Læknablaðið - 15.11.2009, Qupperneq 36
FRÆÐIGREINAR
SJÚKRATILFELLI
Við endurmat daginn eftir vessaði enn talsvert
úr útbrotunum, þau voru upphleypt og með
miklum kláða. Skipt var um umbúðir og auk
þess hafin meðferð með betametasón (Betapred®)
0,5mg töflum, sjö töflur gefnar sama dag og sjö
töflur daginn eftir. Hann fékk að auki meðferð
með betametasónsmyrsli (Betnovat®) þrisvar á
dag sem er húðsteri í III flokki. Á þriðja degi
ræktaðist Staphylococcus aureus frá stroki sem
var penicillínónæmur en næmur fyrir oxacillíni,
erythromýsíni og klindamýsíni.
Síðar var gerð hefðbundin snertiofnæmis-
húðprófun með True Test® (Allederm, Phoenix AZ)
og lesið af samkvæmt viðurkenndum stöðlum.1
True Test prófar 24 algengustu snertiofnæmis-
valda.2 Reyndist drengurinn hafa sterkt jákvæða
svörun (+++) gegn Parafenýlendíamín sem
staðfestir snertiofnæmi hans fyrir efninu.
Umræða
Snertiofnæmi eru IV. flokks ofnæmisviðbrögð
og á sér stað í tveimur fösum; með næmingu
og viðbrögðum. í upphafi fer ofnæmisvaki
(allergen) eða hjálparvaki (hapten) í gegnum
þekjuhúð þar sem unnið er með það af
sýnifrumum, Langerhans-frumum, átfrumum og
griplufrumum í húð. Ofnæmisvakinn er síðan
kynntur T-eitilfrumum sem að hluta til verða að
minnisfrumum og að hluta til T-hjálparfrumum
sem fara út í blóðrásina.
Við stöðugt eða endurtekið áreiti þekkja
T-hjálparfrumur ofnæmisvaldinn og framleiða
lymfókína sem aftur valda bólgubreytingum.
Þessi viðbrögð ónæmiskerfisins taka frá nokkrum
klukkustundum upp í nokkra daga. Þegar
einstaklingur hefur myndað ofnæmi á þennan hátt
varir það að jafnaði út lífið.
Hennalitarefni eru náttúrleg og unnin úr
plöntunni Lawsonia inermis. Virka litarefnið er
kallað lawsone (2-hydroxyl-l,4-naphthoquinone)
og er unnið úr þurrkuðum laufum plöntunnar.
Notkun hennalitarefna til húðskreytinga er
aldagamall siður frá Austurlöndum. Henna
hefur verið einnig verið notað til hárlitunar og í
snyrtivörur. Hefðbundin hennalitun á húð veldur
rauðbrúnum lit á meðhöndluðu svæði, tekur um
tvær til sex klukkustundir í framkvæmd og verður
litunin dekkri eftir því sem efnið er haft lengur á.
Endist litunin venjulega í um þrjár vikur.
í dýratilraunum hefur lawsone reynst hafa
skaðleg áhrif á nýru, lifur, maga og beinmerg auk
þess að valda stökkbreytingum. Því hefur henna
ekki verið talið heppilegt til hárlitunar eða nota í
snyrtivörur. Þrátt fyrir það er notkun þess lögleg
innan Evrópusambandsins og útbreidd víða í
Austurlöndum.3
Þekkt er að ýmis efni, svo sem sítrónusafi,
edik, nikkel, kóbalt, gúmmítrésolía, kaffi og
blý, hafa fundist í hennalitarefni og virðist sem
því sé blandað í efnið til að ná fram ólíkum lita-
brigðum.4' 5 Parafenýlendíamín (PPD) er einnig
blandað í henna til að ná fram svörtum lit þannig
að útlitið verður líkara raunverulegu húðflúri,6 en
einnig tekur meðferðin mun styttri tíma sé PPD í
blöndunni og liturinn endist lengur.
Hreint hennalitarefni veldur sjaldan ofnæmi
þó því hafi verið lýst.7'9 Virðist líklegra að það
gerist hjá þeim sem starfa við hárgreiðslu og nota
þessi efni reglulega.10,11 Aukaefnið PPD er hins
vegar vel þekkt að því að valda snertiofnæmi.12-
13 Hefur því verið lýst að ofnæmi geti myndast
fyrsta skiptið sem viðkomandi kemst í snertingu
við efnið.14 Ofnæmið hefur hingað til verið
sjaldgæfara hjá börnum en það kann að breytast
með vaxandi vinsældum tímabundins húðflúðs.15
Ofnæmi gegn PPD getur haft töluverð óþægindi
í för með sér þar sem PPD er að finna víða. Þar
má nefna í leðurvörum, plasti, prenturum og því
getur slíkt ofnæmi verið takmarkandi. Algengara
virðist hjá börnum en fullorðnum að varanlegar
litabreytingar verði á húð eftir notkun henna-
litarefna með PPD!6
Notkun PPD til hárlitunar er ekki ólögleg hér á
landi en er háð takmörkunum á styrk efnisins og
er aðeins ætlað fyrir fagfólk, auk þess sem varað
er við því að það geti valdið ofnæmi!7 íblöndun
PPD í hennalitarefni er útbreidd, einkum í löndum
í kringum Miðjarðarhafið.
Hér er lýst tilfelli þar sem drengur fær alvarleg
ofnæmisútbrot eftir hennahúðflúr sem líklega
hefur innihaldið PPD. Fleiri íslensk böm hafa
leitað til höfunda þessarar greinar með sama
vandamál eftir að hafa fengið hennahúðflúr á
sólarstönd. í ljósi þess hversu vel þekkt þessi
hætta af notkun svarts henna er minnir ofangreind
sjúkrasaga á hversu mikilvægt er að eftirlit með
notkun efna sem þessara sé fullnægjandi. Einnig
er mikilvægt að almenningur sé varaður við hættu
af notkun óskráðra efna til að draga úr líkum á því
að slík tilvik endurtaki sig.
Heimildir
1. Belsito DV. Patch testing with a standard allergen
("screening") tray: rewards and risks. Dermatol Ther 2004; 17:
231-9.
2. truetest.com/PhysicianPDF/File7.pdf
3. Scientific committee on cosmetic products and non-food
products intended for consumers. Opinion concerning
Lawsone - SCCNFP/0583/02.
4. Mouzopoulos G, Tsouparopoulos V, Stamatakos M, Mihe
Larakis I, Pasparakis D, Agapitos E. Cutaneous mercury
deposits after henna dye application in the arm. Br J Derm
2007; 157:388-431.
772 LÆKNAblaðið 2009/95