Læknablaðið - 15.12.2005, Page 61
UMRÆÐA & FRÉTTIR / CODEX ETHICUS
heiðarleika og heilinda við meðferð vísindagagna.
Birting niðurstaðna skal almennt fara fram á vett-
vangi læknisvísindanna.
7. gr.
Læknir skal kynna sér lög og reglur er gilda um
störf lækna og starfsumhverfi, um réttindi sjúk-
linga, um vísindarannsóknir á heilbrigðissviði,
persónuvernd og verndun persónuupplýsinga, lög
og reglur stéttarfélagsins og þær alþjóðlegu yfir-
lýsingar og samþykktir, sem Læknafélag Islands á
aðild að.
II.
Ákvæði um samband læknis og sjúklings
8. gr.
Samband læknis og sjúklings byggist á gagnkvæmu
trausti og gagnkvæmum skyldum.
Læknir ber ábyrgð á greiningu og ráðleggingum
um meðferð sjúklings en sjúklingur veitir lækni nauð-
synlegar upplýsingar um heilsufar sitt og ástand.
9. gr.
Læknir skýrir sjúklingi frá sjúkdómi hans, ástandi
hans og horfum, nema sjúklingur óski þess sér-
staklega að fá ekki þessar upplýsingar. Læknir má
gefa aðstandendum sjúklings, að svo miklu leyti
sem þagnarskylda hans leyfir, þær upplýsingar
um sjúkdóm hans og batahorfur, sem læknir telur
nauðsynlegar. Eigi í hlut sjúklingur sem ekki getur
tileinkað sér veittar upplýsingar, skulu þær gefnar
foreldri, forráðamanni eða nánasta aðstandanda.
Læknir skal eftir því sem tök eru á, útskýra fyrir
sjúklingi eðli og tilgang rannsókna og meðferðar,
sem hann veitir eða ráðleggur sjúklingnum. Þess
skal ávallt gætt og ef með þarf, skal sjúklingi gert
það ljóst, að læknir ráðleggur, en skipar ekki.
Læknir skal varast að leggja óhóflega erfiðar
rannsóknir eða meðferð á sjúkling, ef ætla má að
þær veiki andlegan og líkamlegan þrótt hans.
Læknir skal gæta ítrustu varkárni við ávísun
lyfja.
Læknir skal við ákvarðanir taka tillit til fjárhags
sjúklings og samfélags.
10. gr.
Læknir skal hafa það hugfast að náin persónuleg
kynni við sjúkling geta haft áhrif á dómgreind hans
og faglegt sjálfstæði. Læknir ætti því almennt að
forðast að bera ábyrgð á læknismeðferð náinna
vandamanna sinna, ekki síst þegar um langvarandi
og alvarlega sjúkdóma er að ræða. Ótilhlýðilegt
er að læknir stofni til kynferðislegs sambands við
sjúkling sem hann hefur til meðferðar.
11. gr.
Lækni ber að auðsýna sjúklingi sínum þá umhyggju
og nærgætni sem hann getur framast við komið. Ef
ekki er á hans færi að framkvæma nauðsynlega
rannsókn eða aðgerð, skal hann í samráði við sjúk-
linginn undandráttarlaust leita fulltingis lækna eða
stofnana, sem geta hjálpað til að leysa vanda sjúk-
lingsins. Lækni hlýðir ekki að synja sjúklingi sínum
um að kveðja annan lækni til ráðuneytis, ef ætla
má að hann geti orðið að liði.
Stuðlað skal að því að meðferð sjúklinga sé
samfelld.
Læknir skal að lokinni rannsókn sinni á sjúk-
lingi eða meðferð láta tilvísandi lækni í té skýrslu
um rannsóknir sínar eða meðferð, svo og tillögur
um framhaldsmeðferð, ef hennar er þörf.
Telji læknir, að hann geti ekki veitt sjúklingi
frekari meðferð, sem þó er möguleg, skal hann vísa
honum til þess læknis, sem getur veitt hana.
Óski sjúklingur eftir að skipta um lækni, skal
það auðveldað með afhendingu nauðsynlegra
gagna.
12. gr.
Nú skoða fleiri læknar sjúkling saman og svo ber
til, að þeir eru ekki sammála eða vilja bera saman
bækur sínar. Geri þeir það í viðurvist sjúklinga eða
aðstandenda, skulu læknarnir haga orðum sínum
svo, að þeir skapi ekki óvissu eða ótta hjá þeim
sem á hlýða.
13. gr.
Lækni er skylt að forðast af fremsta megni að
hafast nokkuð að, er veikt gæti trúnaðarsamband
hans við sjúklinga sína.
Lækni er óheimilt að skýra frá heilsufari, sjúk-
dómsgreiningu, horfum, meðferð eða öðrum
einkamálum sjúklinga eða afhenda gögn með upp-
lýsingum, sem sjúklingar hafa skýrt honum frá eða
hann hefur með öðrum hætti fengið vitneskju um
í starfi sínu, nema með samþykki sjúklings, eftir
úrskurði dómara eða samkvæmt lagaboði. Lækni
ber að áminna samstarfsfólk og starfslið sitt um að
gæta með sama hætti fyllstu þagmælsku um allt er
varðar sjúkling hans.
Lækni hlýðir ekki fyrir dómi, að leggja fram
sjúkraskýrslur máli sínu til sönnunar án úrskurðar
dómara. Sjúklingur getur hins vegar krafist þess,
að slík skýrsla um hann sé lögð fram.
14. gr.
Lækni ber að halda skrár með þeim gögnum sem
skipt geta máli við sjúkdómsgreiningu og meðferð
sjúklinga og um samskipti við sjúklinga eða aðra
aðila.
Sjúkraskrár innihalda upplýsingar um heilsufar
Læknablaðið 2005/91 957