Læknablaðið - 15.10.2010, Blaðsíða 49
UMRÆÐUR O G FRÉTTIR
HEILSUGÆSLAN
þarf að koma til miklu skýrari skilgreining á
hlutverki þjónustustiga innan kerfisins, þannig
að tryggt sé að sjúklingurinn sé að fá viðeigandi
þjónustu og á réttu þjónustustigi. Þegar margir
læknar eru að sinna sama sjúklingi, hver á sínu
sérsviði, er mikilvægt að einn læknir hafi almenna
yfirsýn. Það er að mínu mati eðlilegt að þetta sé
heimilislæknirinn í flestum tilvikum, en til að svo
megi verða þarf að efla þjálfun heimilislækna til
að sinna þessu starfi.
Samstarf heimilislækna og sérfræðilækna um
mat, greiningu og meðferð þarf að vera hnökralaust
en til þess þarf úrbætur í upplýsingatækni," segir
Runólfur. „Heilsugæslan er ekki í stakk búin
til að taka við þessum stóra hópi sjúklinga sem
þarf á stöðugu eftirliti og meðferð að halda.
Þessi sjúklingahópur hefur að miklu leyti notið
þjónustu utan heilsugæslunnar til þessa og fjölgun
námslækna í heimilislækningum mun ekki breyta
því að neinu marki. Það þarf að efla heilsugæsluna
verulega ef hún á að taka við þessum verkefnum.
Að mínu mati þarf að auka þátt lyflækninga í
námi heimilislækna hér á landi og þjálfunin á að
stórum hluta að fara fram á göngudeildum fremur
en legudeildum Landspítala eins og raunin er í
dag. Það mun þó taka langan tíma að byggja upp
heilsugæsluna með þessum hætti og því þarf að
hyggja að öðrum leiðum. Til greina kemur að
læknar annarra sérgreina verði ráðnir til að sinna
verkefnum innan heilsugæslunnar í samstarfi við
heimilislækna, til dæmis lyflæknar, barnalæknar
og kvensjúkdómalæknar."
Ekki verður tekið á málefnum heilsugæslunnar
án þess að skipuleggja á heildstæðan hátt hlutverk
göngudeilda sjúkrahúsanna og sjálfstætt starfandi
sérfræðilækna, samhliða endurskipulagningu
innan heilsugæslunnar sjálfrar, að mati Runólfs.
„Landspítalinn verður að koma að borðinu sem
stærsti veitandi göngudeildarþjónustu á landinu.
Heilsugæslan, göngudeildir sjúkrahúsanna og
sjálfstætt starfandi sérfræðilæknar verða að vinna
saman að þessu mikilvæga verkefni."
Seretide Diskus (Flútíkasón og salmeteról) ATC flokkur:
R03AK06. R,0
Hver skammtur af Seretide Diskus gefur: 50 míkróg af
salmeteróli (sem salmeterólxínafóat) og 100, 250 eða 500
mikróg af flútíkasón-'própíónati. Ábendingar: Astmi: Seretide
Diskus er ætlað til samfelldrar meðferðar gegn astma, þar sem
samsett meðferð (langverkandi berkjuvíkkandi lyfs og barkstera
til innöndunar) á við: þegar ekki næst nægileg stjórn á
sjúkdómnum með notkun barkstera til innöndunar og
stuttverkandi berkjuvíkkandi (beta-2-örvandi) lyfja eða þegar
viðunandi stjórn á sjúkdómnum næst með notkun barkstera til
innöndunar og langverkandi berkjuvíkkandi (beta-2-örvandi)
lyfja. Athugið: Seretide Diskus 50/100 míkróg styrkleikinn hæfir
hvorki fullorðnum sjúklingum né börnum með slæman astma.
Langvinn lungnateppa: Seretide Diskus er ætlað til meðferðar á
einkennum hjá sjúklingum með langvinna lungnateppu með
FEV-| < 60% af áætluðu eðlilegu gíldi (fyrir gjöf berkjuvíkkandi
lyfs) sem hafa umtalsverð einkenni þrátt fyrir reglulega meðferð
með berkjuvíkkandi lyfjum og sögu um endurtekna versnun.
Skammtar og lyfjagjöf Seretide Diskus er eingöngu ætlað til
innöndunar. Gera þarf sjúklingum Ijóst að Seretide Diskus
verður að nota daglega til að ná hámarksárangri, jafnvel þótt
einkenni séu ekki til staðar. Finna þarf lægsta skammt sem nær
að halda einkennum niðri. Þegar hægt er að halda einkennum
niðri með lægsta styrkleika samsettu meðferðarinnar, tvisvar á
dag, gæti næsta skref falist í að prófa eingöngu barkstera til
innöndunar. Einnig væri hægt að finna hæfilegan skammt af
Seretide Diskus, til notkunar einu sinni á dag, fyrir sjúklinga sem
þarfnast langvirks berkjuvíkkandi lyfs ef læknirinn telur það
nægja til þess að halda sjúkdómnum í skefjum. Ef lyfið er notað
einu sinni á dag og sjúklingurinn hefur haft nætureinkenni gæti
hann notað lyfið á kvöldin en ef sjúklingurinn hefur aðallega haft
einkenni á daginn gæti hann notað lyfið á morgnana. Ef
sjúklingur þarf á skömmtum að halda sem liggja utan ráðlagðra
skammtastærða, ætti að ávísa viðeigandi skömmtum af
berkjuvíkkandi lyfi og/eða barkstera. Ráðlagðir skammtar:
Astmi: Fullorðnir og unglingar 12 ára og eldri: Einn skammtur
með 50 míkróg salmeteról og 100 míkróg flútíkasónprópíónat,
tvisvar sinnum á dag eða einn skammtur með 50 míkróg
salmeteról og 250 mikróg flútíkasónprópíónat, tvisvar sinnum á
dag eða einn skammtur með 50 míkróg salmeteról og 500
míkróg flútíkasónprópíónat, tvisvar sinnum á dag. Börn 4 ára og
eldri: Einn skammtur með 50 míkróg salmeteról og 100 mikróg
flútíkasónprópíónat, tvisvar sinnum á dag. Hámarksskammtur
af flútikasónprópíónati í Seretide Diskus, sem skráður er fyrir
börn, er 100 míkróg tvisvar á dag. Upplýsingar varðandi notkun
Seretide Diskus hjá börnum yngri en 4 ára, liggja ekki fyrir.
Langvinn lungnateppa: Fullorðnir: Einn skammtur með 50
míkróg salmeteról og 500 míkróg flútíkasónprópíónat, tvisvar
sinnum á dag. Sérstakir siúklingahópar: Ekki þarf að breyta
skömmtum hjá öldruðum eða sjúklingum með skerta
nýrnastarfsemi. Það liggja ekki fyrir upplýsingar um notkun
Seretide Diskus hjá sjúklíngum með skerta lifrarstarfsemi.
Notkun Diskus-tækisins: Tækið er opnað og hlaðið með þar til
gerðri sveif. Munnstykkið er síðan sett í munninn og það
umlukið með vörunum. Þá er hægt að anda skammtinum að sér
og síðan er tækinu lokað. Frábendingar Seretide Diskus er ekki
ætlað sjúklingum með ofnæmi fyrir virku efnunum eða
hjálparefninu. Sérstök varnaðarorð og varúðarreglur við notkun
Meðferð á astma ætti venjulega að fylgja áfangaáætlun og
svörun sjúklings ætti að meta út frá klínískum eínkennum og
lungnaprófum. Seretide Diskus er ekki ætlað til meðhöndlunar á
bráðum astmaeinkennum sem þarfnast skjót- og stuttverkandi
berkjuvíkkandi lyfja. Ráðleggja ætti sjúklingum að hafa lyf við
bráðum astmaköstum ávallt við höndina. ðnnur sérstök
varnaðarorð og varúðarreglur við notkun (sjá nánar
sérlyfjaskrártexta). Milliverkanir Forðast ber notkun bæði
sérhæfðra og ósérhæfðra beta-blokka nema þörfin fyrir þá sé
mjög brýn. Samtímis notkun annarra beta-adrenvirkra lyfja
getur hugsanlega valdið aukinni verkun. Undir eðlilegum
kringumstæðum fæst mjög lág þéttni flútíkasónprópíónats í
plasma eftir innöndun lyfsins, vegna verulegra umbrota við
fyrstu umferð um lifur og mikillar úthreinsunar fyrir tilstilli
cýtókróms P450 3A4 í meltingarvegi og lifur. Því er ólíklegt að
klínískt mikilvægar milliverkanir við flútíkasónprópíónat komi
fram. Meðganga og brjóstagjöf Ekki liggja fyrir nægjanlegar
upplýsingar varðandi notkun á salmeteróli og
flútíkasónprópíónati á meðgöngu og við brjóstagjöf hjá konum,
til þess að meta hugsanleg skaðleg áhrif. Notkun Seretide
Diskus á meðgöngu ætti einungis að íhuga þegar væntanlegur
ávinningur fyrir móður er meiri en hugsanleg áhætta fyrir fóstur.
Við meðferð hjá þunguðum konum ætti að nota lægsta skammt
af flútíkasónprópíónati sem nægir til að halda astmaeinkennum
í skefjum. Áukaverkanir Þar sem Seretide Diskus inniheldur
salmeteról og flútíkasónprópíónat má búast við aukaverkunum
af sömu gerð og vægi og af hvoru lyfinu fyrir sig. Ekki eru nein
tilfelli frekari aukaverkana þegar lyfin eru gefin samtímis. Mjög
algengar (>1/10), höfuðverkur, skjálfti. Algengar (>1/100 og
<1/10) hjartsláttarónot, erting í hálsi, hæsi/raddtruflanir,
vöðvakrampar. Sjaldgæfar (>1/1000 og <1/100)
Ofnæmisviðbrögð í húð, hraður hjartsláttur.Lyfjafræðilegar
aukaverkanir beta-2-örvandi efna, svo sem skjálfti,
hjartsláttarónot og höfuðverkur hafa komið fram, en hafa yfirleitt
verið tímabundnar og minnkað við reglubundna meðferð. Vegna
flútíkasónprópíónatþáttarins geta hæsi og sveppasýking í munni
og hálsi komið fram hjá sumum sjúklingum. Hægt er að draga
úr bæði hæsi og tíðni sveppasýkinga með því að skola munninn
með vatni, eftir notkun lyfsins. Hugsanlegar almennar
aukaverkanir eru m.a. Cushingssjúkdómur, einkenni sem líkjast
Cushingssjúkdómi, bæling á nýrnahettustarfsemi, seinkun á
vexti hjá börnum og unglingum, beinþynning, drer í auga og
gláka. Órsjaldan hefur verið greint frá hækkun blóðsykurs. Eins
og á við um önnur innöndunarlyf getur óvæntur
berkjusamdráttur komið fyrir.
sjá nánar www.lyfjastofnun.is
HANDHAFI MARKAÐSLEYFIS GlaxoSmithKline ehf. Þverholti
14,105 Reykjavík
PAKKNINGAR OG VERÐ (Ágúst 2010)
Seretide Diskus 50/100 míkróg/skammt innöndunarduft, 60
afmældir skammtar. Kr. 6.844 - Greiðsluþáttaka B merkt
Seretide Diskus 50/250 mikróg/skammt innöndunarduft, 60
afmældir skammtar. Kr. 11.104 - Greiðsluþáttaka 0 merkt
Seretide Diskus 50/500 míkróg/skammt innöndunarduft, 60
afmældir skammtar. Kr. 14.543 - Greiðsluþáttaka 0 merkt
Seretide innúðalyf 25/50 míkróg/skammt 120 skammtar. Kr.
6.597 - Greiðsluþáttaka 0 merkt
Seretide innúðalyf 25/125 míkróg/skammt 120 skammtar. Kr.
9.222 - Greiðsluþáttaka B merkt
Seretide innúðalyf 25/250 míkróg/skammt 120 skammtar. Kr.
12.493 - Greiðsluþáttaka B merkt
LÆKNAblaðið 2010/96 641