Læknablaðið - 15.11.2009, Qupperneq 35
FRÆÐIGREINAR
SJÚKRATILFELLI
Ofnæmi og húðsýking eftir
notkun á hennahúðflúri
- sjúkratilfelli
Hjalti Már
Björnsson1’2
lyflæknir
Ása Elísa
Einarsdóttir1
barnalæknir
Michael V.
Clausen34
barna- og ofnæmislæknir
Lykilorð: ofnæmi, húðsýking,
hennalitarefni.
’Slysa- og bráðadeild
Landspítala, 2Eastern
Virginia Medical School,
Norfolk VA, 3göngudeild í
ofnæmissjúkdómum,
4Barnaspítala Hringsins,
Landspítala.
Fyrirspurnir og bréfaskipti:
Hjalti Már Björnsson,
lyflæknir,
hjaltimb@gmail. com
Ágrip
Lýst er sjúkrasögu 10 ára drengs með ofnæmis-
útbrot eftir notkun á svörtu hennagervihúðflúri.
Sextán dögum eftir að sjúklingur hafði borið
hennaefnið á kom hann á slysa- og bráðadeild en
þá var talið að sýking væri komin fram í útbrotum.
Utbrotin voru meðhöndluð með sterasmyrsli
og töflum, auk þess sem sýkingin, sem reyndist
af völdum S. Aureus, var meðhöndluð með
diklóxacillíni (Staklox®). Notkun á hreinu henna-
litarefni er lögleg en hefur reynst skaðleg í
dýratilraunum. Parafenýlendíamín (PPD) sem
blandað hefur verið í henna til að ná fram
dekkri lit á húðinni er vel þekkt að því að valda
ofnæmisútbrotum.
Sjúkrasaga
Sjúklingur var 10 ára gamall hraustur drengur
sem hafði ekkert þekkt ofnæmi fyrir frjókornum,
fæðu eða lyfjum. Hann hafði þó áður fengið útbrot
í sól sem talið var sólarexem.
Sextán dögum fyrir komuna á spítalann
hafði hann verið staddur á sólarstað á Spáni og
látið setja hennagervihúðflúr á upphandlegg.
Samkvæmt leiðbeiningum skyldi þvo litinn af eftir
hálftíma en það gleymdist yfir nótt. Strax fyrstu
nóttina kom fram kláði undan flúrinu. Tólf dögum
eftir að flúrið var sett á húðina var dökkur liturinn
horfinn úr flúrinu en það enn talsvert upphleypt.
Bólur komu fram sem stækkuðu og mynduðu
hrúður og þar að auki fór að bera á roða og kláðinn
varð meira áberandi. Móðirin bar aloevera-krem
á útbrotin en á 15. degi fór að vessa meira undan
hrúðrinu.
A 16. degi er komið með drenginn til skoðunar
á slysa- og bráðadeild Landspítala. Var hann þá
hitalaus en á hægri upphandlegg voru upphleypt
bólguviðbrögð undan gervihúðflúrinu sem talin
voru stafa af yfirborðslægri húðsýkingu (mynd
1).
Strok var tekið úr hrúðrinu og sent til ræktunar.
Sýkingin var meðhöndluð með diklóxacillín
(Staklox®) hylkjum, 250 mg fjórum sinnum á dag
um munn í 10 daga. Sama kvöld bar móðirin
hydrókortisón (Mildison®) á hluta roðablettsins,
en daginn eftir reyndist það svæði líta heldur verr
út. Drengurinn fór því til skoðunar á Barnaspítala
Hringsins. Hann reyndist hitalaus en áfram talinn
hafa sýkingu í útbrotunum. Hrúðrið var hreinsað
upp og borinn á Silfur súlfadíazín 1,0% (Flama-
zine®) sýkladrepandi áburður, lögð paraffíngrisja
(Bactigras®) og þurrar grisjur þar ofan á.
Mynd 1. Ofnæmisúitbrot eftir hennahúðflúr.
LÆKNAblaðið 2009/95 771