Læknablaðið - 15.10.2010, Page 59
U M R Æ Ð A
Ö L D U
O
N G
G F R É T T I R
A D E I L D L í
Ferðalangar í Miklabæjarkirkju ásamt séra Döllu Þórðardóttur, sóknarpresti og prófasti. Ljósm. Páll Ásmundsson
Jldungadeild
^ Læknafélags íslands
Umsjón síðu:
Páll Ásmundsson
Stjórn
Öldungadeildar:
Sigurður E.
Þorvaldsson
formaður
Jón Hilmar Alfreðsson
ritari
Tryggvi Ásmundsson
gjaldkeri
Guðmundur Oddson
Óli Björn Hannesson
Öldungaráð:
Hörður Þorleifsson
Höskuldur Baldursson
Kristín Guttormsson
Leifur Jónsson
Páll Ásmundsson
Vigfús Magnússon
Vefsíða
Öldungadeildar
finnst meðal annarra
vefsíðna sérfélaga á
síðu LÍ.
Af för Öldunga í ríki Ásbirninga
Það voru alls 40 félagar og makar þeirra sem
þátt tóku í þessari ferð, undir leiðsögn Magnúsar
Jónssonar sagnfræðings, 12. til 14. september
síðastliðinn.
Veðrið var ekki til að lasta, enda ferðast
Öldungar í anda heilags Þorláks, sem aldrei
bölvaði veðrinu. Þó er ekki ofsagt að við komumst
í hann krappan á göngu í Haugsnesi, lentum þar
í norðan þræsings hraglanda, einmitt þar sem
mannskæðust hefur orðið orusta á íslandi.
Mánudagurinn 13. var hins vegar blíður og
heiður og frá honum stafa bjartar minningar, til
dæmis úr Glaumbæ, Hofsósi og Hólum.
Við gistum á Hótel Varmahlíð og snæddum
þar í tvígang kvöldverð. Hlaut sá viðurgjörningur
allur einróma lof. Hvílíkt hótel í sveit á íslandi.
Sagan var snar þáttur í ferðinni. Drangey
minnti á Gretti og fjölmörg örnefni í Skagafirði
á Sturlungu. Þessi fomrit voru víða reifuð af
Magnúsi leiðsögumanni. Og það voru fleiri sem
miðluðu fróðleik. Þórður Harðarson útskýrði
dulin tákn sem finnast í frásögnum af landnámum
Ingimundar gamla og Helga magra og Jón
Þorsteinsson sagði frá hryssunni Flugu sem týndist
í Flugumýri.
Það var samkvæmt hefð að gjaldkerinn,
Tryggvi Ásmundsson, hafði meðferðis einn
ágætan veiðimeistara og þegar líða tók á dag
og sól varð höll á himni skenkti hann mönnum í
bikara. Var almennt gerður að þessu góður rómur.
Hitt er svo, að gjaldkerinn átti það líka til - og
alveg utan dagskrár - að fara í hátalara og segja
lítt sannar spésögur af nærstöddum félögum. Páll
Ásmundsson gerði og það til gaman að kveða
um Gretti, sem synti í land eftir „spólu", undir
hlimrekskum hætti.
Þetta og ýmislegt fleira í þeim dúr var til þess
fallið að gera ferðina skemmtilega, en ef til vill er
það þó samveran sjálf sem er best, og svo það að
allir komu heilir heim.
Jón Hilmar Alfreðsson
Skagafjörður
Skagafjörðurinn skín oft við sólu.
Skáldið Hjálmar þar lifði í Bólu.
Þar Geirmundur rokkar
og graðhestur brokkar
og Grettir synti í land til að ná sér í spólu.
P.Á.
LÆKNAblaðið 2010/96 651