Læknablaðið - 15.06.2010, Page 18
FRÆÐIGREINAR
RANNSÓKN
Barkaloksbólgutilfelli á rannsóknartimabilinu, fjöldi tilfella í 0-9 ára
aldurshópnum og Qöldi Hib tilfella
Ar
Mynd 1. Fjöldi tilfdla af
barkaloksbólgu á árijjöldi
tilfella vegna Haemophilus
influenzae týpu b og
hlutfall sjúklinga undir 10
ára aldri.
Skoðað var tímabilið frá byrjun janúar 1983 til
loka desember 2005. Fxmdin voru gögn sjúklinga,
þau lesin af höfundum og sjúklingur tekinn inn
í rannsókn ef sjúkdómsmynd samrýmdist bráðri
barkaloksbólgu og bólga var staðfest með beinni
eða óbeinni speglun.
Skráðar voru eftirfarandi breytur: aldur og kyn
sjúklinga, mánuður/ár greiningar, niðustöður
ræktunar (háls/blóð), meðhöndlun öndunarvega,
innlagnir á gjörgæslu, val á sýklalyfi/lyfjum,
lengd sjúkrahússdvalar, alvarlegir fylgikvillar
og dánartíðni. Gerður var samanburður á tíma-
bilunum fyrir og eftir upphaf bólusetningar gegn
Haemophilus influenzae týpu b en bólusetning
hófst hjá íslenskum bömum árið 1989. Samkvæmt
tölum frá Hagstofu íslands voru íslendingar
237.041 á miðju ári 1983 og 295.864 á miðju ári
2005. Tölfræðigreining var gerð með Chi-square
og Mann-Whitney prófum. Munur var talinn töl-
fræðilega marktækur við p-gildi 0,05.
X °'
.g z.o- n i 2- o
o O t.O- r- sP CJ os* 5 a> 1 1 > i ' , f
i i
•n °-5l 'Öl 1 9
0) i z 1983-1987 1988-1992 1993-1997 1998-2002 2003-2005 Tímabil
Mynd 2. Meðalnýgengifyrir fimm ára tímabil.
Niðurstöður
Alls fundust 69 tilfelli með útskriftargreininguna
bráð barkaloksbólga í sjúkraskrám spítalans frá
1983-2005. Af þessum 69 tilfellum uppfylltu 57
tilfelli kröfur okkar og vom greind frekar. Útilokuð
tilfelli vom sjúklingar sem höfðu fengið ranga
greiningu og þjáðust af góðkynja sepamyndun
í barkakýli, barkabólgu/barkakýlisbólgu eða
ígerð koki. Gögn fundust ekki fyrir einn af 69
sjúklingum. Meðalfjöldi tilfella á ári var þannig
2,5 (staðalfrávik 1,8) tilfelli/ári en nýgengi á
tímabilinu 0,93 tilfelli á hverja 100.000 íbúa á ári.
Flest tilfelli greind á einu ári vom sjö árið 2003 en
fæst 0 árið 2000 (mynd 1).
Hafin var kerfisbundin bólusetning gegn Hae-
mophilus influezae týpu b bakteríunni árið 1989.
Þessi baktería var áður mjög algengur orsaka-
valdur bráðrar barkaloksbólgu. Þegar skoðuð
vom tímabilin fyrir og eftir upphaf bólusetningar
kom í ljós fækkun tilfella með 3,3 (staðalfrávik 2,1)
tilfelli/ári (nýgengi 1,4 tilfelli á hverja 100.000 íbúa
á ári) fyrir upphaf bólusetningar en 2,1 (staðal-
frávik 1,6) tilfelli/ári (nýgengi 0,77 tilfelii á hverja
100.000 íbúa á ári) eftir upphaf bólusetningar.
Þessi fækkun tilfella var ekki marktæk (p=0,054).
Ef skoðuð vom 5 ára tímabil (mynd 2) fannst
lækkun í meðalnýgengi eftir því sem á leið allt þar
til komið var að síðasta tímabilinu (2003-2005, sem
varði aðeins þrjú ár) er nýgengi jókst á ný. Þessi
aukning á nýgengi undir lok rannsóknartímabils-
ins var marktæk (p=0,026).
Aldur
Sjúklingar sem þjáðust af bráðri barkaloksbólgu
voru allt frá 12 mánaða upp í 82 ára gamlir (mynd
3). Meðalaldur var 33 ár (staðalfrávik 23) og
miðgildi 34 ár.
Þrettán sjúklingar vom yngri en 10 ára við
greiningu (23%). Eftir upphaf bólusetningar
fækkaði tilfellum hjá bömum verulega og hefur
bráð barkaloksbólga ekki greinst í bami yngri
en 10 ára síðan 1989 (mynd 2). Nýgengi bráðrar
barkaloksbólgu hjá bömum og ungmennum (<18
ára) lækkaði úr 0,76 fyrir upphaf bólusetningar í
0,071 tilfelli á hverja 100.000 íbúa á ári eftir upphaf
bólusetningar (p=0,004).
Fullorðnir sjúklingar (18 ára) vom í heildina
72% af tilfellunum (41/57) og fóru úr því að vera
43% tilfella (10/23) fyrir upphaf bólusetningar í að
vera 91% tilfella (31/34) eftir að hafin var bólusetn-
ing. Fjöldi tilfella barkaloksbólgu hjá fullorðnum
jókst úr 1,4 (staðalfrávik 0,79) tilfellum á ári í 1,9
(staðalfrávik 1,4) tilfelli á ári fyrir og eftir upphaf
bólusetningar. A sama tíma jókst nýgengið hjá full-
orðnum úr 0,58 í 0,71 tilfelli á hverja 100.000 íbúa
á ári. Þessi aukning var ekki tölfræðilega marktæk
(p=0,94).
406 LÆKNAblaðið 2010/96