Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.05.2007, Blaðsíða 17

Læknablaðið - 15.05.2007, Blaðsíða 17
FRÆÐIGREINAR / SYKURSÝKI er á heiminn allan (6). Ef skoðað er kynjahlufall sykursjúkra á miðjum aldri eru þessi hlutföll nokkuð jöfn og hafa rannsóknir frá Bretlandi (21) og Svíðþjóð (22) gefið sambærilegar niðurstöður og þessi rannsókn gefur til kynna, það er að á miðjum aldri er hlutfall karla með SS2 jafnvel hærra en kvenna. Hlutfall óþekktrar SS2 er um 0,66 og gildir nú að fyrir hvern einn með þekkta SS2 eru tveir sem vita ekki að þeir hafa SS2. Eins og sést í töflu II er þetta hlutfall óþekktrar sykursýki sambærilegt við Svíþjóð og Spán, einnig hafa rannsóknir frá Danmörku (23) gefið til kynna sama hlutfall óþekktrar sykursýki. Árið 2002 gaf Landlæknisembættið út klínískar leiðbeiningar (24) þar sem meðal annars var skilgreindur áhættuhópur þar sem talað var um að beita ætti tækifærisskimun á eins til þriggja ára fresti og er því full ástæða til að fylgja þeim ráðleggingum eftir. Tengsl offitu við sykursýki er vel þekkt (25) og kemur vel fram í mynd 2 þar sem metið var algengi SS2 innan LPS-flokka yfir allt rannsóknartímabilið. Þar sést hversu gríðarlega algengi SS2 eykst með hækkandi LÞS og sérstaklega sláandi er munurinn á algengi SS2 hjá þeim sem teljst of þungir og þeim sem teljast of feitir. Algengi SS2 rúmlega þrefaldast hjá báðum kynjum milli þessara LÞS- flokka. Hlutfall ofþyngdar og offitu er að aukast (26) meðal þjóðarinnar og er líklega sá þáttur sem stuðlar hvað mest að auknu algengi SS2. Eins og við var að búast var næmi greining- arskilmerkja WHO’99 mest þar sem að þau greina alla sem ADA’97 greina og að auki þá sem greinast með sykurþolsprófi samkvæmt tveggja klst blóðsykursgildi en eru jafnframt með eðlileg- an fastandi blóðsykur. Með WHO’99 greinast sömu einstaklingar á sykurþolsprófinu og með WHO’85 en að auki greinast með WHO’99 þeir sem eru með fastandi blóðsykur á bilinu 7,0-7,8 mmól/1 þar sem í greiningarskilmerkjum WHO’99 er miðað við fastandi gildi 7,0 mmól/1 en 7,8 mmól/1 í WHO’85. Þessar niðurstöður eru í samræmi við samanburð á greiningarskilmerkjunum í öðrum löndum (14,27-29). Við framkvæmd sykurþolsprófa í Hóprann- sókninni var notast við blóðsykurgildi 90 mínútum eftir inntöku á 50 grömmum af glúkósa en í grein- ingarskilmerkjum WHO frá 1985 og 1999 er miðað við 120 mínútur eftir inntöku á 75 grömmum af glúkósa. Áhrif þessa hafa verið skoðuð í áður birtri grein (15) og þar talið að lítill munur sé á þessum mælingum en þó nefnt að lægri blóðsykurgildi fáist frekar með því að nota 90 mínútur eftir 50 grömm af glúkósa viðmiðin. Þar af leiðandi er líklegra að um vanmat sé að ræða. Algengi (%) Líklega er um vanmat á algengi á tímabilinu 1997-02 að ræða en gögn fyrir það tímabil koma úr Afkomendarannsókninni og Rannsókn á ungu fólki. Úr Afkomendarannsókninni var notaður viðmiðunarhópur eða afkomendur þeirra ein- staklinga í Hóprannsókninni sem ekki höfðu feng- ið kransaæðastíflu en rannsóknarhópur þeirrar rannsóknar voru afkomendur þeirra er fengið höfðu kransæðastíflu. SS2 er sterkur áhættuþátt- ur fyrir hjarta- og æðasjúkdóma (1) þannig að líklegra er að algengi SS2 í viðmiðunarhóp Afkomendarannsóknarinnar sé lægra en í rann- sóknarhópnum. Notast var við allan viðmiðunar- hópinn og hefði verið hægt að nota þann fjölda úr rannsóknarhópnum sem endurspeglar tíðni krans- æðastíflu í þessum aldurshópi á íslandi. Rannsóknir hafa sýnt að óheppilegt sé að umreikna blóðsykurgildi frá háræðaheilblóði yfir í bláæðasermi og öfugt og nota til greiningar á SS2 (16, 30). Áhrif þess að umreikna blóðsykurgildin á algengi SS2 var metið annars vegar með því að umreikna úr háræðaheilblóði yfir í bláæðasermi og nota viðmið fyrir bláæðasermi í greiningarskil- merkjum WHO’99. Hins vegar með því að notast við viðmið úr sömu skilmerkjum fyrir háræðaheil- blóð án þess að fara út í umreikning. I ljós kom að áhrif þess að umreikna blóðsykurgildin á algengi SS2 voru lítil sem engin, sama algengi fékkst með báðum aðferðum. Niðurstöður okkar sýna að SS2 er vaxandi vandamál hér á landi og þörf er á að beita skimun í skilgreindum áhættuhópum samkvæmt kínískum leiðbeiningum frá Landlæknisembættinu í ljósi þess að fyrir hvern einn með þekkta SS2 eru tveir með óþekkta SS2. Sterk tengsl við offitu gefa til- efni til að fylgjast náið með þeim hópi sem á við offituvandamál að stríða. Líklega er vaxandi offita Mynd 3. A Idursstadlaö al- gengi sykursýki aftegund 2 miðað við þrjú mismun- andi greiningarskilmerki ásamt 95% öryggismörk- um. Aldursbil 45-64 ára. Læknablaðið 2007/93 401
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.