Læknablaðið - 15.05.2007, Blaðsíða 44
UMRÆÐA & FRÉTTIR / FUNDUR LR UM PÓLITÍK
Fögur fyrirheít í heilbrigðismálum
- um pólitík á kosningavori
Texti og myndir
Hávar
Sigurjónsson
„Það er til skammar hvernig geðheilbrigðisþjón-
usta fyrir ungt fólk er á íslandi, það er til skammar
hvernig öldruðum er sinnt og það er til skammar
hvernig farið hefur verið með Landspítalann þar
sem aðbúnaður sjúklinga og starfsfólks er fyrir
neðan allar hellur,” sagði Ragnar Daníelssen
hjartalæknir er hann steig í pontu á fundi sem
Læknafélag Reykjavíkur og Félag kvenna í lækna-
stétt efndu til með frambjóðendum allra flokka
fimmtudagskvöldið 26. aprfl til viðræðna um heil-
brigðis- og jafnréttismál. Fleiri úr hópi lækna tóku
í sama streng og lýstu niðurlægjandi aðstæðum og
sífellt auknum kröfum sem heilbrigðisstarfsfólk
reyndi að bregðast við með því einfaldlega að
„hlaupa hraðar,” einsog Hlynur Níels Grímsson
krabbameinslæknir komst að orði.
Fyrir svörum sátu Siv Friðleifsdóttir heilbrigð-
isráðherra fyrir Framsóknarflokkinn, Margrét
Sverrisdóttir fyrir íslandshreyfinguna, Magnús
Þór Hafsteinsson fyrir frjálslynda flokkinn,
Asta R. Jóhannesdóttir fyrir Samfylkinguna,
Álfheiður Ingadóttir fyrir Vinstri hreyfinguna
grænt framboð, Pétur Blöndal og Ásta Möller fyrir
Sjálfstæðisflokkinn.
Heilbrigðismálin hafa kannski ekki verið efst
á blaði í umræðum í aðdraganda kosninganna þó
sumir flokkar hafi viljað halda því fram að þessar
kosningar snúist um velferðarmál og hvert þjóðin
stefni í því efni. Vissulega hafa orðið breytingar á
heilbrigðiskerfinu á undanförnum árum, og sýnist
þar sitt hverjum um hvort þær hafi orðið til hins
betra eða verra. Stefnuyfirlýsingar flokkanna í
heilbrigðismálum bera sannarlega góðum hug vitni
og úr þeim má auðvitað lesa að allir vilja öllum vel
og að heilbrigði þjóðarinnar skuli tryggt sem best
en hvernig ná skuli þeim markmiðum er tekist á
um. Allir eru flokkarnir sammála um að heilbrigð-
isþjónustan eigi að standa öllum til boða, óháð
félagslegri stöðu eða efnahag. Hvernig þeim jöfn-
uði skuli náð eru skoðanir hinsvegar skiptar. Segja
má að meginmunurinn í áherslum flokkanna felist
í þvi hversu stórum hlut þeir telji að hið opinbera
eigi að sinna við rekstur og umsjón þjónustunnar.
Þá leggja flokkarnir mismunandi áherslur á vægi
einkareksturs í heilbrigðisþjónustunni sem og
hvort eða hversu stóran kostnaðarhlut sjúklingar
eigi að bera sjálfir.
Álflieiður Ingadóttir og
Ásta R. Jóhannesdóttir
hlýða á Sif Friðleifsdóttur
mœra heilbrigðiskerfið.
428 Læknablaðið 2007/93