Læknablaðið - 15.12.2005, Page 49
UMRÆÐA & FRÉTTIR / SAGA LÆKNISFRÆÐINNAR
sem læknir sumarið 1925 frá Manitobaháskóla í
Winnipeg.
Fjölskylda
Sigga kynntist skólabróður sínum Clarence J.
Houston lækni sem var sjö árum yngri en hún
og var í læknaskólanum ári á eftir henni. Hann
var myndarlegur, rauðhærður sveitadrengur. Þau
felldu hugi saman, en aldursmunurinn stóð í henni
svo að hún fór í burtu eitt ár til að láta reyna á
sambandið. Hún starfaði þá á berklahæli í Forth
Wayne í Indiana þar sem laryngsberklar voru
meðhöndlaðir með því að spegla sólarljósi niður
í kokið. Að ári liðnu og eftir miklar bréfaskriftir
hittust þau Sigga og CJ í Grand Forks í desember
1927. Þá uppgötvaði hún að hann var illa haldinn
af opinni ígerð á hálsi, submandibular abcess, sem
var fylgikvilli við króníska Ludwigs angina, og
þurfi á umönnun hennar að halda og ákvað hún þá
að taka bónorði hans og giftast honum umsvifa-
laust. En þau gátu ekki fengið giftingarleyfi fyrr en
eftir langa bið vegna veikinda hans og ekki heldur
vegna þess að ekki þótti við hæfi að kona giftist sér
svo mikið yngri manni og gátu þau því ekki gifst í
Kanada. Þau fóru þá yfir Rauðána til Crookston í
Minnesota. Þar Sigga gaf upp rangan fæðingardag
og yngdi sig um sjö ár, en þeim var enn hafnað
um leyfi, vegna veikinda hans. Þau spurðu þá
hvort það breytti ekki málinu að þau væru bæði
Kanadamenn og þá sá réttarritarinn enga ástæðu
til að verja par frá öðru landi fyrir smiti og sjúk-
dómum, gaf út leyfið og þau giftu sig þar 3. des-
ember 1926. Þau fluttu síðan til Watford City í N-
Dakota þar sem CJ var með stofu, og störfuðu þar
í 13 mánuði og eignuðust einkason sinn, Clarence
Stuart Houston, f. 26. september 1927.
Stuart var vel gefinn drengur og stundaði
nám sitt vel. Hann lærði til læknis í háskólanum í
Manitoba eins og foreldrar hans og starfaði á lækn-
ingastofu þeirra 1951-55, fór síðan í framhaldsnám
í lyflækningum og barnalækningum og kom aftur
og starfaði með þeim 1956-60. Þá flutti hann til
Saskatoon, fór í nám í geislafræði, og síðar áfram
á Barnaspítala Harward þar sem hann hann hlaut
eftirsóttan námsstyrk kenndan við Georg von L.
Mayer. Hann starfaði síðan í 32 ár á röntgendeild
háskólasjúkrahússins í Saskatchewan, varð brátt pró-
fessor og síðan forstöðulæknir, 1982-1987. Hann er
eini læknirinn sem hefur verið valinn heiðursforseti
samtaka læknastúdenta háskólans í Saskatchewan
þrisvar sinnum, skólaárin 1973-4, 1987-8, 1994-5.
Hann skrifaði mikinn fjölda greina og bóka um fag
sitt og var mjög virkur félagslega og hlaut fjölda við-
urkenninga. Hann skrifaði einnig gríðarlega mikið
um fuglafræði sem var áhugamál hans.
Hann giftist Mary Isabel Belcher og þau eign-
uðust fjögur börn, þrjú þeirra eru læknar og starfa
öll í viðurkenndum háskólum, á Mayo Clinic,
Rochester, Minnisota, í háskólanum í Alberta og í
háskólanum í Manitoba.
Starfsferill
Sigga og CJ fluttu til Yorkton í Saskatchewan í
ársbyrjun 1928 og opnuðu saman lækningastofu, í
næsta nágrenni heimilis síns. Hún sinnti móttöku á
stofunni og var mest í barna- og kvenlækningum.
Hún varð mjög vinsæll læknir og sóttu sjúklingar
til hennar um langan veg. Einkum var hún fræg
fyrir að aðstoða mæður með börn sem þrifust illa
og bjó til sérstaka uppskrift að næringardrykk
Fyrstu íslensku konurnar í læknastétt frá Flí
Kristín Ólafsdóttir, f. 21.11.1889, Cand. med. 1917
Katrín Thoroddsen, f. 07.07.1896, Cand. med. 1921
María Hallgrímsdóttir, f. 21.08.1905, Cand. med. 1931
Gerður Bjarnhéðinsson, 27.10.1906, Cand. med. 1932
Jóhanna Guðmundsdóttir/Guðmundsson, f. 05.08.1898, Cand. med.
1933 (Lita Sigurðsson, f. 09.11.1907, Cand. med. Khöfn 1933.
Starfaði á íslandi).
Sigrún Briem, f. 22.02.1911, Cand. med. 1940
RagnheiðurGuðmundsdóttirf. 20.08.1915, Cand. med. 1945
Hulda Sveinsson, f. 06.01.20, Cand. med. 1948
Kristjana R Helgadóttir, 05.08.21, Cand. med. 1948
Inga Björnsdóttir, f. 24. 06.1922, Cand. med. 1949
11. Þorbjörg Magnúsdóttir, f. 12.10.1921, Cand. med. 1949
12. Lilja Petersen, f. 19.11.1922, Cand. med. 1949
13. Ragnhildur Ingibergsdóttir, f. 15.04.1923, Cand. med. 1950
14. Alma Þórarinsson, f. 12.08.1922, Cand. med. 1951
15. Kristín E. Jónsdóttir, f. 28.01.1927, Cand. med. 1953
16. Guðrún Jónsdóttir, f. 06.10.1926, Cand. med. 1955
17. Margrót Guðnadóttir, f. 07.07.1929, Cand. med. 1956
18. Ása Guðjónsdóttir, f. 05.02.1928, Cand. med. 1957
19. Bergþóra Sigurðardóttir, f. 13.10.1931, Cand. med. 1958
20. Hólmfríður Magnúsdóttir, f. 17.01.1931, Cand. med. 1958
21. Þórey Sigurjónsdóttir, f. 21.05.1930, Cand. med. 1959
1.
2.
3.
4.
5.
6.
7.
8.
9.
10.
Þar sem Sigga var fædd í Kanada og hvorki lærði né starfaði á íslandi er hún ekki
talin meðal íslenska lækna erlendis í bókinni Læknar á íslandi frá 1970.
2 konur luku læknaprófi frá Hl 1917-1929
3 konur luku læknaprófi frá HÍ1930-1939
7 konur luku læknaprófi frá H( 1940-1949
9 konur luku læknaprófi frá Hl’ 1951-1959
Kynskipting íslenskra lækna
samkvæmt upplýsingum frá skrifstofu læknafélaganna 23. júní 2005
Allir íslenskir læknar
Læknar starfandi á (slandi
íslenskir læknar erlendis
Kandídatar 2005
1702 þar af konur 449, eða 26%.
1207 þar af konur 293, eða 24%.
495 þar af konur 156, eða 32%.
43 þarafkonur 20, eða46%.
Læknablaðið 2005/91 945