Læknablaðið - 15.10.2010, Blaðsíða 3
Vífilsstaðir 100 ára
Eitt hundrað ár voru í haust liðin frá því að berklahælið var reist að Vífilsstöðum. Berklaspítalinn
var rekinn þar í 60 ár, allt þar til heilbrigðisyfirvöld töldu að tekist hefði að uppræta þennan illvíga
sjúkdóm og húsinu var fengið nýtt hlutverk. í tilefni af afmælinu var efnt til sýningar í húsinu
þar sem saga berklahælisins var rakin í máli og myndum og lýst aðferðunum sem notaðar voru
til lækninga áður en þróuð voru lyf gegn berklum. Berklasjúklingar sem voru á öllum aldri dvöldu
mánuðum eða árum saman á Vífilsstöðum og þar varð til sérstakt samfélag sem margir minnast
með hlýhug og virðingu. Arið 1973 fékk spítalinn nýtt hlutverk þegar opnuð var rannsókna-
og sjúkradeild á vegum Landspítalans fyrir lungnasjúklinga. Árið 2002 tók Sjómannadagsráð
Reykjavíkur og Hafnarfjarðar, sem á og rekur Hrafnistuheimilin, við rekstrinum og starfrækti
þar hjúkrunarheimili frá árinu 2004 þar til í ágúst á þessu ári. Hvað verður um þetta fallega og
sögufræga hús er sem stendur óráðið.
LISTAMAÐUR MÁNAÐARINS
Guðrún Nielsen (f. 1951) vann fyrir nokkrum
árum alþjóðlega skúlptúrsamkeppni um
listaverk við inngang að New Greenham
Park í Newbury I Bretlandi. Nýverið var
verk hennar fullklárað og afhjúpað en það
ber heitið Changes, eða Breytingar (1998-
2010). Heitið visar til sögu svæðisins þar
sem verkið stendur en þar var áður umdeild
herstöð breska flughersins. Fram að síðari
heimsstyrjöld var þarna friðsælt ræktarland
en í stríðinu var byggður flugvöllur sem
þjónaði hernum og voru þar m.a. geymd
kjarnorkuvopn á níunda áratugnum.
Herstöðinni var lokaö árið 1993 og hefur
svæðið síðan breytt um svip og þjónar nú
íbúum sem útivistarsvæöi auk þess sem
þar er blómlegur iðn- og tæknigarður.
Verk Guðrúnar samanstendur af röð níu
steinstöpla og á þeim hvíla stálplötur sem
brotnareru saman eins og origami. Formin
eru einföld og geómetrísk á hvorum enda
raðarinnar en verða fióknari þegar nær
dregur miðju verksins þar sem á einum stöpli
má sjá greinilega eftirmynd herþotu. Eins
og skutla sem er brotin saman úr pappír og
leyst í sundur á ný. Guðrún visar ennfremur til sögunnar
með því að nota í stöplana mulið efni úr gömlu
flugbrautinni sem þarna var. Verkið er leikur
að andstæðum þar sem listakonan teflir fram
þunglamalegum efnum sem jafnframt sýna
umskipti og framvindu á lifandi hátt. Þannig
vísar hún til þeirrar staðreyndar að allt getur
breyst, jafnvel það sem virðist óhagganlegt
eins og þvergirðingsleg stefna yfirvalda að
geyma kjarnavopn í herstöðinni þrátt fyrir
mikla andstöðu. Þau mótmæli hafa verið
skráð á spjöld sögunnar og má rekja til hóps
kvenna sem barðist fyrir lífi á jörð og gegn
kjarnavopnum. Fagurfræði Guðrúnar nýtur
sín í þessum stóra skúlptúr en í verkum
hennar má greina áhrif frá japönskum efnum
og formum, jafnframt þvi sem hún byggir á
bakgrunni sínum í rannsóknum á tengslum
myndlistar og byggingarlistar. Verkin sem
hún sýnirgjarnan i opinberu rými eru þannig
úr garði gerð að áhorfendur geta virt þau fyrir
sér úr fjarlægð en einnig gengið inn í þau og
upplifað þannig á annan hátt. Changes mun
standa um ókomna tíð sem minnisvarði um
óstöðvandi framrás timans en jafnframt vísa
til hringrásar og endurtekningar sögunnar.
Markús Þór Andrésson
Læknablaðið
THE ICELANDIC MEDICAL IOURNAL
www. laeknabladid. is
Hlíðasmára 8,
201 Kópavogi
564 4104-564 4106
Útgefandi
Læknafélag íslands
Læknafélag Reykjavíkur
Ritstjórn
Jóhannes Björnsson,
ritstjóri og ábyrgðarmaður
Anna Gunnarsdóttir
Bryndís Benediktsdóttir
Engilbert Sigurðsson
Gunnar Guðmundsson
Inga S. Þráinsdóttir
Tómas Guðbjartsson
Ritstjórnarfulltrúi
Védís Skarphéðinsdóttir
vedis@lis.is
Blaðamaður og Ijósmyndari
Hávar Sigurjónsson
havar@iis.is
Auglýsingastjóri og ritari
Dögg Árnadóttir
dogg@lis.is
Umbrot
Sævar Guðbjörnsson
saevar@lis.is
Upplag
1700
Áskrift
9.500,- m. vsk.
Lausasala
950,- m. vsk.
Prentun, bókband
og pökkun
Oddi,
umhverfisvottuð
prentsmiðja
Höfðabakka 3-7
110 Reykjavík
© Læknablaðið
Læknablaðið áskilur sér rétt til að
birta og geyma efni blaðsins á
rafrænu formi, svo sem á netinu.
Blað þetta má eigi afrita með
neinum hætti, hvorki að hluta né í
heild án leyfis.
Fræðigreinar Læknablaðsins eru
skráðar (höfundar, greinarheiti og
útdrættir) í eftirtalda gagnagrunna:
Medline (National Library of
Medicine), Science Citation Index
(SciSearch), Journal Citation
Reports/Science Edition og
Scopus.
The scientific contents of the
lcelandic Medical Journal are
indexed and abstracted in
Medline (National Ubrary of
Medicine), Science Citation Index
(SciSearch), Journal Citation
Reports/Science Edition and
Scopus.
ISSN: 0023-7213
LÆKNAblaðið 2010/96 595