Læknablaðið - 15.11.2009, Page 65
U M R Æ Ð
U R
L Æ
O G FRÉTTIR
KNAMINJAR
Stjórn safnsins hittir arkitekta og samstarfsaðila. Frá hægri: Ólafnr Melsteðframkvæmdastjóri tækja- og umhverfissviðs Seltjarnarnessbæjar, Sunneva
Hafsteinsdóttirfulltrúi Seltjarnarness i stjórn safnsins, Margrét Hallgrímsdóttirfulltrúi Þjóðminjasafns í stjórn, Anna Þorbjörg Þorgrímsdóttir safnstjóri
Lækningaminjasafnsins, Ellen Calmon, fræðslu- og menningarfulltrúi bæjarins, Sigurbjörn Sveinsson, Óttar Guðmundsson, Gunnar Liíðvtksson formaður
stjórnar, og arkitektar safnsins Sólveig Berg og Ágústa Helga Ágústsdóttir.
Haust í Nesi
í svalri og grimmri haustbirtunni í lok
september síðastliðnum fór stjórn Lækninga-
minjasafnsins á Seltjarnarnesi í vettvangsferð
til að skoða nýbyggingu safnsins í Nesi. Þar
er nú risin myndarleg hæð og gert er ráð
fyrir að byggingin verði fullfrágengin í vor.
Ef áætlun stenst og guð lofar verður safnið
opnað í húsinu árið 2012.
Hið eiginlega safn er geymt í húsi við
Bygg-garða og þar hitti stjórnin fyrir á fleti
ýmsa aðila sem málið varðar. í geymslu
eru margvíslegir gripir fornir og nýir sem
bíða átekta eftir að njóta sín í dagsljósinu
í nýrri vistarveru, þarna eru bæði tól og
tæki, húsgögn og bækur, heil skemma á
tveimur hæðum, full af góssi. í Nesi er
Lyfjasafnið til húsa, þar mun jafnframt fara
fram fornleifauppgröftur í samvinnu við
HÍ og uppi eru ráðagerðir um að setja þar
niður lækningajurtagarð með öllum helstu
plöntum sem geta staðið undir því nafni
að vera lækningajurt. Nú þegar er búið að
skipa í nefnd sem hefur það hlutverk að
raða niður í garðinn réttum grösum. Þetta
er gert í samráði við Landlæknisembættið,
sem fagnar þeim virðulega áfanga 18. mars
næstkomandi að verða 250 ára gamalt, og
Garðyrkjufélag Reykjavíkur sem verður
125 ára í vor. Þessi félög munu leiða þetta
verkefni og Læknafélag íslands hefur tilnefnt
Öm Bjarnason formann nefndarinnar sem
leiðir þetta.
Úr safni Níelsar Dungal sem er innan
vébanda Lækningaminjasafnsins. Dæmi
um holdsveiki á höndum ogfæti, líklega frá
Holdsveikispítalanum í Laugarnesi.
LÆKNAblaðið 2009/95 801
I