Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.10.2010, Qupperneq 27

Læknablaðið - 15.10.2010, Qupperneq 27
FRÆÐIGREINAR SJÚKRATILFELLI Margrét Brands Viktorsdóttir kandídat'2 Eiríkur Jónsson þvagfæraskurðlæknir3 Hildur Einarsdóttir röntgenlæknir4 Lykilorð: karlmenn, sáöblöðrublaðra, nýrnavísisleysi. ’Læknadeild HÍ, 2Landspítala, 3þvagfæraskurð- lækningadeild, 4myndgreiningadeild Landspítala. Fyrirspurnir og bréfaskipti: Eiríkur Jónsson, þvagfæraskurð- lækningadeild Landspítala Hringbraut, 101 Reykjavík. eirikjon@landspitali. is Sjúkratilfelli. Fyrirferð í sáðblöðru hjá sjúklingi með eitt nýra Ágrip Hér er rakin sjúkrasaga tuttugu og fimm ára karlmanns sem greindist með blöðrur á hægri sáðblöðru. Hann fæddist með nýrnavísisleysi sömu megin og leitaði á bráðamóttöku eftir að hafa verið með vaxandi verk í endaþarmi og við sáðlát í þrjá mánuði. Hægri sáðblaðran var fjarlægð í opinni aðgerð og varð sjúklingurinn einkennalaus á eftir. Sjúkratilfelli Tuttugu og fimm ára hraustur karlmaður leitaði á bráðamóttöku eftir að hafa verið um þriggja mánaða skeið með vaxandi verk í endaþarmi með verkjaleiðni yfir spangarsvæði og fram í getnaðarlim. Hann lýsti stöðugri hægðaþörf og verkjum við hægðalosun sem og við sáðlát en hafði ekki einkenni frá þvagfærum. Maðurinn fæddist með eitt nýra og hafði farið í endurísetningu á vinstri þvagleiðara sem barn vegna bakflæðis. Við endaþarmsþreifingu reyndist hann vera með auma mjúka fyrirferð hægra megin og ofan til við blöðruhálskirtilinn. Þvagskoðun var eðlileg sem og stutt ristilspeglun. Fengin var segulómun af kviðar- og grindarholi sem sýndi stækkun á vinstra nýra en hægra nýra sást ekki. Vinstri sáðblaðra hafði eðlilegt útlit en á hægri sáðblöðru sáust margar og fyrirferðarmiklar blöðrur sem teygðu sig upp á miðjan spjaldhrygg. Stærsta blaðran mælist 2,6 x 2,1 x 7,2 cm (mynd 1). Sjúklingur var tekinn til aðgerðar þar sem hægri sáðblaðra var fjarlægð. Strengur eins og þvagleiðari gekk upp úr sáðblöðrunni (mynd 2). Aðgerð gekk vel og mánuði eftir hana var sjúklingur einkennalaus. Vefjagreining sýndi fram á útvíkkaða sáðblöðru ásamt hluta af sáðrás og leifar af miðnýrnarás (mesonephric duct). Umræða Blöðrur á sáðblöðrum geta verið meðfæddar eða áunnar. Það sem einkennir meðfæddar blöðrur á sáðblöðrum eru tengsl þeirra við aðra meðfædda galla á þvag- og kynfærum, eins og nýrnavísisleysi sömu megin (ipsilateral renal agenesis), nýrnamisvöxt (renal dysplasia) eða þvagleiðaraleif (rudimentary ureter). Meðfæddar blöðrur á sáðblöðrum tengjast nýmavísisleysi Mynd 1. Vinstri sáðblaðra hefur eðlilegt útlit en á hægri sáðblöðru eru margar ogfyrirferðarmiklar blöðrur (ör). Segulómmynd tekin á Landspítala Hringbraut. sömu megin í 68% tilfella og leifar af þvagleiðara hafa fundist í um 13% þessara sjúklinga.1 Áunnar blöðrur á sáðblöðrur geta myndast í tengslum við góðkynja stækkun á blöðruhálskirtli, aðgerð á blöðruhálskirtli eða bólgu í sáðfallsrás og þá oftast sem afleiðing af öflugri þvagfærasýkingu.2 Blöðrur á sáðblöðrum í tengslum við nýrna- vísisleysi sömu megin er afar sjaldgæfur sjúk- dómur. Fyrsta tilfellinu var lýst árið 1914 af Zinner.2 Síðan þá hefur um 200 slíkum tilfellum Mynd 2. Mynd tekin í aðgerð. Sýnir hægri sáðblöðru sem á eru margar litlar blöðrur. Einnig sést leif af þvagleiðara (ör). Myndina tók Eiríkur Jðnsson þvagfæraskurðlæknir. LÆKNAblaðið 2010/96 61 9
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.