Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.10.2010, Page 4

Læknablaðið - 15.10.2010, Page 4
Frágangur fræðilegra greina EFNISYFIRLIT Höfundar sendi tvær gerðir handrita til ritstjórnar Læknablaðsins, Hlíðasmára 8, 201 Kópavogi. Annað án nafna höfunda, stofnana og án þakka sé um þær að ræða. Greininni fylgi yfirlýsing þess efnis að allir höfundar séu samþykkir lokaformi greinar og þeir afsali sér birtingarrétti til blaðsins. Handriti skal skilað með tvö- földu línubili á A-4 blöðum. Hver hluti skal byrja á nýrri blaðsíðu í eftirtalinni röð: • Titilsíða: höfundar, stofnanir, lykilorð á ensku og íslensku • Ágrip og heiti greinar á ensku • Ágrip á íslensku • Meginmál • Þakkir • Heimildir Töflur og myndir skulu vera bæði á ensku og íslensku. Tölvuunnar myndir og gröf komi á rafrænu formi ásamt útprenti. Tölvugögn (data) að baki gröfum fylgi með, ekki er hægt að nýta myndir úr PowerPoint eða af netinu. Eftir lokafrágang berist allar greinar á tölvutæku formi með útprenti. RITSTJÓRNARGREINAR María Heimisdóttir Mönnun í lækningum á íslandi Æskilegt væri að skoða sem flestar sérgreinar með sama hætti og skurðlæknar hafa gert, ekki síst í Ijósi aðstæðna hérlendis þar sem krafan um forgangsröðun og skynsamlega nýtingu fjármuna í heilbrigðisþjónustu hefur aldrei verið meiri þrátt fyrir stigvaxandi eftirspurn. 599 Guðmundur Þorgeirsson Aldarafmæli Háskóla íslands og læknadeildar Læknadeild, heimspekideiid, lagadeild og guðfræðideild eru stofndeildir HÍ. Áður hafði Læknaskólinn starfað frá 1876. Formleg læknakennsla er skilgreind í erindisbréfi Bjarna Pálssonar landlæknis frá 1760, hluti af embættisskyldum hans var að kenna læknisefnum og yfirsetukonum. FRÆÐIGREINAR Tómas Guðbjartsson, Halla Viðarsdóttir, Sveinn Magnússon Menntun, starfsvettvangur og framtíðarhorfur á vinnumarkaði íslenskra skurðlækna íslenskir skurðlæknar eru vel menntaðir, fimmtungur þeirra með doktorspróf. Rúm 80% skurðlækna stunduðu sérnám á Norðurlöndunum og 31 % eru búsettir erlendis. Á næsta áratug munu margir skurðlæknar fara á eftirlaun og fyrirsjáanieg endurnýjun. Fram til ársins 2025 bendir flest til þess að jafnvægi verði á vinnumarkaði skurðlækna hér á landi. Helga Bjarnadóttir, Björn Rúnar Lúðvíksson Arfgengur skortur í ræsisameindum lektínferils komplímentvirkjunar Það eru 20 ár síðan mannanbindilektínskortur var fyrst tengdur við galla sermis til að miðla áthúðunarmiðluðu drápi örvera. Fyrstu vísbendingar um gallann komu fram árið 1968 í grein sem lýsti stúlku sem hafði þjáðst af endurteknum alvarlegum sýkingum í efri öndunarvegi fyrstu tvö æviárin. Sjá upplýsingar um frágang fræðilegra greina: www.laeknabladid.is/fragangur- greina Umræðuhluti Skilafrestur efnis í næsta blað er 20. hvers mánaðar nema annað sé tekið fram. Margrét B. Viktorsdóttir, Eiríkur Jónsson, Hildur Einarsdóttir Sjúkratilfelli. Fyrirferð í sáðblöðru hjá sjúklingi með eitt nýra Hér er rakin sjúkrasaga tuttugu og fimm ára karlmanns sem greindist með blöðrur á hægri sáðblöðru. Berglind Aðalsteinsdóttir, Maríanna Garðarsdóttir, Davíð O. Arnar 623 Tilfelli mánaðarins Kristín Magnúsdóttir, Jakob Kristinsson, Þorkell Jóhannesson 626 Lækningar og saga: Svikið áfengi Fjallað er um rannsóknir á löglega framleiddu áfengi sem hefur sviksamlega verið um vélað og rannsakað hefur verið í rannsóknastofu í lyfja- og eiturefnafræði. 596 LÆKNAblaöið 2010/96

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.