tvær voru því
næst bornar saman og reyndust þær vera sambæri-
legar.
BULIT-R er sjálfsmatskvarði sem er notaður
til að meta megin einkenni lotugræðgi, það er
ofát/ofátsköst, hreinsunarhegðun og áhyggjur af
líkamsþyngd og lögun. Atriðin í kvarðanum, 36
talsins, eru í samræmi við greiningarviðmið DSM-
IV greiningarkerfisins og spanna öll helstu viðmið
fyrir lotugræðgi. Svarmöguleikar listans eru á 5
punkta Likert kvarða. Þátttakendur eru beðnir um
að svara spurningunum og segja til um hversu vel
fullyrðingin eigi við um þá. Sá svarmöguleiki sem
sýnir mest lotugræðgieinkenni gefur 5 stig, næsti
gefur 4 stig, svo 3 stig, 2 stig og sá sem sýnir minnst
lotugræðgieinkenni gefur 1 stig. Heildarskor list-
ans fæst með því að leggja saman svör 28 spurn-
inga en átta spurningar eru ekki notaðar til að
reikna út heildarskorið því þær greina ekki vel á
milli kvenna með og án lotugræðgi.
Eating Disorder Diagnostic Scale (EDDS)
(8). íslensk útgáfa af EDDS spurningalistanum
var notuð sem annað matstæki fyrir átraskanir
en listinn var þýddur og bakþýddur af Guðlaugu
Þorsteinsdóttur og Lilju Ósk Úlfarsdóttur árið
2003 með leyfi höfunda. Próffræðilegir eiginleikir
þessarar íslensku útgáfu hafa ekki verið kannaðir
áður. EDDS listinn er 22 atriða sjálfsmatskvarði
sem metur einkenni átraskana og er notaður til
að greina lystarstol, lotugræðgi og lotuofát (binge
eating disorder) samkvæmt DSM-IV greiningar-
kerfinu. Atriðin á listanum voru samin út frá stöðl-
uðu greiningarviðtölunum The Eating Disorder
Examination (EDE), 12. útgáfu og Structured
Clinical Interview for DSM-III-R (SCID) átrösk-
unarhlutanum. Það sem EDDS listinn hefur
fram yfir önnur sjálfsmatstæki um átraskanir er
að með honum er hægt að meta einkenni þriggja
tegunda átraskana og fá átröskunargreiningu út
frá viðurkenndu greiningarkerfi. Auk átröskunar-
greiningar fæst ein samræmd heildartala (overall
eating-disorder symptom composite) sem getur
verið á bilinu 0 til 112 en hún er fengin með því
að leggja saman svör 19 atriða (9). Þremur spurn-
ingum er sleppt í heildartölunni en það eru spurn-
ingarnar um þyngd, hæð og getnaðarvarnanotkun.
Próffræðilegir eiginleikar ensku útgáfu EDDS
listans hafa verið rannsakaðir og virðast þeir vera
nokkuð góðir (8,10).
Beck Depression Inventory-II (BDI-II) (11).
Islensk þýðing af þunglyndiskvarða Becks, önnur
útgáfa, var notuð í rannsókninni en Jón Friðrik
Sigurðsson og samstarfsmenn hans þýddu og
endurgerðu BDI-II listann með leyfi útgefanda.
BDI-II er sjálfsmatskvarði og inniheldur 21
flokk fullyrðinga sem meta einkenni geðlægðar.
Kvarðanum er ekki ætlað að greina þunglyndi
heldur meta dýpt þess hjá þeim sem þegar hafa
slíka greiningu.
Obsessive-Compulsive Inventory-Revised
(OCI-R) (12). Sjálfsmatskvarðinn OCI-R í
íslenskri þýðingu var notaður í þessari rannsókn
en hann var þýddur af Ásdísi Eyþórsdóttur og
Jakobi Smára. Kvarðinn samanstendur af 18 full-
yrðingum sem meta einkenni áráttu- og þráhyggju.
Svarendur eru beðnir að segja til um að hve miklu
leyti tiltekin reynsla hefur þjakað þá eða valdið
þeim óþægindum síðastliðinn mánuð. Rannsóknir
á próffræðilegum eiginleikum listans sem styðjast
við úrtök áráttu- og þráhyggjusjúklinga, kvíða-
sjúklinga og háskólastúdenta gefa til kynna að
kvarðinn sé áreiðanlegt og réttmætt tæki fyrir ein-
kenni áráttu- og þráhyggju (12,13). Nýleg íslensk
rannsókn á próffræðilegum eiginleikum íslensku
útgáfunnar af OCI-R meðal háskólastúdenta
leiddi svipaðar niðurstöður í ljós (14).
Framkvæmd
Að fengnu leyfi yfirlæknis, siðanefndar Landspítala
og Persónuverndar var hafist handa við gagna-
söfnun. Leitað var til meðferðaraðila á göngudeild
Læknablaðid 2005/91 925