Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.10.2010, Side 34

Læknablaðið - 15.10.2010, Side 34
SAGA LÆKNISFRÆÐINNAR Á F E N G I Svikið áfengi Kristín Magnúsdóttir deildarstjóri kristmag@hi.is Jakob Kristinsson prófessor jakobk@hi.is Þorkell Jóhannesson prófessor úr embætti dr. thorkell@simnet. is Inngangur Samkvæmt íslenskum lögum telst áfengi hver sá neysluhæfi vökvi, sem í er 2,25% v/v af etanóli (í lögunum nefnt „hreinn vínandi") eða meira (2. gr. laga nr. 75/1998, með síðari breytingum). Af 7. grein er ljóst, að neysluhæfur vökvi er í skilningi laganna sama og drykkjarhæfur vökvi. Til þess að áfengi teljist löglegt þarf það enn fremur að uppfylla þau skilyrði sem í lögunum greinir. Við höfum áður skýrt frá rannsóknum á áfengi sem hér er framleitt án tilskilinna leyfa („landi").' I þessum pistli er ætlunin að fjalla um rannsóknir á löglega framleiddu áfengi sem með ýmsum hætti hefur sviksamlega verið um vélað og nefna má svikið áfengi og rannsakað hefur verið í Rannsóknastofu í lyfja- og eiturefnafræði (RLE). Löglega framleitt áfengi telst svikið ef það er: a) sviksamlega þynnt með vatni fyrir sölu/neyslu; b) blandað ólögmætum efnum, þar á meðal eiturefnum eða hættulegum efnum; c) selt eða dreift í öðrum ílátum en rétt eru og þannig villt um heimildir á áfenginu; d) með farið með hverjum öðrum hætti, sem ólögmætur telst. Áfengi þynnt með vatni Etanól og önnur alkóhól voru ákvörðuð í þessum sýnum og öðrum sýnum með gasgreiningu á súlu.1- 2 Samanburðarsýni í órofnum ílátum af sömu tegundum áfengis voru fengin í Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins (ÁTVR). Mynd 1. Myndin sýnir péttni etnnóls í premur tegundum af íslensku dfengi, sem pynnt Imfði verið með ólögmætum hætti. Til snmanburðar eru niðurstöður mxlinga á ópynntu áfengi sömu tegunda, sem fengið var í ÁTVR. Á mynd 1 eru sýndar niðurstöður mælinga á etanóli í þremur íslenskum áfengistegundum, sem höfðu verið þynntar með vatni. Mismunur á þéttni rannsóknarsýnis og samanburðarsýnis var frá sex (Kláravín) og upp í átta (Aqua vitae) prósentustig. Annað áfengi sem sannanlega hafði verið þynnt með vatni voru fjórar tegundir af vodka, tvær af gini, tvær af sjenever og ein af rommi. Var þynningarhlutfallið 4-11%. I alþjóðlegum staðli yfir ýmiss konar sterkt áfengi (vodka, gin, ákavíti og fleira) segir að einungis megi blanda vatni í áfengið í framleiðsluferlinu til þess að tryggja að þéttni etanóls sé innan þröngra, skilgreindra marka.3 Áfengi í röngum ílátum Áfengisflöskur voru áður sérmerktar vínveitinga- húsum (mynd 2). Á árinu 1987 vaknaði grunur um að smyglað vodka hefði verið sett í tómar flöskur undan vodka sem áður hafði verið selt veitingahúsum með lögmætum hætti. Flöskurnar voru merktar tilteknum vodkategundum og höfðu verið opnaðar. Til samanburðar fékk RLE órofnar flöskur með vodka af sömu tegundum frá ÁTVR. Samkvæmt alþjóðlegum staðli skal þéttni etanóls í vodka vera á bilinu 36-54% v/v við 20°. I staðlinum eru einnig ákvæði um hámarksþéttni málma (kopars, blýs) og fleiri efna.3 Breytilegt magn kopars í sýnum af sterku áfengi sömu gerðar vísar jafnan á mismunandi framleiðendur eða að minnsta kosti á mismunandi framleiðslustaði (brugghús). Öll sýnin innihéldu 39 eða 40% v/v etanól, sem er algeng þéttni etanóls í vodka. Fúsilalkóhól eða metanól voru ekki mælanleg í sýnunum, en svo er oftast í vodka (til aðskilnaðar frá öðru sterku áfengi á borð við koníak og viskí). í fimm rannsóknarsýnum var þéttni kopars marktækt meiri en í samanburðarsýnum sömu tegundar (mynd 3). í einu þeirra (merkt Stolichnaya vodka), var munurinn þó á mörkum þess að teljast marktækur. í þessu sýni reyndist rafleiðni aftur á móti vera miklu lægri en í samanburðarsýninu. Rannsóknarsýnin hefðu því réttilega getað verið vodka, þótt þau hefðu að öllum líkindum verið frá 626 LÆKNAblaðið 2010/96

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.