Læknablaðið - 15.04.2010, Side 64
UMRÆÐA 0 G
ÞJÓÐFUNDUR
F R É T T I R
L Æ K N A
Þjóðfundur lækna
Anna
Ólafsdóttir
Björnsson
annab]o@gmail. com
Framlag lækna til samfélagsumræðunnar
hefur líklega sjaldan verið eins eftirminnilega
í brennidepli og nýverið þegar hátt í 100
læknar komu saman á þjóðfundi lækna í
húsnæði læknafélaganna í Hlíðasmára í
Kópavogi. Hugmyndin kviknaði þegar Birna
Jónsdóttir, formaður Læknafélags íslands, tók
þátt í þjóðfundinum sem haldinn var í nóvember
síðastliðnum. Hún setti sig í samband við
framkvæmdaaðila þess fundar og niðurstaðan
var sú að 250 læknum, sem fengnir voru með
slembiúrtaki úr félagaskrá LÍ, var boðið að taka
þátt í fundinum. Þegar ljóst var hverjir þeirra
myndu mæta var ákveðið að hleypa að nokkrum
í viðbót, sem höfðu frétt af þessu framtaki og
langaði að vera með. Þegar dagurinn rann loks
upp kom í ljós að heimtur voru mjög góðar. „Við
vissum í rauninni ekki fyrr en fundurinn hófst
hvort tíu manns kæmu eða hundrað, en hér eru
mættir um 10-15% af þeim læknum á íslandi
sem ekki eru á vakt eða staddir erlendis," sagði
Birna. „í dag leið mér eins og ég væri að fara
að halda afmæli og hafði ekki hugmynd um
hvernig heimtur yrðu. En það er ekki hægt annað
en að gleðjast yfir góðri mætingu og frábærri
stemmningu." Fundurinn var haldinn á vegum
Læknafélags íslands og Læknafélags Reykjavíkur.
Guðjón Már Guðjónsson, sem oft er enn
kenndur við OZ en hefur einkum helgað sig
Hugmyndaráðuneytinu að undanförnu, fylgdi
þjóðfundinum úr hlaði. Harm gat þess í inngangs-
orðum að sér hefði verið sagt að erfitt væri að
Ósvikinn fógnuður á borði sjö pegar niðurstaða náðist. Fyrir miðju má sjá hvatamann að
fundinum, Birnu Jónsdóttur, formann Læknafélags íslands.
vinna með læknum og nú kæmi í ljós hvort sú
mýta reyndist rétt.
Niðurstöður verða
kynntar á vef læknafélaganna
Á vegum framkvæmdaaðilans, Agora, voru
nokkrir starfsmenn og sjálfboðaliðar, lóðsar, sem
stýrðu umræðum, en fyrst var þátttakendum
raðað á níu borð, sem hvert um sig fékk ákveðin
verkefni sem lóðsinn leiddi hópinn í gegnum.
Borðin báru rammíslensk heiti á borð við Kaldbak,
Möðrudal og Hvamm. Dregið var um á hvaða
borði hver þátttakandi lenti. Um miðjan fund
voru hóparnir stokkaðir upp til frekari úrvinnslu
á þeim hugmyndum sem fram höfðu komið.
Markmiðið var að niðurstaða þjóðfundarins
yrði skýr og gildin sem þátttakendur vildu að
læknastéttin stæði fyrir væru vel skilgreind. Sumir
vildu víkka hugmyndina út, fjalla ekki aðeins
um gildi læknastéttarinnar heldur stefnumótun
í heilbrigðismálum. Samkvæmt aðferðafræði
þjóðfundarins voru engar hugmyndir slegnar út
af borðinu en hins vegar var reynt að hafa skarpa
sýn á það sem þátttakendum þótti mikilvægast.
Öðrum hugmyndum var safnað saman og
verða kynntar sem hugmyndabanki. Afrakstur
fundarins verður settur á vefinn og kynntur á
vegum læknafélaganna þegar úrvinnslu er lokið.
Þannig ættu þeir sem ekki áttu þess kost að taka
þátt í þessum fundi að eiga greiðan aðgang að
niðurstöðunum.
Virðingin og fagmennska ofarlega á blaði
Umræðurnar á borðunum voru fjörugar og
fjölbreyttar. Á sumum borðunum var umræðan
hápólitísk, alla vega heilsupólitísk, en á öðrum
borðum var sjónum einkum beint inn á við og ekki
síst að samskiptum og framkomu lækna hvers í
garð annars, í garð annarra heilbrigðisstétta og
sjúklinga. Ekkert var undanskilið, virðingarröð
sérgreina, líðan lækna, pólitísk þátttaka lækna
(með- og mótrök) og á einu borði að minnsta
kosti kom upp spurningin hvort allir sjúkdómar
væru jafnir og því slegið föstu að svo væri ekki.
Á borði númer níu leiddist hópurinn út í mjög
heimspekilegar vangaveltur en þær umræður
reyndust ekki síður bitastæðar en annað efni sem
til umræðu kom.
Einn rauður þráður virtist tengja öll borðin
saman þrátt fyrir æði margbreytilega umræðu,
296 LÆKNAblaðið 2010/96