Læknablaðið - 15.05.2007, Blaðsíða 31
YFIRLITSGREIN / LOFTBRJÓST
Sjálfkrafa loftbrjóst
-Y firlitsgrein
Tómas
Guðbjartsson1,3
Brjóstholsskurðlæknir
Guðrún Fönn
Tómasdóttir2
Læknanemi
Jóhannes
Björnsson1'2
Meinafræðingur
Bjarni Torfason1,3
Hjartaskurðlæknir
'Hjarta- og lungnaskurödeild,
2rannsóknarstofu í meinafræði
Landspítala, 3læknadeild
Háskóla íslands.
Fyrirspurnir og bréfaskipti:
Tómas Guðbjartsson,
hjarta- og lungnaskurðdeild
Landspítala Hringbraut,
101 Reykjavík.
tomasgud@landspitali. is
Lykilorð. sjálfkrafa loft-
brjóst, faraldsfrœði, orsakir,
meingerð, einkenni, greining,
meðferð, skurðaðgerð, brjóst-
holsskurður, brjóstholssjá,
brjóstholskeri, yfirlitsgrein.
Ágrip
Sjálfkrafa loftbrjóst er tiltölulega algengur sjúk-
dómur sem oftast greinist hjá ungu og annars
hraustu fólki. Horfur eru yfirleitt góðar og flesta
er hægt að lækna með brjóstholskera sem tengdur
er við sog. Endurtekið loftbrjóst og viðvarandi
loftleki eru þó tíðir fylgikvillar eftir slíka meðferð
og getur þurft að grípa til skurðaðgerða. Hér eru
rakin einkenni sjálfkrafa loftbrjósts, aðferðir til
greiningar og meðferð. Sérstök áhersla er lögð á
mismunandi meðferðarúrræði og ábendingar fyrir
skurðaðgerð.
Skilgreining og faraldsfræði
Loftbrjóst kallast það þegar loft safnast fyrir innan
fleiðruholsins. Arlegt aldursstaðlað nýgengi á
Vesturlöndum er í kringum 7,4-18/100.000 fyrir
karla og 1,2-6/100.000 fyrir konur (1, 2). Þessar
tölur miðast eingöngu við sjúklinga sem ekki hafa
þekktan lungnasjúkdóm, en að þeim viðbættum
er tíðni sjálfkrafa loftbrjósts allt að tvöfalt hærri
(2). Flestir sjúklingar eru á bilinu 20-30 ára og
karlmenn í meirihluta (3, 4). Loftbrjóst er einnig
mun algengara hjá reykingafólki (1), eða allt að
20 sinnum algengara en hjá þeim sem aldrei hafa
reykt. Hér á landi eru ekki til nákvæmar tölur um
nýgengi loftbrjósts. Nokkrar íslenskar rannsóknir
eru þó til, þar á meðal doktorsritgerð eftir Jón G.
Hallgrímsson frá árinu 1978 (5), og tvær rannsókn-
ir birtar í Lœknablaðimi. í þeirri fyrri var greint
frá afdrifum 118 sjúklinga sem gengust undir
skurðaðgerð vegna loftbrjósts á Landspítalanum
á tímabilinu 1975-1984 (6). Síðari greinin birtist
í þessu tölublaði Læknablaðsins og er yfirlit yfir
árangur loftbrjóstaðgerða á Landspítala á árunum
1991-2005 (7).
Lífeðlisfræði, meingerð og orsakir loftbrjósts
Undir venjulegum kringumstæðum er neikvæður
þrýstingur í fleiðruholi sem eykst við innöndun.
Þessi neikvæði fleiðruholsþrýstingur er meiri við
lungnatoppa en neðar í fleiðruholi. I hávöxnu
fólki er þrýstingsmunur enn meiri og getur hugs-
anlega skýrt hærri tíðni loftbrjósts hjá þeim (8).
Þegar samgangur verður á milli loftvega lungna
og fleiðruhols flæðir loft í átt að neikvæðum
þrýstingi uns hann jafnast út. Loft getur borist í
fleiðruhol með þrennum hætti. Langalgengast er
að rof verði á yfirborði lunga og loft streymi út um
yfirborð þess vegna rofs á lungnablöðrum. I öðru
lagi getur loft borist í gegnum brjóstvegg vegna
utanaðkomandi áverka á brjóstholi, til dæmis eftir
hnífstungu. í þriðja lagi getur sýking í fleiðruholi
með gasmyndandi sýklum myndað loft í fleiðru.
Sjúklingar með sjálfkrafa loftbrjóst geta haft
þekktan lungnasjúkdóm sem á þátt í orsök þess
(secondary pneumothorax, SSP) (8). Tíðni loft-
ENGLISH SUMMARY
Guöbjartsson T, Tómasdóttir GF, Björnsson J, Torfason B
Spontaneous pneumothorax: A review article
Læknablaðið 2007; 93: 415-24
Spontaneous pneumothorax is a relatively common
disease primarly affecting young and otherwise
healthy individuals. Chest pain and dyspnea are the
most common presenting symptoms and in majority
of cases only a chest X-ray is needed to confirm the
diagnosis. The initial treatment usually consist of a
chest tube drainage, however, persistent airleakage and
recurrent pneumothorax are frequent, these patients
often requiring surgery. Open thoracotomy was the
most common surgical approach with wedge resection
of the leaking part of the lung. Today, video-assisted
thoracoscopic surgery has in most centers replaced open
surgery for spontaneous pneumothorax. In this article the
presentation, diagnosis and treatment of spontaneous
pneumothorax, including different surgical strategies, are
reviewed in an evidence-based approach.
Key words: spontaneous pneumothorax, epidemiology,
pathophysiology, symptoms, diagnosis, treatment, surgery,
thoracotomy, VATS, chest tube, review.
Correspondence: Tómas Guðbjartsson
tomasgud@landspitali. is
Læknablaðið 2007/93 415