Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.05.2007, Page 55

Læknablaðið - 15.05.2007, Page 55
UMRÆÐA & FRÉTTIR / FUNDIR Á aðalfundi Læknafélags Reykjavíkur var sam- þykkt að félagið legði allt að 25 milljónir króna til byggingar lækningaminjasafns í Nesi við Seltjörn. í samþykkt fundarins er kveðið svo á að upphæðin verði aldrei hærri en sú upphæð sem Læknafélag íslands kann að leggja fram í sama skyni. Framlagið er háð því skilyrði að Seltjarnarnesbær gangist fyrir uppbyggingu og rekstri lækningaminjasafns- ins með þátttöku ríkissjóðs lögum samkvæmt. Á fundinum urðu líflegar umræður um þessa tillögu en að lokum var hún samþykkt með öllum greiddum atkvæðum gegn einu. Talsverður tími fundarins fór í lagabreyting- artillögur og kynnti Olafur Þór Ævarsson tillögur lagabreytinganefndar. Voru allar tillögur sam- þykktar samhljóða þó nokkrar umræður yrðu um orðalag einstakra greina og í stöku tilfellum voru gerðar lagfæringar samkvæmt því áður en breyt- ingin var endanlega samþykkt. Við stjórnarkjör var farið eftir nýju lögunum og stjórnarmönnum fækkað úr tólf í níu. Úr stjórn gengu þrír og þrír nýir meðstjórnendur voru kjörn- ir: Þorbjörn Jónsson, Halla Skúladóttir og Elínborg Guðmundsdóttir. I afmælisnefnd félagsins vegna 100 ára afmælis LR 2009 voru kosin Olafur Þór Ævarsson formað- ur, Óskar Einarsson, Gestur Þorgeirsson, Högni Óskarsson, Magni Jónsson, Halla Skúladóttir, Friðný Jóhannsdóttir, Elínborg Guðmundsdóttir, Hildur Svavarsdóttir og Anna K. Jóhannsdóttir. Þá var tilkynnt að Þorkell Bjarnason rönt- genlæknir hefði verið valinn heiðursfélagi LR og verður honum afhent viðurkenningarskjal á árshátíð LR 2008. Fundargerð og ályktanir má sjá á heimasíðu LR, www.lis.is Ólafur Pór Ævarsson í pontu á aðalfundi LR. Hávar Sigurjónsson Vorfundur ritstjórnar á Búðum Ritstjórn Læknablaðsins ásamt starfsmönnum blaðsins hélt vor- fund á Hótel Búðum þann 20. apríl. Á fundinum var farið yfir vinnuferla varðandi frágang og skil á greinum í blaðið og er þar stuðst við reglur Vancouverhópsins frá 1998 og einnig tekið mið af reglum danska læknablaðsins. Auk þess hefur Læknablaðið sett sér eigin reglur um lengd og frá- gang greina sem felldar hafa verið inn í þær heild- arreglur sem ritstjórn hefur komið sér saman um. Rétt er að taka fram að ritstjórn á hverjum tíma hefur svigrúm til að setja sér vinnureglur og hefur sú ritstjórn sem nú starfar lagt talsverða vinnu í að gera þær sem skýrastar og aðgengilegastar. Að öðru leyti eru ritstjórnarfundir haldnir mánaðarlega í kjölfar útkomu hvers blaðs þar sem farið er yfir nýútkomið blaðið og lagðar línur að því næsta. Karl Andersen, Engilbert Sigurðsson og Tómas Guðbjartsson eru einbeitt- ir á svip yftr vinnureglum Lœknablaðsins. Ritstjórnarfulltrúinn Védís Skarphéðinsdóttir gerir til- lögur að hámarkslengd og frágangi greina í blaðið. Læknablaðið 2007/93 439

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.