Læknablaðið - 15.05.2007, Qupperneq 23
FRÆÐIGREINAR / LOFTBRJÓST
lumen intubation) komið fyrir þannig að hægt væri
að fella saman það lunga sem aðgerð var gerð á.
Sjúklingnum var komið fyrir í 90° hliðarlegu og
lunganu haldið samanföllnu með C02 sem blásið
var inn í fleiðruholið. Síðan var þremur holstingj-
um (trocars) komið fyrir í brjóstveggnum, þar af
einum fyrir myndavél sem tengd var við brjóst-
holssjá (10 mm/30°).Töngum og öðrum verkfærum
var síðan komið fyrir í gegnum hin götin, meðal
annars sérstakri heftibyssu (Autosuture® eða
Ethicon®). Heftibyssan var notuð til að hefta fyrir
og fjarlægja þær blöðrur sem fundust á lunganu
(fleygskurður). í sumum tilvikum var einnig gerð
svokölluð fleiðruerting (pleurodesis) auk fleyg-
skurðarins, en þá er fleiðran nudduð ýmist með
sandpappír eða grisju (sjá töflu III). Einnig var
notast við talkúm duft í nokkrum tiIfellum.Talkúm
veldur bólgu í fleiðrunni sem örvar myndun sam-
vaxta, en samvextirnir eiga að koma í veg fyrir
endurtekið samfall á lunganu síðar meir. Einnig
fóru nokkrir sjúklingar í brottnám á hluta fleiðr-
unnar, oftast fleiðrunni fyrir ofan lungnatoppana
(partial pleurectomy).
I opinni aðgerð var svæfing og uppstilling sjúk-
lings svipuð og í brjóstholsspeglunaraðgerð. Farið
var í gegnum 6-10 cm skurð á brjóstveggnum,
langoftast í gegnum þriðja eða fjórða millirifjabil
(mini-axillary thoracotomy). Lungað var lekapróf-
að og síðan framkvæmdur fleygskurður með eða
án fleiðruertingar á svipaðan hátt og í brjósthols-
speglunaraðgerð. f lok bæði opinna og speglunar-
aðgerða var komið fyrir einum brjóstholskera sem
tengdur var við sog (-20 cm H20).
Eftirmeðferð og eftirlit:Að skurðaðgerð lokinni
var tekin lungnamynd af sjúklingi. Sjúklingarnir
lágu yfirleitt inni í þrjá til fimm daga, eða þar til
þeir höfðu jafnað sig á verkjum og loftleki hættur.
Viku eftir útskrift komu sjúklingarnir í myndatöku
og svo aftur mánuði seinna ef ástæða þótti til.
Yfirleitt var ekki um frekara eftirlit að ræða.
Tölfrœðiaðferðir: Upplýsingar voru skráðar í
forritið Excel og það ásamt tölfræðiforritunum
Sigmastat 3.1 og SPSS notað til tölfræðiúrvinnslu.
Normaldreifðar stærðir (til dæmis aldur og
aðgerðatími) voru bornar saman með t-prófi og
Chi-square próf eða Fisher Exact próf notað fyrir
ósamfelldar breytur og flokkabreytur. Marktæki
miðaðist við p-gildi <0,05.
Leyfi: Aður en rannsóknin hófst voru fengin til-
skilin leyfi frá Persónuvernd og Vísindasiðanefnd
Landspítala.
Nidurstöður
Á þeim 15 árum sem rannsóknin náði til voru
framkvæmdar 234 aðgerðir á 210 sjúklingum
Tafla 1. Upplýsingar um sjúklinga (sýndur er fjöldi aðgerða og % í sviga).
Brjóstholsspeglun n=134 Opin aðgerð n=100* p-gildi
Karlar 106 (79,1) 74 (74) óm
Konur 28 (20,9) 26 (26) óm
Aldur, meðalaldur ± sf 27,1 ±10,2 ár 30,9 ± 14,4 ár
(bil) (15-68) (12-75) óm
Tegund loftbrjósts
„Prímert” loftbrjóst (PSP) 131 (97,8) 90 (90) óm
„Sekúndert" loftbrjóst (SSP) 3(2,2) 10** (10) 0,01
Staðsetning loftbrjósts
Hægra lunga 62 (46,3) 51 (51) óm
Vinstra lunga 71 (53) 48 (48) óm
Bæði lungu samtímis 1(0,7) 1(1) óm
*þar af 17 sjúklingar sem snúió var úr brjóstholsspeglun í opna aögerö
**þar af 3 brjóstholsspeglanir sem snúið hafði veriö í opna aógerö
óm = ómarktækt; sf = staöalfrávik
Tafla II. Ábendingar fyrir skurðaðgerð (sýndur er fjöldi aðgerða og % í sviga).
Brjóstholsspeglun n=134 Opin aðgerð n=100
Fyrsta loftbrjóst 46 (34,3) 33 (33)
Fyrsta endurtekið loftbrjóst 49 (36,6) 37 (37)
Annað eða þriðja endurtekið loftbrjóst 25 (18,7) 15(15)
>3 endurtekningar í sama lunga 4(3,0) 4(4)
Fyrsta endurtekið loftbrjóst í gagnstæðu lunga 9(6,7) 10 (10)
Loftbrjóst samtímis í báðum lungum 1(0,7) 1(1)
Samtals 134(100) 100 (100)
vegna sjálfkrafa loftbrjósts. Að meðaltali voru því
framkvæmdar 15,6 ± 6,3 aðgerðir á ári og sveifl-
aðist fjöldi aðgerða frá 8-29 milli ára. Ekki var þó
um marktæka aukningu að ræða þegar borinn var
saman fjöldi aðgerða á þremur fimm ára tímabil-
um (mynd I).
Upplýsingar um sjúklingana er að finna í töflu
I. Flestar aðgerðanna, eða 221 (94,4%), voru fram-
kvæmdar vegna loftbrjósts þar sem sjúklingarnir
höfðu ekki þekktan lungnasjúkdóm (PSP) en 13
höfðu þekktan lungnasjúkdóm (SSP). Af sjúkling-
um í síðari hópnum voru sjö með lungnaþembu og
fóru marktækt fleiri úr þessum hópi í opna aðgerð
en í brjóstholsspeglun (p=0,01). I opna hópnum
voru 17 sjúklingar sem upphaflega fóru í brjóst-
holsspeglun en aðgerðinni var snúið í opna aðgerð,
oftast vegna samvaxta sem gerðu brjóstholsspegl-
un erfiða. Ein stúlka gekkst undir skurðaðgerð
vegna tíðaloftbrjósts. Ekki var marktækur munur
á fjölda hægri og vinstri loftbrjósta í aðgerðarhóp-
unum. Meðalaldur sjúklinga í opna hópnum var
heldur hærri en í brjóstholsspeglunarhópnum og
munaði 3,8 árum (tafla I). Þessi munur reyndist þó
ekki marktækur.
Læknablaðið 2007/93 407