Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.12.2005, Side 65

Læknablaðið - 15.12.2005, Side 65
ÞING Ársþing Skurðlæknafélags íslands og Svæfinga- og gjörgæslulæknafélags íslands verður haldið í háskólanum á Akureyri 31. mars-1. apríl 2006 Frjáls erindi frá kl. 13:15-18:00 á föstudag og á laugardag frá kl 09:00-12:00 og frákl. 15:00-18:00. Á þinginu verða flutt frjáls erindi og kynnt veggspjöld. Ágrip erinda skulu berast fyrir 20. janúar til Björns Gunnarssonar laeknis á svæfingadeild FSA, bjorngun@fsa.is Vísindanefnd áskilur sér rétt til að hafna innsendum ágripum og einnig rétt til að hafna ágripum til flutnings en samþykkja í formi veggspjalds. Höfundar geti þess hvort þeir óska eftir að flytja erindi eða sýna veggspjald. Ágrip skulu skrifuð á íslensku. Hámarkslengd ágripa er 1800 letureiningar. Nafn flytjanda skal feitletrað. Við ritun ágripa skulu eftirtalin atriði koma fram í þeirri röð sem hér segir. • Titill ágrips, nöfn og vinnustaður höfunda, inngangur, efniviður og aðferðir, niðurstöður og ályktanir. Málþing á laugardagsmorgni um verki og slitgigt og forgangsröðun sjúklinga í gerviliðaaðgerðir. Á þingið koma tveir erlendir gestir: prófessor Paul Dieppe frá Bristol í Englandi og prófessor Stefan Lohmander frá Lundi í Svíþjóð. Hátíðarkvöldverður Skurðlæknafélags íslands og Svæfinga- og gjörgæslulækna- félags íslands verður á laugardagskvöldi á Hótel KEA og byrjar kl. 19.00. Hægt er að fá pakkaferðir með flugi, hóteli, gistingu og skíðapassa hjá Ferðaskrifstofu Akureyrar (sími 460 0600). Nauðsynlegt að fundarmenn skrái sig sem fyrst með tölvupósti hjá Helgu K. Magnúsdóttur heigam@fsa.is sími 860 0568 eða Girish Hirlekar girish@fsa.is sími 860 0567. Aðalfundur Svæfinga- og gjörgæslulæknafélags íslands (SGLÍ) Aðalfundur SGLÍ haldinn í háskólanum á Akureyri föstu- daginn 31. mars 2006, kl. 17:45. Dagskrá 1. Hefðbundin aðalfundarstörf. 2. Önnur mál. Stjórnin Aðalfundur Skurðlæknafélags íslands Aðalfundur haldinn í háskólanum á Akureyri föstudaginn 31. mars 2006, kl. 17:45. Dagskrá 1. Hefðbundin aðalfundarstörf. 2. Önnur mál. Stjórnin Læknablaðið 2005/91 961

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.