Læknablaðið - 15.10.2010, Blaðsíða 22
FRÆÐIGREINAR
Y F I R L I T
að það klýfur C4 og C2 (mynd l).5 Þegar MBL
binst yfirborðssykrum virkjast MASP-2 sem
klýfur C4 og C2 til myndunar á C3 konvertasa
(C4b2a) (mynd 1). MASP-2 binst einnig sameind-
unum fíkólín-1, fíkólín-2 og fíkólín-3, sem líkt og
MBL þekkja ýmis sykurmynstur á örverum og
ræsa lektínferilinn (sjá síðar).
Nýlega var þremur erfðabreytileikum (R99Q,
D120G og V377A) lýst í MASP-2 geninu sem er
staðsett á litningi 'lp36.2-3.28'31 Tíðni stökkbreyt-
inganna í úrtaki hvítra Dana er 0,14% fyrir R99Q,
3,9 % fyrir D120G og 1% fyrir V377A.3' Fleiri
erfðabreytileikum hefur verið lýst, sem finnast
ekki hjá hvítum kynþætti. Sýnt hefur verið fram
á in vitro að raðbrigði (recombinant) af D120G
MASP-2 getur ekki bundist MBL og ekki klofið
C4 og þar af leiðandi ekki virkjað komplíment-
kerfið.28-32 Raðbrigði af R99Q og V377A MASP-2
voru hins vegar ekki frábrugðin raðbrigðavilli-
gerð með tilliti til virkjunar komplímentkerfisins.
Athyglisvert er að árið 2003 var 36 ára gömlum
einstaklingi lýst, sem var með óútskýrðar endur-
teknar sýkingar og krónískar bólgur og kom í ljós
að hann var arfhreinn fyrir D120G stökkbrigðið
og ekkert MASP-2 prótein mældist í sermi hans.28
Þessi einstaklingur var hins vegar með háan MBL-
styrk í blóði en samt gat sermi hans ekki virkjað
lektínferilinn, sem líklega má rekja til MASP-2-
skortsins. Það mætti því ef til vill halda því fram
að MASP-2 skortur geti haft víðtækari áhrif en
MBL-skortur einn og sér, því að MASP-2 er ekki
bara ábyrgt fyrir líffræðilegri virkni MBL heldur
einnig virkni fíkólína (mynd 1).
Hér var því talið líklegt að um áður óþekkt-
an ónæmisgalla væri að ræða. Síðan árið 2003
hefur verið skimað fyrir þessum erfðabreytileika
í mismunandi sjúklingahóprannsóknum. Sex arf-
hreinir (D120G/D120G) einstaklingar hafa verið
greindir. Fjórir af þeim voru börn sem komu úr
mismunandi sjúklingahópum. Eitt barn kom úr
barnahópi sem var með endurteknar öndunar-
færasýkingar,33 eitt barn úr psoriasishópi,34 eitt
úr hópi með slímseigjusjúkdóm (cystic fibrosis)
(barn með mjög alvarlegan lungnasjúkdóm)35
og eitt barn úr barnahópi með endurteknar
sýkingar.36 Tveir af þessum sex einstaklingum sem
hafa verið greindir arfhreinir, voru fullorðnir og
komu úr hópi heilbrigðs viðmiðunarþýðis (tvær
heilbrigðar konur um fertugt).37 Sermi arfhreinna
einstaklinga getur ekki virkjað komplímentkerfið
gegnum lektínferilinn (mælt með virkniprófi, sjá
hér að neðan) og samkvæmt niðurstöðum þessara
rannsókna geta fullorðnir verið fullkomlega heil-
brigðir án starfhæfs lektínferils. Áframhaldandi
skimanir á mismunandi sjúklingahópum mun
líklega gefa meiri upplýsingar og skilning á mikil-
vægi lektínferilsins. Einnig er mögulegt að eitt-
hvað annað þekkt eða óþekkt ónæmiskerfi komi í
stað lektínferilsins hjá þeim sem eru með á skort-
MBLeða MASP2. Tíðni arfhreinna D120G einstak-
linga hefur verið áætluð sem 1/1000.38
Erfðabreytileiki í genum fíkólína
Bygging fíkólína er mjög lík byggingu MBL. í stað
kolvetnisþekkjandi svæða hafa þau fibrínógen-lík
svæði.39 Þau starfa líkt og MBL, það er þau ræsa
lektínferilinn gegnum MASP-2 ensímið (mynd
1). Af hinum fjórum ræsisameindum er fíkólín-3-
styrkur í sermi langhæstur, eða 25 pg/ml, síðan
kemur fíkólín-2 styrkur (5 pg/ml), þá MBL (1 pg/
ml) og síðast fíkólín-1 (<0,lpg/ml).40 í mönnum er
fíkólín-3 mRNA aðallega tjáð í lungum og talsvert
í lifur.40 Fíkólín-2 mRNA er tjáð aðallega í lifur en
lítillega í beinmerg, hálskirtlum og görn.40 Á hinn
bóginn finnst fíkólín-1 mRNA ekki í lifur heldur
aðallega í hvítum blóðfrumum (leukocytes) og
beinmerg en lítillega í milta og lungum.40
Á síðasta ári birtist grein sem lýsir í fyrsta
sinn einstaklingi með fíkólín-3-skort.41 Hann
hafði verið með endurteknar sýkingar frá unga
aldri, þar á meðal alvarlegar sýkingar í neðri
öndunarvegi, sýkingu í heila (bilateral frontal
cereberal abscesses) af völdum óhemólýtískra
streptókokka og vörtur á fingrum. Aðrir ferlar
ónæmiskerfis störfuðu innan eðlilegra marka
samkvæmt mælingum, en hins vegar var fíkólín-3
í blóði ekki mælanlegt. Fíkólín-3 er tjáð af FCN3
geninu og er tjáð í lungum og lifur. Þegar við-
komandi var arfgerðargreindur kom fram hugs-
anleg skýring á sjúkleika hans. Hann var arfhreinn
um stökkbreytingu (1637C) sem veldur breytingu í
lesramma FCN3 gensins og gefur af sér óstarfhæft
og gallað fíkólín-3. Ekki var lýst sjúkrasögu arf-
blendinna einstaklinga en styrkur fíkólín-3 í blóði
þeirra var um 50% af villigerð. Tíðni arfblend-
inna meðal hvítra einstaklinga er 1,8%.41'42
Það er mjög sennilegt að vitneskja okkar um
hlutverk og mikilvægi fíkólína í ræsingu lektín-
ferilsins fari stigvaxandi á næstu árum. Því telja
greinarhöfundar mikilvægt að læknar geri sér
grein fyrir tilurð þessara nýskilgreindu ónæm-
isgalla meðal einstaklinga með endurteknar sýk-
ingar eins og að ofan greinir.
MBL-skortur metinn út frá
virkni iektínferilsins
Á ónæmisfræðideild Landspítala er í dag boðið
upp á að mæla MBL-styrk í sermi einstaklinga.
Prófið var þróað af deildinni út frá aðferð Claus
Kock við Statens Serum Institut í Danmörku og
614 LÆKNAblaðið 2010/96