Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.05.2007, Blaðsíða 22

Læknablaðið - 15.05.2007, Blaðsíða 22
FRÆÐIGREINAR / LOFTBRJÓST Mynd 1. Fjöldi aðgerða við sjálfkrafa loftbrjósti á Landspítala á þremur fimm ára tímabilum, frá 1991-2005. Sýndareru bœði opnar aðgerðir og brjóstholsspeglunar- aðgerðir. dómur og leggst aðallega á ungt og annars hraust fólk. I flestum tilvikum er orsökin talin vera rof á litlum blöðrum (blebs) sem staðsettar eru á toppi lungnanna (primary spontaneous pneumothorax, PSP) (1). Karlar eru í meirihluta og sjúkdómurinn er mun algengari hjá reykingafólki (2). I 10-40% tilfella hafa sjúklingar með sjálfkrafa loftbrjóst þekktan lungnasjúkdóm (krónískt berkjukvef og lungnaþemba) sem veldur loftbrjóstinu (second- ary spontaneous pneumothorax, SSP) (3-5). Þegar loftbrjóst er lítið (<20% samfall á lung- anu) kemur til greina að bíða og sjá til (1,6), ann- ars er yfirleitt komið fyrir kera í brjóstholinu sem tengdur er við sog. Oftast hættir loftlekinn eftir nokkurra daga sogmeðferð og ekki þörf á frek- ari meðferð. I sumum tilvikum stöðvast loftlek- inn ekki og verður þá að grípa til skurðaðgerðar. Algengari ábending fyrir skurðmeðferð er þó end- urtekið loftbrjóst (recurrent pneumothorax) sem sést í allt að 40% tilfella eftir kera- og sogmeðferð (6). Til samanburðar er tíðni endurtekins loft- brjósts undir 6% eftir skurðaðgerðir við loftbrjósti (3,4, 7-11). Þar sem líkur á endurteknu loftbrjósti aukast verulega með auknum fjölda loftbrjósta er oft gripið til skurðaðgerðar þegar sjúklingur leit- ar í annað eða þriðja skipti með loftbrjóst sömu megin (6,12). Fyrir rúmum áratug síðan voru skurðaðgerðir við sjálfkrafa loftbrjósti oftast framkvæmdar í gegnum brjóstholsskurð (thoracotomy). A síðustu árum hafa aðgerðir með brjóstholssjá (video-ass- isted thoracoscopic surgery, VATS) víðast hvar komið í stað opnu aðgerðanna (4,7,8). Fjöldi rann- sókna hefur sýnt að brjóstholsspeglunaraðgerð- irnar valda minni örum og verkjum og sjúklingarn- ir útskrifast fyrr en eftir hefðbundna opna aðgerð (4, 7, 8,13-15). Hins vegar hafa nokkrar erlendar rannsóknir sýnt aukna tíðni enduraðgerða vegna endurtekins loftbrjósts samanborið við opnar aðgerðir (14, 16-19), enda þótt það eigi ekki við um allar rannsóknir (14). Markmið þessarar rannsóknar var að kanna árangur skurðaðgerða við loftbrjósti á Landspítala á tímabilinu 1991-2005. Einnig var markmið rannsóknarinnar að bera saman árangur tveggja mismunandi aðgerða við loftbrjósti með sérstöku tilliti til snemm- og síðkominna fylgikvilla, og þá sérstaklega endurtekins loftbrjósts, tegundar aðgerðar, legutíma og aðgerðartíma. Efniviður og aðferðir Rannsóknarþýði: Rannsóknin er afturvirk og nær til allra einstaklinga sem fóru í aðgerð vegna loftbrjósts á Landspítala frá 1. janúar 1991 til 31. desember 2005. Alls voru sjúklingarnir 210 sem gengust undir samtals 234 aðgerðir, 160 karlar (76,2%) og 50 konur (23,8%). Af þessum 210 sjúklingum voru 200 sjúklingar með loftbrjóst án undirliggjandi lungnasjúkdóms (PSP, 95%) og tíu (5%) með loftbrjóst tengt lungnasjúkdómi (SSP). Meðalaldur sjúklinga var 28,7 ± 12,3 ár en sjúklingarnir voru á bilinu 12 til 75 ára gamlir. Af 234 aðgerðum voru 119 (50,9%) á vinstra lunga. Alls reyktu 98 sjúklingar (41,4%) við greiningu en 50 höfðu reykt áður. Upplýsingar um sjúklinga og aðgerðir voru fengnar úr sjúkraskrám og aðgerðalýsingum. Hjá fimm sjúklingum fundust upplýsingar ekki og var þeim sleppt úr rannsókninni. Nöfn sjúklinga fengust úr sjúklingabókhaldi spítalans og var bæði leitað að sjúklingum með greininguna loftbrjóst og þeim sem höfðu gengist undir aðgerð á lunga eða lungum. Til þess að tryggja að allir sjúklingar væru með í rannsókninni var einnig leitað í skrám Rannsóknarstofu Landspítala í meinafræði, rneðal annars að öllum sjúklingum sem farið höfðu í fleygskurð á lunga. Skráðar voru eftirfarandi breytur: aðgerðardag- ur og ár, aldur við aðgerð og kyn, reykingar og reykingasaga, tegund loftbrjósts og hlið, lungna- sjúkdómar, myndrannsóknir til greiningar, tegund aðgerðar, aðgerðartími, snemm- (innan viku frá aðgerð) og síðkomnir fylgikvillar, enduraðgerðir og legutími. Sérstaklega voru skráðir sjúklingar með síðkomið endurtekið loftbrjóst sem þörfn- uðust enduraðgerðar. Eftirlitstími frá aðgerð var 105 mánuðir (miðgildi) og var miðað við 1. mars 2006. Viðvarandi loftleki var skilgreindur sem loftleki sem stóð yfir í meira en fjóra daga frá aðgerð. Skurðdauði (operative mortality) var skil- greindur sem fjöldi sjúklinga sem létust innan 30 daga frá aðgerð. Skurðaðgerðirnar: Sjúklingarnir 210 geng- ust undir tvenns konar aðgerðir (n=234), annars vegar brjóstholsspeglun (n=134) og hins vegar opna brjóstholsaðgerð (n=100). í brjóstholsspegl- unaraðgerðunum var tvöfaldri berkjupípu (double 406 Læknablaðið 2007/93
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.