Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.10.2010, Qupperneq 28

Læknablaðið - 15.10.2010, Qupperneq 28
FRÆÐIGREINAR SJÚKRATILFELL I í heiminum verið lýst með tilkomu betri grein- ingartækni eins og tölvusneiðmyndun og segul- ómun.3-4 Blöðrur á sáðblöðrum greinast oftast hjá sjúklingum sem eru á milli tvítugs og þrítugs. Blöðrur sem eru minni en fimm sentímetrar geta verið einkennalausar og greinast þá oftast fyrir tilviljun.5 Stærri blöðrur valda oftar einkennum. Algeng einkenni eru verkir í kviðarholi, grindar- holi eða spöng, verkir við sáðlát, verkir við þvag- lát, tíð þvaglát, blóðmiga, þvagfærasýkingar eða ófrjósemi.3-5-7 Þessi einkenni líkjast mjög algeng- um einkennum blöðruhálskirtilsbólgu og því getur greining verið torveld og dregist á langinn. Þreifing um endaþarm getur vakið grun um þetta vandamál en myndgreining er framkvæmd með ómun um endaþarm, sneiðmyndatöku eða segul- ómun. Sú síðastnefnda gefur þó nákvæmustu greininguna.5-8 Tengslin milli blaðra á sáðblöðrum og nýrna- vísisleysis sömu megin er hægt að skýra vegna sameiginlegs fósturfræðilegs uppruna. Þvagleiðarasproti (ureteral bud) myndast frá afturhluta miðnýrnarásar (mesonephric duct) og virkjar sérhæfingu á miðnýranu (mesoneph- ros) sem verður svo að hinu endanlega nýra (metanephros). Miðnýrnarásin sérhæfist svo í eistnalyppu, sáðrás, sáðfallsrás og sáðblöðru.9 Eðlileg myndun á nýra á fósturstigi er því háð aðleiðslu þvagleiðarasprotans og miðnýrna- rásarinnar. Vanmyndun á afturhluta miðnýrna- rásar leiðir til þess að þvagleiðarasproti myndast ekki. Það veldur nýrnavísisleysi þeim megin og lokun á sáðfallsrás sem leiðir til þess að sáðblaðran stíflast, seyti safnast fyrir og blöðrur myndast. Meðferð er óþörf nema blöðrurnar valdi einkennum.3 Lengi vel hefur opin aðgerð verið algengasta meðferðarformið með 100% árang- urshlutfalli, en vegna staðsetningar sáðblaðranna djúpt í grindarholi er aukin hætta á fylgikvillum eins og taugaskaða eða skaða á nærliggjandi líffærum, aðallega endaþarmi, þvagblöðru eða þvagleiðara.1 Tæming á þessum blöðrum með því að stinga á þeim um endaþarm er sjaldan árangursrík, með 30% árangurshlutfalli, og tengist hárri endurkomutíðni og sýkingum.1-6 7 I seinni tíð er í auknum mæli farið að fjarlægja blöðrur af sáðblöðrum gegnum kviðsjá.4-6 Lokaorð Blöðrur á sáðblöðru ásamt nýrnavísisleysi sömu megin er sjaldgæfur meðfæddur galli. Einkenni geta verið margvísleg, líkjast oft einkennum blöðruhálskirtilsbólgu og því getur rétt greining tafist. Segulómun af grindarholi er ákjósanleg greiningaraðferð og brottnám á sáðblöðru er líkleg til þess að uppræta einkenni. Heimildir 1. van den Ouden D, Blom JH, Bangma C, et al. Diagnosis and management of seminal vesicle cysts associated with ipsilateral renal agenesis: a pooled analysis of 52 cases. Eur Urol 1998; 33: 433-40. 2. Zinner A. Ein fall von intravesikaler samenblasencyste. Wien Med Wochenschr 1914; 64: 605-9. 3. Gozen AS, Alagol B. Endoscopic management of seminal- vesical cyst with right renal agenesis causing acute urinary retention: Case report. J Endourol 2006; 20: 919-22. 4. Han P, Dong Q, Shi M, et al. Seminal vesicle cyst and ipsilateral renal agenesis: laparoscopic approach. Arch Androl 2007; 53: 285-8. 5. Livingston L, Larsen CR. Seminal Vesicle Cyst with Ipsilateral Renal Agenesis. Am J Roentgenol 2000; 175: 177- 80. 6. Liatsikos EN, Lee B, Filos KS, et al. Congenital seminal vesicle cyst and coexisting renal agenesis: laparoscopic approach. Urology 2004; 63: 584-6. 7. Seo IY, Kim HS, Rim JS. Congenital Seminal Vesicle Cyst Associated with Ipsilateral Renal Agenesis. Yonsei Med J 2009; 50: 560-3. 8. Pace G, Galatioto GP, Guala L, et al. Ejaculatory duct obstruction caused by a right giant seminal vesicle with an ipsilateral upper urinary tract agenesia: an embryologic malformation. Fertil Steril 2008; 89: 390-4. 9. Sadler T. Langman's Medical Embryology. 8th Edition ed. Lippincott Williams & Wilkins, Baltimore 2000. >- CC < 5 5 X (J) X V) _1 o z Ui Case report: Seminal vesicle cyst with ipsilateral renal agenesis We describe a case of right seminal vesicle cyst with pain and pain on defecation and ejaculation. The cyst was ipsilateral renal agenesis in a 25 year old male. The cyst surgically removed and the patient became asymtomatic. caused severe pain syndrome with progressive perineal Viktorsdottir MB, Jonsson E, Einarsdottir H. Case report: Seminal vesicle cyst with ipsilateral renal agenesis. Icel Med J 2010; 96: 619-20 Correspondence: Eiríkur Jónsson, eirikjon@tandspitati.is Key words: Men, seminal vesicle cysts, ipsilateral renal agenesis. 620 LÆKNAblaðið 2010/96 Barst: 9. apríl 2010, - samþykkt til birtingar: 24. ágúst 2010 Hagsmunatengsl: Engin
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.