Læknablaðið - 15.11.2009, Side 4
EFNISYFIRLIT
Frágangur
fræðilegra greina
Höfundar sendi tvær gerðir handrita
til ritstjórnar Læknablaðsins,
Hlíðasmára 8, 201 Kópavogi.
Annað án nafna höfunda, stofnana
og án þakka sé um þær að ræða.
Greininni fylgi yfirlýsing þess efnis
að allir höfundar séu samþykkir
lokaformi greinar og þeir afsali sér
birtingarrétti til blaðsins.
Handriti skal skilað með tvöföldu
línubili á A-4 blöðum. Hver hluti
skal byrja á nýrri blaðsíðu í eftirtal-
inni röð:
• Titilsíða: höfundar, stofnanir,
lykilorð á ensku og íslensku
• Ágrip og heiti greinar á
ensku
• Ágrip á íslensku
• Meginmál
• Þakkir
• Heimildir
Töflur og myndir skulu vera bæði
á ensku og íslensku.
Tölvuunnar myndir og gröf komi
á rafrænu formi ásamt útprenti.
Tölvugögn (data) að baki gröfum
fylgi með, ekki er hægt að nýta
myndir úr PowerPoint eða af net-
inu.
Eftir lokafrágang berist allar greinar
á tölvutæku formi með útprenti.
Sjá upplýsingar um frágang fræði-
legra greina:
www.laeknabladid.is/fragangur-
greina
RITSTJÓRNARGREINAR
Bryndís Benediktsdóttir 743
Heilsa, lífsgæði og krónur
Fjárframlög til heilbrigðismála skerðast vegna kreppunnar og
þá þarf að skoða allan kostnað gaumgæfilega svo að tiltækt
fé komi að sem bestum notum.
Runólfur Pálsson
Háskólaspítali í kreppu 745
Ómarkviss niðurskurður fjár til Landspítala getur skaðað
starfsemina og læknar þurfa að hafa forgöngu um
stefnumótun heilbrigðisþjónustunnar.
FRÆÐIGREINAR
Tinna Laufey Ásgeirsdóttir, Gyða Ásmundsdóttir, María Heimisdóttir, 747
Eiríkur Jónsson, Runólfur Pálsson
Kostnaðarvirknigreining á meðferð
við nýrnabilun á lokastigi
Nýrnabilun á lokastigi krefst lífsnauðsynlegrar og kostnaðarsamrar meðferðar, annaðhvort
skilunar eða ígræðslu nýra. Tilgangur þessarar rannsóknar var að bera saman kostnaðarvirkni
ígræðslu nýra og skilunarmeðferðar á íslandi.
Hildur Halldórsdóttir, Fjóla Katrín Steinsdóttir, Arna Guðmundsdóttir,
Jakob Smári, Eiríkur Örn Arnarson
Sjúkdómsmynd og meðferðarheldni ungs fólks
með insúlínháða sykursýki eftir flutning yfir á
göngudeild fyrir fullorðna
Rannsóknir benda til þess að þunglyndi og langvarandi sjúkdómar líkt og sykursýki virki
saman, einkenni sjúkdóms ágerist með auknu þunglyndi. Þunglyndiseinkenni hafa verið tengd
verri sjálfsstjórn, of háum blóðsykri, auknum líkum á fylgikvillum, minni virkni, fleiri heimsóknum
á bráðamóttöku, fleiri innlögnum á sjúkrahús og auknum heilbrigðiskostnaði.
Umræðuhluti
Skilafrestur efnis í næsta blað
er 20. hvers mánaðar nema
annað sé tekið fram.
740 LÆKNAblaðið 2009/95
Kristinn Tómasson, Gunnar Guðmundsson 763
Geðheilsa og líðan íslenskra bænda
Bændur virðast hafa færri merki um andlega vanheilsu en úrtak fólks úr samfélaginu. Þrátt fyrir
minni áfengisvanda almennt talað eru þeir oftar í þeirri stöðu að sinna starfi sínu undir áhrifum
víns.
Hjalti Már Björnsson, Ása Elísa Einarsdóttir, Michael V. Clausen
Ofnæmi og húðsýking eftir notkun
á henna húðflúri - sjúkratilfelli
í Ijósi þess hversu vel þekkt hættan af svörtu henna er minnir þessi sjúkrasaga á hversu
mikilvægt er að eftirlit með notkun svona efna sé fullnægjandi.