Læknablaðið - 15.11.2009, Side 31
FRÆÐIGREINAR
RANNSÓKN
verk sóttu sér frekar hjálp vegna svefnvandræða.
Það að vera sáttur við getu til að leysa vinnutengd
verkefni var tengt minni ásókn í meðferð vegna
svefnsvanda. Það var ekki munur á bændum og
samanburðarhópi þegar kom að því að leita sér
meðferðar vegna þunglyndis. Þeir sem sóttu sér
meðferð vegna þunglyndis voru frekar yngri
einstaklingar, konur og þeir sem töldu vinnu sína
óreglulega þannig að verk hlæðust upp eða að
verkefni væru of flókin fyrir sig. Það að vera sáttur
við getu sína við leysa vandamál í vinnu tengdist
sem fyrr minni meðferðarsæknþ einnig hvað
varðar þunglyndi.
Umræða
Þessi rannsókn á íslenskum bændum og
samanburðarhópi úr úrtaki þjóðarinnar leiddi
ekki í ljós mun milli þessara hópa á algengi
geðraskana þegar skimað var eftir þeim með
GHQ-12 spurningalistanum. Þetta var öðruvísi
en það sem hvatamenn rannsóknarinnar hjá
Bændasamtökvmum höfðu gert ráð fyrir og haft
áhyggjur af og þar sem nokkrar aðrar erlendar
rannsóknir á bændum1'4 höfðu sýnt. Hins vegar
eru aðrar rannsóknir á breskum bændum frá
2003 sem hafa fundið að algengi geðsjúkdóma
mælt með stöðluðum mælitækjum sé lægra meðal
þeirra en á meðal almennings.12 Þannig sýna fyrri
rannsóknir að geðheilsa bænda er ýmist betri
eða verri en annarra íbúa. Á þessum misvísandi
niðurstöðum geta verið nokkrar skýringar. Ein
af skýringunum er mögulega að mismunandi
mælitæki voru notuð til að meta geðsjúkdóma.
Nortvedt og félagar13 skoðuðu réttmæti Hospital
Anxiety and Depression-mælikvarðans sem
notaður var í rannsókn á bændum í Noregi en
þeir fundu vísbendingar um að kvarðinn mæti
þxmglyndi karla meira en efni voru til. Helsti
kostur þeirrar rannsóknar sem hér er kynnt er að
notaður var vel þekktur mælikvarði.7
Okkar rannsókn sýnir eins og margar aðrar
rannsóknir frá öðrum löndum hlutfallslega lágt
algengi áfengisvandræða meðal bænda.14'16 Það
verður þó að túlka þessar niðurstöður með varúð
þar sem bændur sem brugðið hafa búi eru ekki
með, hvort sem það er vegna aldurs, heilsubrests
eða af öðrum ástæðum. Þá er lágt svarhlutfall
til þess að auka á óvissu um túlkun á þessum
niðurstöðum. I þessari rannsókn kemur í ljós að
bændur eru hins vegar til muna líklegri en aðrir til
að hafa einhvern tímann verið ölvaðir við vinnu.
Þessi staðreynd verður einna helst skýrð með því
að þeir eru sjaldan færir um að taka sér alveg frí
frá störfum, og jafnvel þó árshátíð, þorrablót eða
annar mannfagnaður sem tengdur er neyslu víns
sé uppi, þarf að sinna bústörfum. Það verður að
teljast afar sennilegt að þetta tengist ásamt fleiri
þáttum hárri slysatíðni í hópnum.17 Reykingar
voru heldur fátíðari meðal bænda en annarra líkt
og fundist hefur í öðrum rannsóknum.18'19
I þessari rannsókn leituðu karlkyns bændur
síður en aðrir karlar læknismeðferðar vegna
kvíða, og áfengis- og fíknisjúkdóma. Þetta gæti
átt sér nokkrar skýringar. Það eru vísbendingar
um að áfengissýki sé sjaldgæfari meðal bænda.14'
16-20 Þá er það mögulegt að þröskuldur bænda
til að leita sér hjálpar vegna geðraskana sé meiri
en í rannsókn á sjálfsvígum bænda kom fram að
þó bændur leituðu heilsugæslu álíka oft og aðrir
var mun lægra hlutfall þeirra heimsókna vegna
geðraskana.21 Þessi skýring samrýmist allavega að
hluta til þeim niðurstöðum sem hér eru kynntar.
Þriðja skýringin gæti verið að það er einfaldlega
lengra fyrir bændur á heilsugæslustöðina og
vegalengdin væri þannig farartálmi. Þessi tilgáta
var þó ekki staðfest í þessari rannsókn. Þegar
spurt var um almenn geðeinkenni á síðustu 12
mánuðum sögðust mun fleiri bændur finna fyrir
kvíða og spennu en í samanburðarhópnum.
Margar getgátur eru upp um orsakir kvíða og
spennu meðal bænda. í þessu sambandi er rétt
að nefna að nokkrar rannsóknir hafa undirstrikað
fjárhagsáhyggjur sem sérstakan spennuvald á
meðal bænda en hjá þeim tvinnast saman
fjárhagur fyrirtækis og heimilis.22-23
Þegar skoðaðir eru streituþættir tengdir nei-
kvæðum vinnuþáttum og andlegri vellíðan finnst
bændum síður en öðrum að vinnuálag sé of mikið,
vinna hlaðist upp eða að þeir hafi of mikið að gera.
Hins vegar finnst þeim verkefni sín oftar of flókin
eða að þá skorti kunnáttu til að glíma við þau.
Þetta styður þá hugmynd að bæta mætti geðheilsu
og vinnuumhverfi bænda með átaki í menntun
þeirra. Bændur hafa verið sér meðvitaðir um þetta
lengi og nægir að benda til umsvifa bændaháskóla
og annarra menntastofnana á vegum bænda. Þetta
gæti leitt til þess að bændur sinntu síður verkum
undir áhrifum áfengis sem er ekki viðunandi og
jafnframt styrkja þá þekkingarlegu undirstöðu
sem þeir hafa til að leysa flókin verk.
Það eru nokkrir styrkleikar við þessa rannsókn.
I fyrsta lagi má nefna að hún tekur til allra bænda
á Islandi með bústofn af ákveðinni lágmarksstærð.
Má því gera ráð fyrir að rannsóknin gefi
heildarmynd af bændum á íslandi. Þá voru
notaðar aðferðir í rannsókninni sem eru vel
þekktar þannig að túlkun gagna er hefðbundin.
Aðalannmarki rannsóknarinnar er lágt svar-
hlutfall. Þá má færa rök fyrir því sem annmarka
að spurningum var beint til þess sem skráður er
fyrir búi en ekki allra heimilismanna. Gerir þetta
LÆKNAblaðiö 2009/95 767