Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.05.2007, Síða 45

Læknablaðið - 15.05.2007, Síða 45
UMRÆÐA & FRÉTTIR / FUNDUR LR UM PÓLITÍK Best í heimi I máli Sivjar Friðleifsdóttur kom m.a. fram hún kvaðst telja heilbrigðisþjónustuna á Islandi með því besta sem gerist. „Og þá er sama eftir hvaða mælikvarða er farið. Ekkert annað Norðurlandanna ver meiri fjármunum til heil- brigðisþjónustu en Island ef miðað er við verga landsframleiðslu. Þjónustugjöld er einnig afar lág, um 17%, og er með því lægsta sem gerist í OECD löndunum. Við höfum ekki viljað styðja hugmyndir um einkavæðingu heilbrigðisþjónustunnar en við styðjum hugmyndir um einkarekstur á ákveðnum sviðum þar sem það á við.” Siv nefndi einnig sér- staklega að biðlistar hefðu verið að styttast á und- anförnum vikum og í öðrum tilvikum stæðu þeir í stað. Þetta væri jákvætt merki um að þjónustan væri eflast. Siv sagði ennfremur að ákveðnir bið- listar væru „falskir” þar sem fólk setti sig á biðlista eftir sjúkrarýmum en vildi og gæti í rauninni verið heima ef sveitarfélögin stæðu sig betur í hlutverki sínu gagnvart skjólstæðingum sfnum. Félagslegur jöfnuður „íslenska heilbrigðisþjónustan er mjög góð. Hún er bara því miður ekki fyrir alla. Það er ekki sæm- andi þjóð sem býr við annað eins ríkidæmi að við skulum útiloka heilu þjóðfélagshópana frá góðri þjónustu,” sagði Álfheiður Ingadóttir frambjóð- andi Vinstri grænna og nefndi bæði ungt fólk með geðsjúkdóma og aldraða til stuðnings máli sínu. Hún bætti því við að það væri heldur ekki sæmandi að reistir væru fjárhagslegir þröskuldar í heilbrigð- isþjónustunni sem þeir sem minnst hefðu á milli handanna kæmust ekki yfir.” Álfheiður sagði stefnu Vinstri grænna kristall- ast í jafnaðarhugsjóninni, að allir ættu jafnan rétt til þjónustunnar. „Félagslegur jöfnuður er okkar grundvallarstefna og allir íslendingar þurfa á þjón- ustu heilbrigðiskerfisins að halda einhvern tíma á lífsleiðinni.Við eigum að borga fyrir heilbrigðis- þjónustuna á meðan við erum heilbrigð. Við eigum ekki að bíða eftir því að vera orðin veik og komin inn á gang á sjúkrahúsi og eiga þá að draga upp budduna. Við viljum samtryggingu í þessu kerfi. Ekki má gleymast að launakjör í umönnunarstétt- um eru með hætti að ekki fæst fólk til starfa. Það þarf að endurreisa virðinguna í samfélaginu fyrir starfsfólkinu, börnunum, sjúklingnum, gamla fólk- inu, fötluðum, geðsjúkum og það gerist ekki í einu vetfangi en það þarf að gerast. Við viljum ekki sjá tvöfalt kerfi og einkavæðingu í heilbrigðiskerfinu. Vissa okkar er sú að það sé mögulegt að byggja upp góða samfélagsþjónustu og það þurfi ekki endilega hagnaðarvonina til að menn skili góðri vinnu.” Fundarstjórinn Sigurður Böðvarsson skipti tím- anum bróðurlega á milli frambjóðendanna. F.v: Margrét Sverrisdóttir, Ásta Möller, Pétur Blöndal, Magnús Pór Hafsteinsson, Álfheiður Ingadóttir, Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir og Siv Friðleifsdóttir. Markaðslausnir þar sem þær eiga við „Við erum hlynnt markaðslausnum í heilbrigð- iskerfinu þar sem hægt er að koma því við. Leitum fleiri slíkra lausna þar sem það getur gefist vel,” sagði Margrét Sverrisdóttir frambjóðandi íslandshreyfingarinnar. „Stóra spurningin varð- Læknablaðið 2007/93

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.