Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.05.2007, Page 57

Læknablaðið - 15.05.2007, Page 57
Ertu á lausu? Það vantar mann í Heilsutríóið á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga á Húsavík frá hausti komandi. Viðkomandi verður að vera læknir og vilja vinna sem slíkur á staðnum. Hljóðfærakunnátta ekki mjög nauðsynleg! Auk þess lýsum við eftir deildarlækni á Sjúkrahúsið á Húsavík í eitt ár frá 1. september nk. Innifaldar í stöðunni eru vaktir á heilsugæslu. Áhugasamir eða forvitnir hafi samband við Unnstein Júlíusson, s. 860 7748, eða Ásgeir Böðvarsson, s. 860 7726. SjúKrahúslð og hcilsugozslustöðin é AKrancsi Heilsugæslulæknar, Akranes Lausar eru til umsóknar tvær stöður heilsugæslulækna við heilsugæslusvið SHA. Við leitum að framtíðarfólki til að styrkja enn frekar gott starf í heilsugæslunni og bjóðum prýðilegt starfsumhverfi og ágæt starfskjör. Ennfremur er í boði húsnæði á kostakjörum. Um er að ræða fullt starf í báðum tilvikum eðs skv. samkomulagi. Umsóknum ber að skila á þar til gerðu eyðublaði, sem fæst á skrifstofu landlæknis og á heimasíðu embættisins. Mikilvægt er að fylgi staðfest afrit af starfsvottorðum, vottorðum um próf og nám, leyfisveitingum og vísindaritgerðum. Upplýsingar gefa Reynir Þorsteinsson yfirlæknir og Þórir Bergmundsson lækningaforstjóri í síma 430 6000. Umsókn sendist Guðjóni S. Brjánssyni, framkvæmdastjóra stofnunarinnar, Merkigerði 9, 300 Akranes. Umsóknarfrestur ertil 25. maí nk. Sérfræðingur í barnalækningum Laus er til umsóknar hlutastaða barnalæknis við Sjúkrahúsið og heilsugæslustöðina á Akranesi. Staðan er laus frá 1. maí n.k. eða samkvæmt nánara samkomulagi. Umsækjendur skulu hafa sérfræðiréttindi í barnalækningum. Nánari upplýsingar um starfið gefa Reynir Þorsteinsson yfirlæknir heilsugæslustöðvarinnar og Þórir Bergmundsson lækningaforstjóri SHA, sími 430 6000 og tölvupóstföng: reynir.thorsteinsson@sha.is og thorir.bergmundsson@sha.is. Umsóknir skulu sendar Guðjóni S. Brjánssyni framkvæmdastjóra, Sjúkrahúsið og heilsugæslustöðin, Merkigerði 9, 300 Akranes. Umsóknarfrestur er til 25. maí n.k. Sjúkrahúsið og heilsugæslustöðin á Akranesi (SHA) skiptist í sjúkrasviði og heilsugæslusvið. Á sjúkrasviði er starfrækt fjölgreinasjúkrahús með örugga vaktþjónustu allan sólarhringinn árið um kring. Sjúkrahúsið veitir almenna og á vissum sviðum sérhæfða sjúkrahúsþjónustu á lyflækningadeild, handlækningadeild, kvennadeild, öldrunarlækningadeild og á vel búnum stoðdeildum þar sem höfuð áhersla er lögð á þjónustu við íbúa Vestur- og Suðvesturlands. Jafnframt er vaxandi áhersla lögð á þjónustu við íbúa höfuðborgarsvæðisins. Á heilsugæslusviði er veitt almenn heilsugæsluþjónusta fyrir íbúa í heilsugæsluumdæmi Akraness með forystuhlutverk varðandi almenna heilsuvernd og forvarnarstarf. SHA tekur þátt í menntun heilbrigðisstétta í samvinnu við Háskóla íslands og aðrar menntastofnanir. Starfsmenn stofnunarinnar eru um 240 talsins. Læknablaðið 2007/93 441

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.