Læknablaðið - 15.11.2009, Síða 44
UMRÆÐUR O G F R É T T 1 R
LÆKNAFÉLAG í S L A N D S
Læknafélag íslands
verður að rifa seglin
Framundan eru heilmiklar aðhaldsaðgerðir í rekstri Læknafélags
íslands að sögn formannsins, Birnu Jónsdóttur. Fram kom á
aðalfundi félagsins, sem haldinn var á Selfossi í september
síðastliðnum, að æskilegt væri að minnka launakostnað félagsins
12% á næsta ári og draga saman annan kostnað eftir föngum.
Læknablaðið innti Birnu eftir því hvernig gengið yrði í þessi verk.
Hávar
Sigurjónsson
„Þetta er ekkert flókið. Við gerum þetta eins og
fyrir okkur er lagt og spörum þar sem hægt er
að koma því við," segir Birna. „Við höfum sagt
okkur úr samstarfi við erlend læknasamtök
eftir því sem við teljum okkur komast af án.
Félagsgjöld okkar í þessi félög hafa tvöfaldast á
árinu vegna gengisbreytinga og þegar við bætist
ferðakostnaður er þetta spamaður upp á nær 2
milljónir á ári. Við erum enn aðilar að CPME, sem
er fastanefnd Evrópusamtaka lækna í Brussel,
enda teljum við ekki hægt að vera utan þeirra. Við
vorum reyndar byrjuð að íhuga fyrir bankahrunið
hvort peningum félagsins væri nægilega vel varið
með svo dreifðri þátttöku í erlendum samtökum
og niðurstaðan er sú að við höfum sagt okkur úr
Evrópusamtökum sérfræðinga, Evrópusamtökum
heimilislækna og Evrópusamtökum unglækna.
En við tökum þátt í starfi heimssamtaka lækna,
WMA."
Birna segir stjórn Læknafélagsins stefna að því
að minnka heilar stöður á skrifstofu félagsins.
„Við ættum samt að geta haldið óbreyttri þjónustu
með því að verkefni færist milli starfsmanna.
Það vill svo til að Gunnar Ármannsson, sem
verið hefur framkvæmdastjóri og lögfræðingur
félagsins um átta ára skeið, hættir nú 1. nóvember,
og það má segja að eini ljósi punkturinn við það
mál, því okkur er mikil eftirsjá að Gunnari, er að
með því gefst tækifæri til að endurskipuleggja
störf hagfræðings, lögfræðings og formanns
félagsins. Þetta voru þrjár heilar stöður en Sólveig
Jóhannsdóttir hagfræðingur félagsins tók að sér
framkvæmdastjórn félagsins tímabundið í sex
mánuði og með því gefst stjórninni svigrúm til
að átta sig á því hvemig best er að koma þessu
fyrir."
Birna segir vissulega koma til greina að ráða
lögfræðing í hlutastöðu en Gunnar Ármannsson
gegnir enn starfi lögfræðings fram til 1. desember
og Sólveig er ráðin í starf framkvæmdastjóra
til 1. mars. Þá verður að sögn Birnu einnig
endurskipulögð önnur starfsemi skrifstofunnar,
verkefni færð milli starfsmanna þannig að launa-
kostnaður í heild náist niður.
Gengið á eigið fé
Birna segir að félagið hafi verið rekið með tapi
árið 2008 og fyrirsjáanlegt sé tap á rekstrinum á
þessu ári. „Það hefur gengið á eigið fé félagsins
frá aldamótum. Þá átti félagið talsverða sjóði og
fjármagnstekjur greiddu niður rekstur félagsins
að umtalsverðu leyti. í bankahruninu töpuðust
um 30% af eigin fé félagsins sem ávaxtað var í
peningamarkaðssjóðum og einnig gekk talsvert
á eigið fé þegar aðalfundur félagsins 2007 ákvað
að gefa 25 milljónir til Lækningaminjasafns á
Seltjarnarnesi. Það var nærri helmingur af eigin
fé félagsins á þeim tíma. Núna höfum við engar
fjármagnstekjur og það hefur auðvitað sín áhrif."
Birna nefnir beinharðar tölur máli sínu til
stuðnings. „Árið 2000 kostaði rekstur félagsins 33
milljónir og fjármagnstekjur voru 7-8 milljónir. Á
þessu ári er kostnaðurinn áætlaður 68 milljónir en
fjármagnstekjurnar eru neikvæðar. Okkar vandi er
reyndar ekkert einsdæmi, flestöll félög glíma við
sama vanda og eru að ganga á eigið fé."
Aðalfundurinn á Selfossi samþykkti hækkun
780 LÆKNAblaðið 2009/95