Læknablaðið - 15.11.2009, Blaðsíða 22
FRÆÐIGREINAR
RANNSÓKN
Tafla V. Notkun þátttakenda á tilteknum lyfjum.
Lyf Fjöldi
Konur Karlar Alls
Engin 8 (40%) 20 (58,8%) 28(51,9%)
Blóðþrýstingslyf 3(15%) 7 (20,6%) 10(18,5%)
Hormónar 1 (5%) 2 (5,9%) 3 (5,6%)
Geðlyf 4 (20%) 4 (11,8%) 8(14,8%)
Blóðþrýstings- og geðlyf 1 (5%) 0 1 (1,9%)
Blóðþrýstings- og blóðfitulækkandi lyf 1 (5%) 1 (2,9%) 2 (3,7%)
Blóðþrýstingslyf og hormónar 1 (5%) 0 1 (1,9%)
Hormónar, blóðþrýstings-.blóðfitulækkandi- og geðlyf 1 (5%) 0 1 (1,9%)
notuðu blóðþrýstingslyf. Tæp 19% notuðu geðlyf,
þar af 20% kvenna og 11,8% karla.
Þegar þátttakendur voru spurðir út í hreyfingu
sögðust 22 (39,3%) hafa fengið ráðleggingar um
hverskonar hreyfing hentaði þeim best. Af þeim
sögðust tíu (45,5%) aldrei eða sjaldan fara eftir þeim
ráðleggingum. Þrjátíu og sex (62,5%) þátttakendur
sögðust hreyfa sig almennt reglulega, konur í 70%
tilfella en karlar í 58,3% tilfella. Flestir sögðust
hreyfa sig að meðaltali tvisvar til þrisvar sinnum á
viku og að meðaltali sögðust þátttakendur hreyfa
sig í rúmlega 60 mínútur í senn.
Þegar kom að mataræði sagðist tæplega
helmingur þátttakenda „oft" borða þá fæðu á
dag sem þeim væri ráðlagt. Einungis einn sagðist
aldrei fara eftir ráðleggingum en fimm alltaf.
Það hafði marktæka fylgni við þunglyndi hversu
vel þátttakendur fóru eftir ráðlögðu mataræði
miðað við a=0,05 (r=-0,30, p=0,024) og kvíða
miðað við a=0,01 (r=-0,35, p=0,01). Þeir sem fara
ekki eftir ráðlögðu mataræði virðast því finna
meira fyrir þunglyndi og kvíða en þeir sem fara
eftir ráðleggingum.
Þegar þátttakendur voru spurðir út í reykinga-
og vímuefnaneyslu kom í ljós að einn fjórði
þátttakenda reykir. Marktækur munur er á
heildarskorum þeirra þátttakenda sem reykja og
þeirra sem gera það ekki á kvörðum sem mæla
þunglyndi og kvíða eða t (16,97) = 2,53, p=0,022
fyrir þunglyndi og t (20,96) = 3,21, p=0,004 fyrir
kvíða. Munurinn var í þá átt að þeir sem reykja
mældust með fleiri einkenni kvíða og þunglyndis.
Um þrír fjórðu þátttakenda sögðust neyta
áfengis. Af þeim sögðust nítján (46,3%) neyta þess
Tafla VI. Tengsl stjómar sem þátttakendur töldu sig hafa á sykursýki við HbA1c-gildi og
heildarskor á kvörðum sem mæla kvíða, þunglyndi og vandamál tengd sykursýki (PAID).
Kvíði Þunglyndi PAID Síðasta HbA1c á barnadeild Fyrsta HbA1c á D-G3 Nýjasta HbA1c á D-G3
Upplifuð stjórn -0,28* -0,36" -0,60" -0,45" -0,43" -0,50"
* p<0,05 ** p<0,01 - D-G3 = göngudeild sykursjúkra
einu sinni í mánuði eða sjaldnar, nítján (46,3%)
tvisvar til fjórum sinnum í mánuði, tveir (4,9%)
tvisvar til þrisvar sinnum í viku og einn (2,4%)
fjórum sinnum eða oftar í viku. Sex sögðust
fá sér einn til tvo drykki á dæmigerðum degi
þegar þeir drekka áfengi, fimmtán þrjá til fjóra
drykki, fimmtán fimm til sex drykki og sex sjö
eða fleiri drykki. Einn þátttakandi sagðist neyta
annarra vímuefna en áfengis einu sinni í mánuði
eða sjaldnar, einn tvisvar til fjórum sinnum í
mánuði og tveir tvisvar til þrisvar sinnum í
viku en tveir þátttakendur svöruðu ekki. Fylgni
(Spearman rho) á milli áfengisneyslu og fjölda
fylgikvilla var ekki marktæk, þótt hún væri nálægt
marktektarmörkum (a=0,05) (Spearman rho=-
0,26, p=0,06). Fylgni áfengisneyslu og fjölda lyfja
var marktæk miðað við a=0,01 (Spearman rho=-
0,48, p=0,001). Þeir sem nota fleiri lyfjategundir
virðast neyta áfengis og annarra vímuefna sjaldnar
og í minna magni.
Rúmlega helmingur þátttakenda eða 31 sögðust
fylgjast með umræðu og fræðslu um sykursýki og
29 þátttakendur töldu sig vita frekar mikið um
sjúkdóminn. Flestir þátttakendur eða 38 töldu sig
stjórna sykursýkinni „nokkuð" til „talsvert" vel.
Fimm karlar töldu sig stjórna sykursýkinni vel en
það gerði engin kona. Fimm karlar og fimm konur
töldu sig stjóma sykursýkinni „frekar illa", engin
kona taldi sig stjóma sykursýkinni illa en það
gerðu tveir karlar.
Eins og sjá má í töflu VI hafði sú stjórn sem
þátttakendur töldu sig hafa á sykursýki marktæka
neikvæða fylgni við allar þrjár HbAlc-mælingar,
þannig að því meiri stjóm sem þeir töldu sig hafa
þeim mun lægra var HbAlc-gildi þeirra. Marktæk
fylgni reyndist vera á milli þess hve mikla stjórn
þátttakendur töldu sig hafa á sykursýkinni og
kvíða, þunglyndis og upplifunar á vandamálum
tengdum því að vera með sykursýki (PAID).
Eftir því sem þátttakendur töldu sig hafa betri
stjóm þeim mun minna virtust þeir finna fyrir
þunglyndi, kvíða og vandamálum tengdum því
að vera með sykursýki.
Umræða
Flestir sem eru með insúlínháða sykursýki grein-
ast á unga aldri og eru í reglubundnu eftirliti á
göngudeild fyrir börn og unglinga til um 18 ára
aldurs. Hingað til hefur reynslan bent til þess að
oft dragi úr mætingu í eftirlit þegar þeir flytjast af
göngudeild fyrir börn og unglinga yfir á göngu-
deild fullorðinna. Greinin varpar ljósi á þá þætti
sem þarf að huga betur að í meðferð eftir flutning
af göngudeild fyrir börn og unglinga yfir á göngu-
deild fullorðinna.
758 LÆKNAblaðið 2009/95