Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.10.2010, Síða 35

Læknablaðið - 15.10.2010, Síða 35
SAGA LÆKNISFRÆÐINNAR Á F E N G I öðrum framleiðanda eða að minnsta kosti frá öðrum framleiðslustað en samanburðarsýnin. Kopar var ákvarðaður með anóðustrípun.4 Áfengi íblandað ólögmætum efnum Við víngerjun myndast etanól úr þrúgusykri. Gerjun annarra efna í þrúgum en sykurs leiðir til myndunar metanóls og hærri alkóhóla (fúsilalkóhóla) og um það bil 10 lífrænna sýra. Hér við bætist sútunarsýra, sem að jafnaði er í vínþrúgum. Þessi efni eru ásamt etanóli afgerandi fyrir mat á gæðum hlutaðeigandi vína. f vissum tilvikum leyfist að blanda einhverju þessara efna í vín eða gerjandi vín, ekki síst sykri.5 íblöndun í vín er þó ætíð háð ströngum reglum. Því kom það höfundum í opna skjöldu að vínframleiðendur skyldu hætta á að blanda eiturefnum á borð við metanól eða etýlenglýkól í vín til þess að villa fyrir um gæði vínanna. Metanól (metýlalkóhól; „tréspíritus") Vorið 1986 bárust RLE á fjórða tug ítalskra vína í órofnum ílátum, með beiðni um rannsókn á því hvort í þeim fyndist metanól. Rannsóknarbeiðandi var Hollustuvernd ríkisins (nú niðurlögð), en upplýsingar með beiðninni voru fremur óljósar. Sem betur fer var metanól ekki í mælanlegu magni í neinu vínanna. Um blöndun metanóls í vín var fjallað á síðum Morgunblaðsins 9. og 17. apríl 1986.6 Önnur heimild staðfestir frásögn Morgunblaðsins á þann veg að nokkrir vínframleiðendur á Ítalíu hefðu á þessum tíma: „ ... added methanol - a cheap alcohol used in anti-freeze and for fuel - to boost the bite of their wines, killing at least 20 people".7 í þessari heimild kemur réttilega fram, að metanól sé ódýrt efni. Metanól er jafnframt að mörgu leyti mjög líkt etanóli, sem jafnan er mjög skattlagt, og það blandast etanóli og vatni í öllum hlutföllum. Hvatinn til þess að blanda metanóli í vín er því greinilega til staðar. Etanól umbrotnar, aðallega í lifur, fyrir tilstilli alkóhóldehýdrógenasa (ADH) í asetaldehýð og edikssýru (asetat), sem eru líkamanum eiginleg efni og hvarfast að jafnaði auðveldlega án teljandi eiturhrifa. Öfugt við etanól umbrotnar metanól fyrir tilstilli ADH í maurasýru, sem ekki gengur inn í efnaskiptakeðjur líkamans og veldur sjóntaugaskemmdum (blindu), sýringu (pH <7,4) og oft dauða af þeim sökum.8 Etýlenglýkól Etýlenglýkól er litlaus og lyktarlaus vökvi með tiltölulega hátt suðumark og sætt bragð. Það blandast vel bæði vatni og etanóli. Etýlenglýkól hefur verið mikið notað sem leysiefni og í frostlög og hemlavökva. Vegna hins sæta bragðs, án litar eða lyktar, hafa óhlutvandir menn notað etýlenglýkól til þess að hressa við löglega framleitt vín með of lágt sætustig. Etýlenglýkól er ámóta eitrað efni og metanól og eiturhrifin eru um margt svipuð, en það veldur þó ekki blindu.8 Frá fyrri árum eru gögn í RLE um rannsóknir á austurrískum hvítvínum og frá síðari árum eru rannsóknir á tveimur rauðvínum. í engu tilfelli var etýlenglýkól í mælanlegu magni í vínunum. Umræða Vatn er vissulega í öllu áfengi, hverju nafni sem það nefnist. Það telst hins vegar ólögmætt athæfi að blanda vatni í áfengi, umfram það sem þarf og leyfilegt er til þess að stilla þéttni etanóls í hlutaðeigandi áfengistegund rétt. Um 4-11% munur á rannsóknarsýnum og samanburðarsýnum af sterku áfengi (mynd 1) bendir því sterklega til sak- næms athæfis. Miklu alvarlegra mál er samt að blanda eiturefnum á borð við metanól í löglega framleitt áfengi til þess að auka „bit" (e. bite) þess eða etýlenglýkól til þess að hækka sætustig. Eftir að hafa snúið sér til eins vínfróðasta manns í læknastétt er nokkuð ljóst, að vín með mikið „bit" eru að jafnaði hvöss mm Mynd 2. Áfengisflaska með sérstökum merkimiða á hálsi, sem sýnir að áfengið er ætlað til sölu í veitingahúsi eingöngu. Skömtnu eftir inngöngu íslands í Evrópska efnahagssvæðið 1994 var áfengislögum breytt ogfellt niður ákvæði um sérmerkingu áfengis til veitingahúsa. Eftir 1998 var pessum merkingum alfarið hætt (Skúli Magnússon; ÁTVR 26.4.2010). 1,2 1 ■ Absolut Borzoi Stolichnaya Wodka vodka vodka vodka Wyborowa Mynd 3. Myndin sýnir þéttni kopars í áfengi sem var ranglega merktfjórum þekktum vodkategundum. Til samanburðar eru niðurstöður mælinga á kopar í sömu vodkategundum fengnum frá ATVR. Eitt rannsóknarsýni skar sig úr hvað varðar þéttni kopars (lengst til vinstri). Þéttnin var í öllum tilvikum langt undir leyfilegum mörkum (79pmól/l samkvæmt alþjóðlegum staðli).3 LÆKNAblaðið 2010/96 627

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.