Læknablaðið - 15.11.2009, Blaðsíða 6
AVANDIA (rósíglítasón ATC-A10BG02),
AVANDAMET (rósíglitasón og metformín ATC-A10BD03)
og AVAGLIM (rósíglítasón og gllmepíríð ATC-A10BD04).
Blóðsykurslækkandi lyf til inntöku.
Ábendingar: AVANDIA er ætlað til meðferðar gegn sykursýki af
tegund 2: Eitt sér-hjá sjúklingum sem ekki ná stjórn á blóðsykri
með mataræði og hreyfingu og sem metformin hentar ekki
vegna frábendinga eða óþols. í tveggja lyfja meðferð til
inntöku ásamt metforminí, hjá sjúklingum með ófullnægjandi
stjórn á blóðsykri þrátt fyrir hæsta skammt af metformini sem
þeir þola eða ásamt súlfónýlúrealyfi, eingöngu hjá sjúklingum
sem ekki þola metformin eða mega ekki taka metformín, sem
hafa ófullnægjandi stjórn á blóðsykri þrátt fyrir meðferð með
súlfónýlúrealyfi einu sér. I þriggja lyfja meðferð til inntöku
ásamt metformíni og súlfónýlúrealyfi, hjá sjúklingum með
ófullnægjandi stjórn á blóðsykri þrátt fyrir tveggja lyfja meðferð
til inntöku. AVAGLIM er ætlað til meðferðar á sykursýki af gerð
2, fyrir þá sjuklinga sem ekki ná fullnægjandi stjórn á blóðsykri
með ákjósanlegum skammti af súlfónýlúrea eingöngu, og geta
ekki notað metformin vegna frábendingar eða óþols.
AVANDAMET er ætlað til meðferðar fyrir sjúklinga sem hafa
sykursýki af tegund 2, sérstaklega fyrir þá sjúklinga sem eru of
þungir og hafa ekki náð fullnægjandi stjómun á blóðsykri með
þeim hámarksskammti sem þeir þola af metformini til inntöku,
einu sér eða sem hluti af þriggja lyfja meðferð til inntöku ásamt
súlfónýlúrealyfi, hjá sjúklingum með ófullnægjandi stjórn á
blóðsykri þrátt fyrir tveggja lyfja meðferð til inntöku með þeim
hámarksskammti sem þeir þola af metformini og súlfónýlúrealyfi.
Skammtar: Venjulega hefst Avandia meðferð á 4 mg/dag.
Þennan skammt má hækka í 8 mg/dag eftir átta' vikur, ef þörf er
á aukinni blóðsykursstjórn. Venjulegur upphafsskammtur af
Avandamet er 4 mg/dag af rósíglítazóni og 2000 mg/dag af
metformín hýdróklóríði. Rosíglítazón má auka i 8 mg/dag eftir 8
vikur ef þörf er fyrir aukna blóðsykursstjómun. Ráðlagður
hámarksskammtur á dag af Avandamet er 8 mg af rósíglítazóni
auk 2000 mg af metformínhýdróklóriði. Avaglim meðferð á að
aðlaga að hverjum og einum sjúklingi. Áður en meðferð með
Avaglim er hafin skal fara fram viðeigandi kiínisk skoðun til þess
að meta hættuna á þvi að blóðsykurslækkun verði of mikil.
Hámarksskammtur af Avaglim á dag er 8 mg af rósíglítazóni/4
mg af glimepiriði. Frábendingar: Ekki má nota (Avandia,
Avandamet, Avaglim) hjá sjúklingum með: -þekkt ofnæmi fyrir
rosiglitazom eða einhverju hjálparefnanna (Avandia, Avandamet
og Avaglim) - hjartabilun eða sögu um hjartabilun (Avandia,
Avandamet, Avaglim) - brátt kransæðaheilkenni (hvikul
hjartaöng, hjartadrep án ST-hækkunar og hjartadrep með ST
hækkun) (Avandia, Avandamet, Avaglim) - skerta lifrarstarfsemi
(Avandia, Avandamet, Avaglim) -ketónblóðsýringu eða dá af
völdum sykursýki. (Avandia, Avandamet, Avaglim) - bráða eða
langvinna sjúkdóma sem geta valdið súrefnisskorti i vefjum svo
sem: hjarta- eða öndunarbilun, nýlegt hjartadrep, lost.
(Avandamet) - bráða áfengiseitrun, áfengissýki (Avandamet) -
nýmabilun eða skerta nýrnastarfsemi (Avandamet, Avaglim) -
bam a brjósti (Avandamet) - insúlinháða sykursýki (Avaglim).
Sérstök vamaðarorð og varúðarreglur við notkun (Avandia,
Avandamet, Avaglim). Tíazólidíndión lyf geta valdið vökvasöfnun
sem getur aukið eða framkallað einkenni um hjartabilun.
Mjólkursýrublóðsýring er mjög sjaldgæf en alvarleg aukaverkun,
sem getur komið fram vegna uppsöfnunar á metformíni.
Sjúklingar á Avaglim meðferð geta átt á hættu að verða fyrir of
rnikilli skammtaháðri blóðsykurslækkun. Aukin tiðni hjartabilunar
hefur sést i klínískum rannsóknum þegar rósíglítazón er notað i
samsettri meðferð með insúlini. Fyrirliggjandi gögn benda til
þess að meðferð með rósíglitazóni geti tengst aukinni hættu á
blóðþurrð i hjarta. Stöku sinnum hefur verið greint frá
vanstarfsemi lifrarfrumna eftir að lyfið kom á markað. Eftir
markaðssetningu lyfsins hefur verið greint frá nýjum tilfellum eða
versnun dílabjúgs vegna sykursýki. Aukin tíðni beinbrota (fótur,
hönd og handleggur) kom fram í langtimarannsókn hjá konum
sem tóku rósiglítazón eitt sér. Milliverkanir við önnur lyf og
aðrar milliverkanir: I in vitro rannsóknum sést að rósiglitazón
umbrotnar aðallega fyrir tilstilli CYP2C8 og er CYP2C9 þar
aðeins minni háttar ferii. Engar formlegar rannsóknir hafa verið
gerðar á milliverkunum Avandamet og Avaglim. Meðganga og
brjóstagjöf: Lyf sem innihalda rósíglftazón ætti ekki að nota á
meðgöngu né hjá konum með barn á brjósti. Aukaverkanin
Blóðleysi, blóðfituhækkun, þyngdaraukning, blóðþurrð í hjarta,
hægðatregða, svimi, bjúgur, beinbrot, blóðsykurlækkun
(Avaglim).
Pakkningar og verð mai 2008:
Avandia: 4mg 28 stk. kr. 6.229,4mg 56 stk. kr. 9.911,8mg 28 stk.
kr. 8.100
Avandamet: 1mg/500 mg 112 stk. kr. 6.044, 2mg/500mg 112
stk. kr.10.040, 2mg/1000 mg 56 stk. kr.5.944,2mg/1000 mg 112
stk. kr.11.109,4mg/1000 mg 56 stk. kr. 9.867,4 mg/1 OOOmg 112
stk. kr. 18.470.
Avaglim: 4mg/4mg 28 stk. kr. 6.669,4mg/4mg 84 stk. kr. 17.305
8mg/4mg 28 stk. kr. 9.465,8mg/4mg 84 stk. kr.24.963.
Lyfin eru að fullu greidd af almannatryggingum (R*)
Handhafi markaðsleyfis: GlaxoSmithKline ehf.
Þverholti 14.105 Reykjavík
Nanari upplýsingar á íslensku eru á httpY/www.seriyfjaskra.is.
GlaxoSmithKline
á A
/SSSSKlSIDI rosiglitaz
1 Wm !
rifc