Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.04.2010, Síða 29

Læknablaðið - 15.04.2010, Síða 29
FRÆÐIGREINAR RANNSÓKNIR 18% háskólamenntaðra utan höfuðborgarsvæðis. í báðum tilvikum var um tölfræðilega marktækan mun að ræða (p<0,05), eins og sést á mynd 1 þegar 95% öryggisbil eru borin saman. Mynd 2 sýnir að í öllum aldurshópum kvenna er hlutfall offitu hærra utan höfuðborgarsvæðis en innan þess. Utan höfuðborgarsvæðis hækkar hlutfallið nokkuð stöðugt með hækkandi aldri og er 25% í elsta aldurshópnum borið saman við 16% í þeim yngsta. Innan höfuðborgarsvæðis er hins vegar svipað hlutfall offitu í öllum aldurshópum nema þeim yngsta, þar sem hlutfallið er lægst, eða 9% borið saman við 14% í öðrum aldurshópum. Á báðum búsetusvæðum var tölfræðilega marktækur munur milli yngsta og næstyngsta hópsins en ekki milli hinna þriggja innbyrðis (p<0,05). Tengsl reykinga og offitu eftir búsetu eru sýnd á mynd 3. Á höfuðborgarsvæðinu er mest um offitu hjá konum sem reykja daglega og minnst hjá þeim sem reykja ekki og er munurinn tölfræðilega marktækur (p<0,05). Myndin er talsvert ólík hjá konum sem búa utan höfuðborgarinnar. Þar eru hæst hlutfall offitu hjá konum sem hafa reykt en eru hættar, og næsthæsta hlutfallið er hjá þeim sem reykja daglega. í töflu II er birt gagnlíkindahlutfall (OR) þar sem metin eru áhrif búsetu, menntunar og reykinga á líkur þess að kona flokkist með offitu. Konur búsettar utan höfuðborgarsvæðis voru 66% líklegri til að flokkast með offitu borið saman við þær sem bjuggu innan þess þegar tekið hafði verið tillit til menntunar, reykinga, aldurs og áfengisnotkunar í líkaninu. Konur með aðra menntun voru 53% líklegri til að flokkast með offitu en konur með háskólamenntun þegar leiðrétt hafði verið fyrir sömu þáttum og að ofan. Loks voru konur sem reyktu daglega 13% líklegri til að flokkast með offitu miðað við konur með aðra reykingasögu. Tölfræðilega marktækt samband milli offitu og reykinga greindist þó eingöngu meðal kvenna á höfuðborgarsvæðinu. Umræða Þessi rannsókn sýnir verulegan mun á menntun og holdafari kvenna á barneignaaldri eftir búsetu. Hærra hlutfall kvenna var með háskólamenntun innan höfuðborgarsvæðisins en utan þess, en hlutfall kvenna með offitu var næstum helmingi lægra á höfuðborgarsvæði en á landsbyggðinni. Lítill munur var hins vegar á reykingavenjum kvenna á búsetusvæðunum tveimur. Fjöldi rannsókna hefur sýnt tengsl minni menntunar við reykingar og offitu.1-7'11 Svo var einnig í þessari rannsókn. Hlutfall kvenna með offitu var ríflega tvöfalt hærra í hópi þeirra % Mynd 1. Hlutfall kvenna með offitu eftir menntun og búsetu, tölur í stöplum sýna fjölda kvenna á bak við hlutfallstölur. Sýnd eru 95% öryggisbil. Á höfuöborgarsvaeöinu Utan höfuöborgarsvæöis sem voru með eingöngu grunnskólapróf borið saman við háskólamenntaðar konur. Ekki var þó hægt að skýra muninn á holdafari kvenna milli búsetusvæða með ólíkri menntun innan og utan höfuðborgarsvæðis. Eftir að leiðrétt hafði verið fyrir menntun, reykingavenjum, áfengisneyslu og aldri, voru 66% meiri líkur á offitu meðal kvenna utan höfuðborgarsvæðis en innan. Þessar niðurstöður eru í samræmi við niðurstöður landskönnunar Manneldisráðs á mataræði sem sýndi einnig marktækt hærra hlutfall kvenna með ofþyngd og offitu utan höfuðborgarsvæðis en innan, en þar var ekki leiðrétt fyrir menntun eða öðrum breytum.12 Rannsókn á fimmtugum konum sýndi einnig hærra hlutfall kvenna með offitu á Akureyri en í Hafnarfirði!3 Svipaðar niðurstöður varðandi mun á holdafari kvenna í borg og bæ hafa komið fram í Noregi!4 Víðast hvar í Evrópu finnst hins vegar enginn munur milli þéttbýlis og dreifbýlis þegar ofþyngd eða offita er annars vegar,15 og hefur það verið túlkað sem merki Mynd 2. Hlutfall kvenna með offitu eftir aldri og búsetu, tölur í stöplum sýnafjölda kvenna á bak við hlutfallstölur. Sýnd eru 95% öryggisbil. LÆKNAblaðið 2010/96 261

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.